Úrval - 01.06.1949, Page 98
96
ÚRVAL
minningarhátíðina var hið
kunna skáld Fritz von Unruh.
Árið 1913 var hann ungur liðs-
foringi í þýzka hernum, en sagði
sig þá úr honum til að helga
sig skáldskap. Árið 1914 var
hann aftur kallaður í herinn.
Hann varð að flýja land þegar
Hitler kom til valda, og hafði
nú komið með flugvél frá Banda-
ríkjunum til að taka þátt í há-
tíðahöldunum. Fyrri hluti ræð-
unnar var hörð ádeila á Þjóð-
verja og þýzka erfðamenningu,
sem eigi sök á þeim hörmung-
um, er yfir hafi dunið. Menn,
sem voru ákafir hemaðarsinn-
ar á dögum keisaradæmisins,
komu sér fyrir í áhrifamiklum
stöðum og grófu undan Wei-
marlýðveldinu. Svo urðu þeir
nazistar, og nú eru þeir liprir
vikapiltar hernámsveldanna.
Hann ákærði alla þjóðina sem
meðseka. Og hann lýsti hinni
vonlausu baráttu til að stöðva
flóðbylgju nazismans. Hann lýsti
á mjög áhrifaríkan hátt tilfinn-
ingum sínum á friðardaginn,
þegar hann reikaði einn um göt-
ur New Yorkborgar og sá fögn-
uð fólksins yfir unnum sigri,
sigri sem hann hafði sjálfur ósk-
að eftir og unnið að, en gat nú
ekki glaðzt yfir, eftir að hann
var unninn, því að myndin af
andlegu og efnlegu hruni hinn-
ar þýzku þjóðar vék ekki úr
huga hans.
Hann minnti áheyrendur sína
á hina mörgu Þjóðverja, sem
höfðu unnið friðsamleg afrek í
þágu mannkynsins: Gutenberg,
sem fann upp prentlistma, Lút-
er, sem hlýddi samvizku sinni
í trássi við voldugustu þjóðhöfð-
ingja heimsins, Beethoven, Her-
der, Schiller og marga fleiri. Svo
les hann bréf frá þýzkum stú-
dent, sem lýsir Þýzkalandi eins
og það er núna. Það er eins og
fangelsi. „En enginn virðist
muna, hve illt athæfi okkar var,
þegar við höfðum athafnafrelsi.
Enginn vill viðurkenna, að það
er okkar sök, að við sitjum nú
í þessu fangelsi. Við æskumenn-
irnir, sem höfum einsett okkur
að breyta um stefnu, þörfnumst
hjálpar. Komið og veitið okk-
ur þá hjálp.“
I sambandi við hátíðina voru
haldin margskonar þing, þar á
meðal stórt kvennaþing, sem
hafði að einkunnarorðum:
„Þýzkar konur játa trú sína á
lýðræðið“. Umræðuefninu var
skipt í þrjá flokka: konurnar og
friðurinn, konurnar og stjórn-