Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Síða 4

Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Síða 4
A íslenskar skáldsögur SÍÐASTA ORÐIÐ Steinunn Sigurðardóttir í þessari margslungnu og áleitnu skáldsögu stíga ættmenni land- læknisdótturinnar glæsilegu, Öldu ívarsen, fram á sjónarsviðið, eitt af öðru, séð með gleraugum sam- ferðarmanna sinna, og þetta er mikill ættbogi, „þrútinn af lítillæti, manngæsku og stórhug", en byrgir bresti sína og leyndarmál bak við luktar dyr. Þessu er lýst á frumleg- an og óvæntan hátt, í eftirmælum um fólk af ívarsen-ætt, þar sem of- ið er saman ísmeygilegri kímni, nöpru háði og einlægri samúð. 182 blaðsíöur. Iðunn. Verð: 2678 kr. SVEFNHJÓLIÐ Gyrðir Elíasson Önnur skáldsaga þessa sérstæða höfundar sem hlaut Stílverðlaun Þórbergs Þórðarsonar árið 1989. Hér er lýst ferðalagi ungs manns um ísland, bæði ofanjarðar og neðan, hérna megin og fyrir hand- an, frá litlu þorpi um stærra kaup- tún til dálítillar borgar og alls stað- ar séríslensk kennileiti sem les- endur þekkja mætavel en verða torkennileg af samhengi sínu. Sagan er í senn kátleg, dularfull og ógnvekjandi. 144 blaðsíður. Mál og menning Verð: 2380 kr. MINNINGABÓK Vigdís Grímsdóttir Vigdís Grímsdóttir hefur unnið sér tryggan sess meðal fremstu rithöf- unda íslenskra með smásögum sínum, skáldsögum og Ijóðum. Hér slær hún á nýja strengi og yrk- ir um trega og söknuð, um það sem horfið er og kemur aldrei aft- ur, um minningar sem lýsa skamma stund og fölna að nýju. En þær eru ekki glataðar, þær eru nálægar og hlýjar og lifa með okk- ur alla tíð. 115 blaðsíður. Iðunn. Verð: 2280 kr. FÓRNARPEÐ Leó E. Löve Spennusaga sem gerist á íslandi árið 1990. Sér til skelfingar kemst Logi Guðmundsson blaðamaður á snoðir um stórfellt misferli stjórn- málamanns sem misnotar stöðu sína. Er íslenskt þjóðlíf svona? Svífast spilltir menn einskis og eru mannslíf þeim einskis virði? Hvers má sín ungur eldhugi gegn skák- fléttum peningamanna? Logi berst gegn spillingunni og leggur mikið undir. Bók sem aðdáendur spennusagna munu njóta ofan í kjölinn. 215 blaðsíöur. ísafold. Verð: 1990 kr. Erlendurjónsson ENDURFUNDIR Smásögur ísafold ENDURFUNDIR Erlendur Jónsson Endurfundir er safn þrettán smá- sagna en áður hefur komið út eftir höfundinn smásagnasafnið Far- seðlar til Argentínu. Sögurnar eru byggðar upp af þjóðlífsmyndum sem oftar en ekki er varpað á kunnuglegan bakgrunn. Mann- gerðirnar eru á öllum aldri og af ýmsu tagi. Sögusviðið getur verið heimahús, vinnustaður, skólastofa eða bíll uppi á heiði. Allar gerast sögurnar á líðandi stund þó sögu- þráðurinn dragi stundum slóða nokkra áratugi aftur í tímann. 160 blaðsíður. ísafold. Verð: 1490 kr. HELLA Hallgrímur Helgason Söguhetja þessarar þókar er 14 ára stúlka sem afgreiðir í Söluskál- anum þar sem inn streyma af þjóðveginum þýskir ferðamenn, fjölskyldur úr Reykjavík, þéttvaxnir flutningabílstjórar og töffarar á fyll- eríi. Hestamannamótið nálgast og þá dregur til tíðinda í lífi hennar og lífi hins friðsæla sveitaþorps. Nýr höfundur - ný sýn á Island - nýr tónn í íslenskum bókmenntum. 154 blaðsíður. Mál og menning. Verð: 2480 kr. VEGURINN UPP Á FJALLIÐ Jakobína Slgurðardóttlr Nú er hartnær áratugur liðinn frá því þessi virti höfundur sendi síð- ast frá sér bók og sæta nýjar smá- sögur tíðindum. Stíllinn er tær og frásögn öll Ijós, og hvort sem fjall- að er um eilífðarvanda eða dægur- mál fléttast saman í sögunum höf- uðþættir listarinnar að segja frá: Að vekja lesandann til umhugsun- ar og skemmta honum. 143 blaðsíður. Mál og menning. Verð: 2380 kr. HVERSDAGSHÖLLIN Pétur Gunnarsson Læknir, leikkona, verkamaður, bóndakona, iðnaðarmaður, hús- mæður - og öll börnin. Þetta eru venjulegir íslendingar sem hér er sagt frá, íslensk fjölskylda þar sem allir eru samt svo óvenjulegir. [ þessari hrífandi skáldsögu sýnir Pétur Gunnarsson allar sínar bestu hliðar: óvæntar hugdettur og fyndnar lýsingar, hlýju og angur- værð, dýpt og næmi fyrir þessu furðulega fyrirbæri - hversdags- leikanum. 200 blaðsíður. Mál og mennlng. Verð: 2580 kr.

x

Íslensk bókatíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslensk bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1846

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.