Úrval - 01.04.1952, Blaðsíða 92

Úrval - 01.04.1952, Blaðsíða 92
90 ■drval Hvað er ástin? ÍCg veit það ekki. Veizt þú hvað hún er? Ástin er svo breytileg og hvikul. Stunöum finnst mér, héma úti á eynni, að ég elski jafnvel hundinn minn heima meira en konu mína og börn. Stundum er ég að velta þvi fyrir mér, hvað af heimilisfólkinu ég vildi helzt hafa hérna mér til afþreyingar. Oftast verður svarið: „Auðvitað hann Sandy, hundinn minn. Auðvitað!" Ef til vill stafar þetta af því, að hann var svo hændur að mér og auðsýndi mér svo mikla lotningu. Það einkennilega er, að mér finnst ég vera nátengdari honum en konu minni og börnum. Hvernig stendur á þessu? Það er eitt af því, sem ég er að reyna að uppgötva með því að skrifa þetta? Eg er að reyna að uppgötva, hvers- vegna tvær manneskjur, sem fram að giftingu lifðu góðu lífi, hafa komið öllu í svo hörmulegt öng- þveiti. Eg held að það hefði verið skárra, ef við hefðum rifist hraust- lega, ef ég hefði barið hana, eða ef ég hefði skilið við hana. Með því móti hefði hvort okkar fengið tæki- færi til að byrja á nýjan leik, áður en það var orðið of seint. Með rifrildi, ofsa og ástríðu hefði okkur ef til vill tekizt að sigrast á því, sem lamaði okkur og skildi okkur að. Á þann hátt hefði ég getað vak- ið eitthvað í henni, sem að lokum hefði sameinað okkur, þannig að við hefðum mátt njóta hvors ann- ars. Það var það sem hún þráði mest af öllu, hlutverkið, sem hún sífellt var að leika, en kom þó í veg fyrir með hverri hugsun sinni og athöfn. Það kom aldrei fyrir, jafnvel ekki í eina sekúndu, í öllu samlífi okkar. Samlíf okkar byrjaði vel. Við giftumst, af þvi að það var „eðli- legt“, ef svo mætti segja. Hvað mig snerti, þá var ég hraustur, ungur maður og Enid ung og blómleg stúlka. Foreldrar okkar beggja voru ánægðir með ráðahaginn. Við ætluð- um að byrja búskapinn í litlu, en skrautlegu húsi. Ég átti að taka við ágætu fyrirtæki og hún átti von á talsverðum arfi, ef allt færi að von- um. Ég lauk háskólanámi tveim ár- um á undan henni. Brúðkaup okkar var viðhafnar- mikið eins og vera bar, þegar tvær helztu fjölskyldur borgarinnar áttu í hlut. Að loknu brúðkaupinu ókum við til Kentucky, því að þar ætluöum við að vera um nóttina, og mestan hluta leiðarinnar var Enid að tala um hve brúökaupið hefði tekizt vel, hve brúð- armeyjarnar hefðu verið fallegar í kjólimum, sem hún sjálf hafði snið- ið, hve kennd Mary Everly hefði orð- ið af kampavíninu og svo framvegis, eins og ekkert hefði skeð, sem myndi breyta okkur báðum, færa ok'kur harningju eða þjáningu, eins og hið stórkostlegasta, sem hent getur ívær manneskjur, hefði alls ekki skeð. Það var engu likara en að við værum að koma af sveitaballi, i stað þess að hafa verið að halda brúðkaup okkar. Brátt myndi ég stöðva bíl- inn fyrir framan húsið hennar, fara inn með henni og sitja þar drykk- langa stund. Síðan myndi ég halda áfram heim. Ronnie fæddist þrem árum eftir að við giftumst og Esther tveim ár- um seinna. Það var ekki gert af ásettu ráði að haga þessu þannig. Það fór bara svona, og svo eignuðumst við ekki fleiri börn, af því að Enid veiktist, þegar hún átti Esther. Það hefði áreiðanlega verið hægt að lækna kvillann, en hvorugt okkar hirti um að gera neitt í málinu. Ég veit ekki, hvort Enid hefði kært sig um að eiga fleiri börn, og ég veit ekki held- ur, hvort mig langaði til þess. Ég býst við, að Enid hafi þótt hæfilegt að börnin væru tvö. Tveggja barna f jölskyldan var í hennar augum fyrir- myndarfjölskyldan. Þegar Ronnie var orðinn fjórtán ára og Esther tólf (það var rétt áður en ég fór i herinn), voru þau
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.