Úrval - 01.04.1952, Blaðsíða 81

Úrval - 01.04.1952, Blaðsíða 81
MK. SMITH 79' ég við . . . Það er ekki alltaf skemmtilegt." Hann brosti. „Stund- um var það alveg djöfullegt og okkur langaði til að drepa hvern annan. Þegar hann féll," hélt hann á- fram, „fannst mér eins og ég hefði misst bróður minn. Og það var líka verra fyrir þá sök, að hann féll ekki í bardaga." „Hvernig var hann drepinn ?“ „Ja, það veit eiginlega enginn. En hann var skotinn eina nótt af varð- manni, sem sagðist hafa haldið að höfuðsmaðurinn væri japani að læð- ast inn í herbúðirnar. Þessum varð- manni var í nöp við höfuðsmanninn, og við héldum allir að mannkvik- indið hefði gert þetta af ásettu ráði.“ Hann andvarpaði þungan og hélt áfram. „En það var ekki hægt að sanna neitt og hann slapp . . .“ Svo tók hann böggulinn upp af borðinu, þar sem hann hafði lagt hann, og rétti mér. Það var eins og hann væri að fremja helgiathöfn. Höfuðsmaðurinn var siskrifandi," sagði hann. „Stundum skrifaði hann alla nóttina eins og hann yrði að ljúka við eitthvað. Hérna er það. Þegar hann var fallinn, fann ég þetta í kofanum hans. Það var skrif- að utan á böggulinn til mín og hann bað mig að færa yður hann per- sónulega, ef eitthvað kæmi fyrir . . .“ „Hafið þér ekki lesið það?“ spurði ég. „Nei, ég er ekki mikið fyrir lestúr, ef ég get haft eitthvað annað fyrir stafni. Það léttir af mér þungu fargi að vita böggulinn í yðar höndum. Ég var oft nærri búin að týna honum á flækingnum. En þetta var . . . hvað kallið þér það? . . . einskonar köllun. Höfuðsmanninum var svo um- hugað um hann. Hann var skrítinn náimgi. Hann gat hlegið, drukkið og sagt sögur, og hann var alveg laus við allan stórbokkaskap. En það var eins og hann væri alltaf hálfdapur. Ég held hann hafi hugsað of mikið." Við tókumst aftur í hendur og hann fór. Ég opnaði böggulinn. I honum voru tvö til þrjú hundruð ritaðar síður, sumar vélritaðar, aðr- ar handskrifaðar. Pappírinn var af ýmsu tagi og var upplitaður og skell- óttur af hitabeltissólskini og ef til vill saltri sjávai'þoku. Ég fór að lesa. handritið, og þegar komið var að kvöldverðartíma, lét ég færa mér matinn inn í skrifstofuna og hélt áfram lestrinum. Ég lauk við að lesa handritið klukkan tvö um nótt- ina, og á síðustu síðunni var eins- konar eftirskrift, sem var stiluð til min Hún var á þessa leið: „Ef þú telur að hægt sé að birta þetta, þá væri það mér gleðiefni. Það gæti hjálpað einhverjum vesa- ling, sem er haldinn sama sjúkdómi og ég . . . sem er að rotna innanfrár ef svo mætti að orði komast. — W. F." Og þá kom mér dálítið í hug. Lið- þjálfinn hafði sagt, að dauði Ferris hefði ekki verið skýrður til fulls, að það hefði ekki verið úr því skorið, hvort um slys eða morð hefði verið að ræða. Ef liðþjálfinn hefði nennt að lesa handritið, hefði honum doEtið þriðji möguleikinn í hug . . . Það gat verið, að Ferris hefði farið út með það eitt fyrir augum að láta varð- manninn skjóta sig. Ef til vill hafa þrjár orsakir samtvinnaðar valdið dauða hans — slys, morð og sjáífs- morð. Dauði hans virtist vera undir- búinn á þann veg . . . Ef til vill vegna eiginkonu hans og hinna óhamingju- sömu barna . . . Mér fannst handritið að minnsta kosti þess virði, að það kæmi fyrir almenningssjónir, og hérna er það. Ég hef kallað það „Mr. Smith". Ef til vill skiljið þér hvers vegna. — L. B. * 1 þetta skipti held ég að mér takist það. Ég hef gert fjórar tilraunir, en alltaf hefur einhver hindrun orðið á vegi mínum, einskonar þoka eða veggur eða eitthvað þessháttar. Ég komst að vissu marki, en lengra ekki. Þegar ég reyndi að festa til-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.