Úrval - 01.04.1952, Side 106

Úrval - 01.04.1952, Side 106
104 ÚRVAL rópu, og ég var bæði undrandi og hreykinn af því að næstum allir virtust þekkja Mary og fagna henni. Við kvöldverðinn sat ég milli tveggja kvenna, sem töluðu ekki um annað en hesta og ég gat lítið tekið þátt í þeim samræðum. Mary sat milli tveggja manna, sem hún hafði kjmnt mig fyrir áður, og af því að mér leiddust sessunautarmínir,auk þess sem ég var afbrýðisamur, gaf ég þessum tveim mönnum nánar gæt- ur. Annar var holdgrannur og skarp- leitur maður um sjötugt, hinn var stór maður, sennilega á aldur við mig, laglegur, en rauður í andliti og með hraínsvart hár. Það var auð- séð að Mary átti óskipta athygli hans og a.ð návist hans var henni ógeðfelld, því að oftar en einu sinni sá ég hana snúa sér eins og hún vildi fara frá honum, ef hún hefði getað. Einu sinni sá ég bláu augun hennar leiftra af reiði og rétt á eftír sá ég hana biðja afsökunar og standa upp. Maðurinn horfði á eftir henni, stóð síðan upp og gekk í hum- átt á eftir henni, dálítið óstyrkum fótum. Mér var Ijóst, að Mary vildi losna við hann og að hann var að elta hana, og að ég yrði að koma henni til hjálpar. Jafnframt var mér ljóst, að ég yrði að gera það með varkárni, svo að afskipti mín yllu ekki óþæg- indum og eftirtekt. Þegar ég sá mér færi, baðst ég afsökunar, stóð upp og fór í humátt á eftir Mary. Þegar ég kom fram á ganginn, sá ég að hann lá út á stórar svalir sem voru allt í kringum húsið, og ég gekk eftir svölunum þangað til ég kom að horni, en þá heyrði ég rödd Mary, sem hú var mjög kuldaleg: „Nú, Basil, þú vildir tala við mig. Hvað viltu mér ?“ Eg nam staðar. Úr því hann hafði komið samkvæmt boði Mary, hafði ég ekki leyfi til að blanda mér i málið. Maðurinn sagði: ,,Þú veizt vel hvað ég vil. Eg vil að þú komir heim með mér og verðir hjá mér í klukkutíma." „Það er allt búið, og það veiztu," sagði Mary. „Ég stykki heldur i vatn- ið en fara heim með þér, og það eins þótt þú værir allsgáður. Eg settist hjá þér við borðið til þess að halda þér rólegum, af því að þú varst drukkinn. Þegiðu nú og láttu mig í friði.“ Það var beiskja i röddinni, þegar hann sagði: „Ég var nógu góður handa þér einu sinni .... “ Hann lauk ekki við setninguna, en ég heyrði skell eins og af kinnhesti og kallaði: „Mary, Mary!" um leið og ég hljóp fyrir hornið. Maðurinn stóð kyrr og horfði á hana, og þegar hún heyrði rödd mína sagði hún: „Forðaðu mér burt héðan, Wolcott, en berðu hann ekki. Það er aðeins til að gera illt verra." Og hún tók um handlegg mér og dró mig úr myrkrinu inn í ljósið. Þá fór mað- urinn að hlæja. Það var hryllilegur hæðnishlátur, sem fylgdi okkur eftir öllum svölunum. „Farðu og náðu í bílinn," sagði Mary óðamála. „Eg mæti þér við dymar." Eg hlýddi og tveim mínútum seinna stóð hún við dyrnar. Við ókum þegj- andi af stað, svo sagði Mary allt í einu: „Heyrðirðu, hvað hann sagði við mig?" „Nokkuð af því. Ég hefði átt að berja hann.“ „Nei,“ sagði Mary, „hann var drukkinn og það hefði aðeins vakið hneyksli. Ég hef verið að reyna að losna við hann síðan klukkan sex.“ „Af hverju kallaðirðu ekki á mig fyrr?“ spurði ég. „Ég hefði losað þig við hann.“ „Það hefði ekki þýtt neitt. Hann var drukkinn þegar hann kom.“ Svo lækkaði hún róminn. „Hann var eínu sinni ástfanginn af mér. Ég hef ekki séð hann í fjögur ár. Hann var drukkinn í kvöld, en hann er raunar lítið betri ódrukkinn." Svo var henni skyndilega allri lokið. Hún fór að gráta og hjúfraði sig upp að öxlinni á mér. Ég hægði
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.