Úrval - 01.06.1949, Page 79
1 STUTTU MÁLI
77
hvert egg er 9 sekúndur á leið-
inni gegnum vatnið. Við þessa
snöggu suðu á sér stað efna-
breyting í skurninu og loftgötin
í því lokast. Eftir að eggin koma
úr vatninu fara þau í gegnum
vökva, sem blandaður er calcí-
um og ostefni (kasein). Við það
myndast þunn, ósýnileg himna
utan um skurnið, og þornar
hún strax og harðnar af því að
eggin eru heit. Nákvæm efna-
greining á eggjunum eftir þessa
meðferð leiddi ekki í ljós neina
breytingu í efnasamsetningu
þeirra,' og þau voru gerilsnauð.
Uppfinningamaðurinn hefur
á margvíslegan hátt reynt
geymsluþol eggjanna. Einu
sinni lét hann nokkur egg liggja
í gluggakistunni í skrifstofu
sinni þar sem sólin skein á þau
í átta mánuði, frá því snemma
um vorið og langt fram á haust.
Eftir þessa meðferð voru eggin
jafngóð. Skrifstofustúlkan sauð
þau og borðaði þau til morgun-
verðar — og þau voru á bragð-
ið eins og nýorpin egg.
Þessi uppfinning getur haft
mjög mikla þýðingu fyrir eggja-
framleiðendur, einkum í þeim
löndum þar sem eggin eru út-
flutningsvara. I Danmörku hef-
ur geymsla á eggjum verið
kostnaðarsöm, en jafnframt
gölluð. Eitt eggjaútflutnings-
fyrirtæki hefur t. d. byggt fimm
stórar eggjageymslur, þar sem
eggin eru geymd í vatnsglösum.
Hver eggjageymsla kostaði 2
miljónir króna, og geymslan á
eggjunum rúma tvo aura stykk-
ið. En þessi egg verður að nota
undir eins og þau eru tekin upp
úr vatninu, og þau hafa glatað
hinu ferska bragði sínu. Eftir
meðhöndlun með aðferð Sig-
gaard þurfa eggin hinsvegar
enga sérstaka meðferð, og nota
má þau hvenær sem er.
— Politiken.
Uppruni lífsins.
Meðal fulltrúa Sovétríkjanna
á friðarþingi mennta- og vís-
indamanna, sem haldið var í
New York 25.—27. marz síð-
astliðinn að tilhlutun „National
Council of the Arts, Sciences
and Professions" í Bandaríkj-
unum, var prófessor A. I. Opar-
in, lífefnafræðingur og meðlim-
ur rússneska vísinda akademís-
ins.
Oparin prófessor er heims-
kunnur vísindamaður, sem haft
hefur mikil áhrif á skoðanir
vísindamanna um allan heim á
uppruna lífsins. Bók hans „Upp-