Úrval - 01.06.1949, Síða 80
78
ÚRVAL
runi lífsins” (The Origin of
Life) kom út á ensku árið 1938.
í henni gerir hann tilraun til
að skýra þróun lífsins á jörð-
inni án þess að grípa til þeirra
skýringa, að ,,lífsfrumur“ hafi
borizt „einhvers staðar að“ ut-
an úr geimnum, eða að lifandi
efni hafi eins og dautt efni ver-
ið til frá upphafi vega, eða að
tiltölulega flókin samsetning
eins og bakterían hafi skyndi-
lega orðið til við „sérstök skil-
yrði“.
Oparin prófessor telur, að líf-
ræn efnasambönd hafi verið til
á hinni kólnandi reikistjörnu
löngu áður en nokkur lífvera
varð til. Hann bendir á, máli
sínu til stuðnings, að vitað sé,
að lífræn efnasambönd eins og
methan og ammoníak, séu á
reikistjörnunum Júpíter og Sa-
túrnus. I þessum efnasambönd-
um er vatnsefni tengt kolefni
og köfnunarefni.
Þegar önnur frumefni, eink-
um súrefni, fosfór og brenni-
steinn, komu fram á sjónarsvið-
ið, sköpuðust skilyrði til tilfall-
andi myndunar enn flóknari
efnasambanda, stærri og flókn-
ari sameinda (mólekýla), unz
að því kom, að til varð einfalt
eggjahvítuefni (protein). Frá
þessu stigi til hins hlaupkennda
ástands, sem nefnist kolloid,
var eðlileg, en auðvitað mjög
hægfara, þróun. Og að lokurn
urðu sumar þessara kolloid-
sameinda svo flóknar að sam-
setningu, að þær öðluðust skil-
yrði til þess, sem við köllum
sjálfstætt lífs.
Oparin prófessor viðurkennir,
að dæmi um sjálfvakta myndun
jafnvel einföldustu efnasam-
banda, þekkist ekki á jörðinni
nú. En það þarf ekki að vera af
því að skilyrði til þeirrar mynd-
unar séu ekki fyrir hendi, heldur
af hinu, að ef slík efni mynd-
uðust, mundu hinar örsmáu líf-
verur, sem eru alls staðar ná-
lægar, eyðileggja þau sam-
stundis.
Oparin telur ekki óhugsandi,
að mönnum kunni að takast að
búa til líf í rannsóknarstofum
sínum með uppbyggingu efna-
sambanda stig af stigi, en telur
þó mjög ósennilegt, að það geti
orðið í náinni framtíð. Til þess
þurfum við að vita miklu meira
um hvernig lífverurnar eru sett-
ar saman, og hvernig þær
starfa.
Aðalatriðin í kenningum Opa-
rins hafa hlotið fylgi mikils
meirihluta vísindamanna um all-