Úrval - 01.06.1949, Blaðsíða 117
BETRI HELMINGUR SAMS SMALL
115
,,Getur þú fyrirgefið mér,
Mully?“
,,Æ, Sam,“ andvarpaði hún.
,,Ég hef fyrirgefið þér í svq
mörg ár, að ég veit ekki, hvern-
ig ég ætti að fara að því að
hætta því.“
,,Mully,“ sagði Sam. ,,Ég skal
fara betur með þig hér eftir.
Mér leið alls ekki vel í Black-
pool og auk þess — eftir að ég
drap Sammywell í kvöld, er eins
og við höfum svo að segja runn-
ið saman. Nú er hann innan í
mér og hann er mín góða hlið
— og hér eftir ætla ég að reyna
að láta góðu hliðina á mér snúa
út.“
,,Þei,“ sagði Mully, ,,þú talar
eins og þú værir að fá garna-
flækju.“
,,Og nú stíg ég aldrei fram-
ar fæti í Arnarkrána. Ég ætla
að vera heima á hverju kvöldi
og lesa upphátt fyrir þig, með-
an þú ert að prjóna.“
,,Guð forði þér frá því,“ sagði
Mully. ,,Ég hefði þá aldrei
nokkurn frið. Nei, ég vil hafa
þig eins og þú ert, gamli refur.“
„Viltu það, Mully? En ég var
nú búinn að taka það í mig, að
ég skyldi reyna að líkjast
Sammywell; hann er í raun og
veru betri helmingur minn.“
„Bull, þú átt aðeins einn
betri helming,“ sagði Mully.
,,Og það er ég. Svona — nú
ferðu beint í rúmið!“
Það er óþarfi að kynna Eric Knight fyrir lesendum Urvals, hann er
gamall kunningi þeirra, og án efa vinsælastur allra þeirra skáldsagna-
höfunda, sem Urval hefur birt eftir. Þrjár langar sögur eftir hann
hafa birzt i Urvali: Yorkshiremaðurinn fljúgandi, í 4. hefti 4. árg.,
Þetta varðar mestu, í 6. hefti 5. árg. og Tíkin hans Sams Small, í 4.
hefti 6. árg. Tvær þeirra (sú fyrsta og sú síðasta) eru úr síðustu bók
Eric Knight The Flying Yorkshireman, og þaðan eru einnig þær tvær
sögur, sem hér birtast. Um þessa bók skrifaði danski ritdómarinn
Vagn Riisager í Kristeligt Dagblad: ,,Það má ekki taka þessar sögur
alvarlegar en efni standa til. Þær eru glettnisfullur draumur höfund-
arins, sprottinn af þrá hans eftir friðsælu sveitalífi Yorkshire, mitt
í ringulreið og ógnum styrjaldarinnar, skömmu áður en kúlur Japana
bundu enda á líf hans. En það má heldur ekki vanmeta þessi ævintýri.
Þau eru glettin og spaugsöm, satt er það, en eins og öll hin beztu
ævintýri, búa þau jafnframt yfir innri sannleik, sem er ofar allri skyn-
semi, en þó eigi að síður sannleikur. Mér er nær að halda, að þegar
metsölubókin Þetta varðar mestu er löngu gleymd, verði þessi ævin-
týri orðin sígild.“