Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Page 7

Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Page 7
Pýddar skáldsögur Á BLÁÞRÆÐI Victoria Holt Metsöluhöfundurinn Victoria Holt fer á kostum í þessari spennandi og rómantísku bók sem segir frá stúlku sem á hamingju aö fagna uns hún verður fyrir óvæntum ör- lögum. Fyrir henni opnast heimur sem er í senn heillandi og hættu- legur og hún veröur aö velja á milli öryggis og áhættu. Er hún reiðu- búin aö fórna öllu fyrir ástríöuna sem blossar upp í hjarta hennar? 231 blaðsíða. Vaka-Helgafell. SEIÐUR SLÉTTUNNAR Jean M. Auel Nýjasta bók metsöluhöfundarins Jean M. Auel sem kemur nú út samtímis á íslandi og í tuttugu öör- um löndum. Saga Aylu heldur hér áfram í Seiði sléttunnar, sem er einstök bók eins og heimurinn sem hún lýsir. Ayla og Jondalar ferðast saman um ókunnar sléttur Evrópu og kynnast veröld sem færir þeim bæði sársauka og ánægju. Þau færast nær sínu fjar- læga takmarki, að finna sér stað á jörðinni þar sem þau geta sest að og búið sér heimili. 739 blaðsíður. Vaka-Helgafell. í ÚLFAKREPPU Colin Forbes Colin Forbes er í röð vinsælustu spennusagnahöfunda samtímans. Óljós orðrómur berst um undir- heima stórborganna. Hryðjuverk eru í vændum, stórfelldari og ægi- legri en dæmi eru um. Margrét Thatcher forsætisráðherra felur Tweed, yfirmanni í bresku leyni- þjónustunni, að kanna þetta mál nánar, og nú bregður svo við að Rússar leggja honum lið, enda eiga þeir mikilla hagsmuna að gæta. 360 blaðsíður. Örn og Örlygur. Verð: 1690 kr. KÍNABÁLIÐ Eric Clark Skáldsaga í betri flokki, - betri en venjuleg spennusaga. Eric Clark er víðkunnur fyrir það að samfara hraðri atburðarás varðveitir hann vandaðan stíl og leggur sig fram um að skapa trúverðugar og eðli- legar sögupersónur. Gerist í Kína, þar sem menn verða leiksoppar stjórnmálasviptinga. Ungur vest- rænn verkfræðingur kemur til að hjálpa til, en í hatri bálsins verður hann allt í einu hundeltur. Aðeins ástin getur bjargað honum í líki djarfrar Kínakonu. 240 blaðsíður. Fjölvi/Vasa Verð: 1980 kr. HAFIÐ, HAFIÐ Iris Murdoch Iris Murdoch er einn þekktasti og merkasti rithöfundur Breta sem nú er uppi og fyrir þessa bók hlaut hún Booker-verðlaunin frægu. Þetta er saga af leikhúskónginum Charles Arrowby, sem yfirgefur glitheima Lundúnaborgar til að finna frið og einveru við hafið. En þar hittir hann fyrir konu sem átt hafði ást hans fyrir löngu, og frænda sinn sem á í höggi við óvætt úr djúpinu. Og einveran breytist fyrr en varir í leiksýningu, þar sem duldar langanir og tilfinn- ingar taka völdin. Iðunn. Verð: 2980 kr. BUNN ÉG VILDI GANGA í BUXUM Lara Cardella Fyrsta skáldsaga ungs höfundar hefur sjaldan vakið meiri athygli en þessi. Bókin, sem varð algjör met- sölubók á Ítalíu, hefur þegar komið út í fjölda landa og hvarvetna orðið metsölubók og tilefni heitra um- ræðna. Lara Cardella bregður log- andi brandi að rótum sikileyska karlmannasamfélagsins í lýsingu sinni á uppvexti og þroska Annettu, stúlkunnar sem vill af- neita hefðbundnu hlutverki kon- unnar og ganga í buxum, en upp- reisn hennar verður skammlíf og afleiðingarnar átakanlegar. Iðunn. Verð: 2280 kr. HÆTTUSPIL Jerzy Kosinskii Þýðandi: Gísli Þór Gunnarson Það sem Bítlarnir gerðu fyrir popptónlist gerði Jerzy Kosinskii fyrir bókmenntir. Höfundur „Skræpótta fuglsins“, og „Being There“ fer hér á kostum er hann lýsir hremmingum dáðustu tón- smiða samtímans, sem þurfa að gjalda dýru verði fyrir frægð og frama. 320 blaðsíður. Trúbadorforlagið. Dreifing: Fjölvi. Verð: 2200 kr. Kilja: 1500 kr. LEIÐBEININGAR FYRIR KONUR UM FRAMHJÁHALD Carol Clewlow Áhrifamikið og umtalað skáldverk, leiftrandi af bitru háði sem fléttað er djúpri samkennd og sársauka, bók um nútímakonur sem njóta frelsis til að elska og frelsis til að þjást, eiga ástmenn sem eru ófrjálsir og bundnir og valda þeim kvölum og unaði, konur sem eru elskaðar og sviknar. Rose og vin- konur hennar eru sterkar og sjálf- stæðar, en jafnfrámt tilfinninga- næmar og auðsærðar undir niðri, hamingjusamar í forboðinni ást sinni og sælar í þjáningu sinni. Iðunn. Verð: 2480 kr.

x

Íslensk bókatíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslensk bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1846

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.