Úrval - 01.04.1952, Page 105

Úrval - 01.04.1952, Page 105
MR. SMITH anna: að láta mig njóta frelsisins þangað til ég yrði leiður á því. Mig grunar, að meðan á þessu stóð, hafi hún stundum verið raunverulega hamingjusöm. Hún sá sjálfa sig leika hlutverk af mikilíi kænsku, en markmið þess var að leiða mig aftur að arni heimilisins. Jafnvel eftir að ævintýrið var á allra vitorði, held ég hún hafi fengið full- nægingu í að vita aðrar konur segja sín í milli: „Veslings Enid, það er aðdáunarvert hvað hún tekur þessu vel!“ Auðvitað kvisaðist þetta. Hvern- ig, veit ég ekki. Sennilega með þjónustufólkinu, og þegar sú pípa hafði einu sinni verið opnuð, barst sagan eins og hlóð um æðar til allra eldhúsa bæjarins. En aldrei hef ég komizt að þvi, hver fyrst sagði Enid það og hvenær það var. 1 öllum þessum leik lék Nicole Villon undarlegt hlutverk. Hún dvaldi I New York í nokkra daga, og þeg- ar hún kom aftur, borðaði hún kvöld- verð með okkur og hvarf svo aftur hljóðlega og skýringarlaust. Návist hennar og samband við Mary varð mér æ torskildar. Hún virtist vera að hálfu leyti vinur og trúnaðarmað- ur og að hálfu leyti hjú, og þó kom fyrir að hún var ónotaleg og jafnvel ósvífin við Mary. Það er erfitt að finna skýringu á þeirri tortryggni og óbeit i garð Nicole sem Strax gerði vart við sig hjá mér. Engin vísbending, hvorld orð né athöfn, gat réttlætt hana. Ég held það hafi verið einskonar eðlisboð. fig gat aldrei losnað við hana. Hún var eins og aukahjól, sjaldan nálæg en alltaf álengdar, eins og hún væri á einhvem hátt örlögin holdiklædd, ímynd þessa ástarsam- bands okkar og fyrirboði um óum- flýjanleg endalok þess. Það var ekki til neins að reyna að fá Mary til að losa sig við hana. Eftir að fyrsti ástríðufuninn hafði fengið svölun, og kynni okkar voru orðin nánari, ympr- aði ég á því að við, og þó einkum 10S ég, myndmn verða enn hamingjusam- ari ef Nicole færi heim til Evrópu og við yrðum ein og frjáls, en Mary hló og sagði: „Hvaða vitleysa! Hvaða máli skiptir hún fyrir okkur? Henni er sama um samband okkar og ég get ekki verið án hennar. Það er svo ótalmargt smávegis, sem hún annast fyrir mig." Að því kom, að við gátum ekki haldið áfram eins og við byrjuðum. Ég gat ekki haldið áfram að koma til hennar á hverju kvöldi og fara heim fyrir dögun á hverjum morgni. Ég vissi að við Mary vorum sífellt. umræðuefni stúlknanna á skrifstof- imni, hvenær ég mundi skilja og giftast Mary o. s. frv. Og svo var annað. Er frá leið, vaknaði hjá okkur ósk um að gera samband okkar varanlegra og með einhverju móti þægilegra í fram- kvæmd. Við ákváðum þvi að Mary færi tii austurstrandarinnar eða Virginía og ég kæmi svo til hennar á helgum og stundum einn eða tvo daga í miðri viku. Um leið fékk ég því framgengt, að Nicole yrði send burtu þegar ég kæmi. Stundum hittumst við á hóteli í New York og fórum þá sjaldan út þaðan meðan ég hafði viðdvöl. Stund- um dvöldum við í gistihúsum úti í sveit, og tvisvar fór hún með mig í veiðiferð, en hún hafði kunnirigs- skap við fólk sem lagði stund á veiði- skap og reiðmennsku. Það var skemmtilegt líf, en ég var því ókunn- ugur og hálfvegis utanveltu þegar talað var um hesta og veiðiskap. I annarri þessari ferð kom fyrir at- vik, sem varð fyrsti fyrirboði þess er seinna gerðist. Við dvöldum á hóteli í Lexington og vorum með fólki sem sýndi hvorki vanþóknun né áhuga á sambandi okk- ar. Þetta var löng helgi: frá fimmtu- dagskvöldi til þriðjudagsmorguns, og á laugardagskvöld fórum við heiftr til manns að nafni Stacy, sem átti marga gæðinga. Þar var fólk víðs- vegar af landinu og jafnvel frá Ev-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.