Úrval - 01.06.1949, Page 82
80
ÚRVAL
benzohydryl ether 8-chlorotheo-
phyllinate. Framleiðandi er G.
D. Searle and Co., Chicago.
— Science News Letter.
Fastir páskar.
Páskadagur var á þessu ári
17. apríl. 1 fyrra var hann 28.
marz. Næsta ár verður hann 9.
apríl. Hver er meiningin með
þessum flækingi? Hvers vegna
eru páskarnir (og þá um leið
hvítasunnan) ekki fastbundnir
eins og jólin?
Er ekki kominn tími til, bæði
af hagnýtum og rökréttum á-
stæðum, að festa páskana í eitt
skipti fyrir öll við ákveðinn
mánaðardag á hverju ári?
Sannleikurinn er sá, þótt fæst-
ir muni vita það, að til eru lög
hér á Englandi, sem mæla svo
fyrir, að „páskar skuli vera
fyrsta sunnudag eftir annan
laugardag í apríl“, og þessi lög
eru tuttugu ára gömul.
En í lögum þessum er ákvæði
um það, að þau gangi ekki í
gildi nema konungleg tilskipun
komi til, og að þangað til skuli
taka tillit til opinberrar afstöðu
kirkjunnar í þessu máli.
Því miður er kaþólska kirkj-
an, að því er virðist eingöngu
af fastheldni við meiningarlausa
venju, á móti breytingu, eða
hefur að minnsta kosti verið til
þessa. En nú stendur einmitt
sérlega vel á að gera þessa
breytingu, því að páskadagur
næsta ár er 9. apríl, en það er
einmitt „fyrsti sunnudagur eftir
annan laugardag í apríl“.
Ekki mundi þó vera ráðlegt,
að breytingin yrði aðeins gerð
í einu landi, enda var það aldrei
tilætlunin. Hreyfingin, sem varð
til þess, að lögin voru samþykkt
fyrir 20 árum, var einmitt al-
þjóðleg, komin frá forsvars-
mönnum verzlunar- og sam-
göngumála í ýmsum löndum,
og var málið lagt fyrir Þjóða-
bandalagið gamla.
Augljóst er, hve mikið hag-
ræði yrði að því, að páskarnir
væru alltaf á sama tíma. Skól-
ar og járnbrautir gætu þá fast-
bundið áætlanir sínar, svo og
gistihús og hverskonar annar
rekstur í sambandi við páska-
leyfi fólks. Og nú, eftir að á-
ætlunarbúskapur er orðinn út-
breiddur, er þörfin enn brýnni.
Til hvers er að bera saman t. d.
afköst eða framleiðslumagn til-
tekinna atvinnugreina í marz-
mánuði frá ári til árs eða apríl
mánuði frá ári til árs, þegar
páskarnir með öllum sínum frí-