Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Side 5
íslenskar skáldsögur
MÝRARENGLARNIR FALLA
Sigfús Bjartmarsson
Hér eru fimm samtengdar sögur úr
íslenskri sveit sem lýsa heimi sem
er eyðingunni merktur. Allar snú-
ast sögurnar um hringrás náttúru
og mannlífs og viðnám gegn fram-
rás hins óumflýjanlega. Orðfærið
er auðugt og sérkennilegt, sprottið
úr þeim heimi sem sögurnar lýsa
svo eftirminnilega.
165 blaðsíður.
Mál og menning.
Verð: 2480 kr.
MYRKRAVERK í MIÐBÆNUM
Birgitta H. Halldórsdóttir
Ég er hrædd og ég veit ekki mitt
rjúkandi ráð. Það hafa verið framin
tvö morð, með stuttu millibili, hér í
Reykjavík. Morð sem allir telja að
séu skýranleg dauðsföll. Hið fyrra
var haldið að væri sjálfsvíg en það
síðara slys. Ég er hrædd því að ég
veit að morðinginn gengur laus og
hefur næsta fórnarlamb í sigtinu.
Ég óttast að áður en yfir lýkur
komi röðin að mér. . .
165 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
Verð: 1890 kr.
SÍÐASTA SAKAMÁLASAGAN
Björgúlfur Ólafsson
Sérvitur kennari dregst fyrir tilviljun
inn í atburðarás ofbeldis, morðs og
eiturlyfjasmygls. Höfundur fléttar
saman spennusögu, gamansögu
og fagurbókmenntum á mjög ný-
stárlegan hátt. Hér er á ferðinni
spennandi, skemmtileg og vönduð
skáldsaga.
154 blaðsíður.
Söguforlagið.
Verð: 2300 kr.
VILLIKETTIR í BÚDAPEST
Einar Heimisson
Vor 1989. Ung íslensk kona ætlar
sér að leggja stund á söngnám í
stórri borg í Evrópu en leiðir henn-
ar verða aðrar en til stóð í upphafi;
hún kynnist ungum manni frá
Búdapest. Hver er hún? Hver er
hann? Tvær ungar manneskjur frá
ólíkum stöðum á sérstökum tím-
um. Villikettir í Búdapest er sterk
saga um unga konu á tímamótum í
lífi sínu skrifuð af frábærri leikni og
innsæi.
204 blaðsíður.
Vaka-Helgafell
Verð: 2480 kr.
HEIMSLJÓS Tvö bindi
Halldór Laxness
Heimsljós er eitt öndvegisrita
heimsbókmenntanna á þessari öld
og ein ástsælasta skáldsaga ís-
lensku þjóðarinnar. Sagan fjallar
um líf Olafs Kárasonar, íslensks
skálds, stórbrotið lífshlauþ þess
manns sem er einna smæstur
meðbræðra sinna. Fegurð og
þjáning þessa lífs hefjast upþ í
goðsögulegar stærðir þó sögu-
sviðið sé lítið sjávarþorp. Endurút-
gáfa.
594 blaðsíður (bæði bindin).
Vaka-Helgafell.
Verð: 2192 kr. (hvort bindi)
INNANSVEITARKRONIKA
Halldór Laxness
Innansveitarkronika er listileg frá-
sögn af kirkjustríði í Mosfellssveit og
styður þá hugmynd að lífið sjálft geti
verið frásagnarverðara, skáldlegra
og skemmtilegra en nokkur tilbún-
ingur. Hún er þjóðleg menningar-
saga, skrifuð í stíl íslenskra fróð-
leiksmanna á fyrri öldum, en auð-
sætt er handbragð listamannsins.
Hvert orð er dýrt, hver hugsun ög-
uð, atvik öll og atburðir án orða-
lenginga. Milli línanna seitlar niður
aldanna en leiftrandi gamansemi
glitrar á hverri síðu. Endurútgáfa.
182 blaðsíður.
Vaka-Helgafell.
Verð: 2191 kr.
KRISTNIHALD UNDIR JÖKLI
Halldór Laxness
Kristnihald undir Jökli er þroska-
saga Umba, sem sendur er undir
Jökul til að kanna kristnihald þar.
Þar hittir hann merkilegar þersón-
ur sem hafa sterk áhrif á hann og
kollvarpa veikum lífsgrundvelli
hans. Umbi sogast í hringiðu lífs
þeirra, hugmynda og tilfinninga og
verður aldrei samur. Kristnihaldið
er ein af dýrustu perlunum í
sagnaskáldskap íslendinga. End-
urútgáfa.
334 blaðsíður.
Vaka-Helgafell.
Verð: 2521 kr.
FÓTATAK TÍMANS
Kristín Loftsdóttir
Fótatak tímans lýsir á áhrifamikinn
hátt samskiptum fólks í einangr-
uðu samfélagi og veitir einstaka
innsýn í mannlegar tilfinningar: ást
og hatur, grimmd og hlýju, sak-
leysi og losta, líf og dauða. Allt
endurspeglast þetta í samskiptum
persónanna; fegurðin í sambandi
föður og dóttur, Ijótleikinn í afstöðu
samfélagsins til þeirra. Kristín
Loftsdóttir er ungur höfundur og
hefur með þessari bók skrifað
sögu sem er einstök í sinni röð.
211 blaðsíður.
Vaka-Helgafell.
Verð: 2480 kr.