Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Side 9
Pýddar skáldsögur
Q
BLEKSPEGILLINN - SÖGUR
Jorge Luis Borges
Þýðandi: Sigfús Bjartmarsson
Safn smásagna eftir einn merki-
legasta höfund aldarinnar. Grunn-
tónninn í þeim er seiðmagnaður
og suðuramerískur, þær eru dul-
úðugar, fyndnar og spennandi.
Höfundur leikur sér að mörkum
draums og veruleika og skáld-
skapar og fræða og honum eru
hugfólgnar hverskyns furður og
sjónhverfingar. Bókin er í nýrri rit-
röð öndvegisbókmennta í kilju-
broti, Syrtlum.
119 blaðsíður.
Mál og menning.
Verð: 1880 kr.
TIL AMERIKU
Antti Tuuri
Þýðandi: Njörður P. Njarðvík
Erkki Hakala hefur flækst í þvílíka
fjármálaóreiðu og skattavanskil,
að hann sér þann kost vænstan
að flýja undan yfirvofandi málsókn
og réttarhöldum. Hann kemur mik-
illi fjárfúlgu undan og stingur af
með fulla tösku af peningum. Leið
hans liggur til Florida sem er orðin
eins konar griðastaður finnskra
skattsvikara. En Ameríka reynist
Erkki Hakala engin paradís. Höf-
undurinn hlaut bókmenntaverð-
laun Norðurlandaráðs 1985.
304 blaðsíður.
Setberg
Verð: 2750 kr.
EVA LUNA SEGIR FRÁ
Isabel Allende
Þýðandi: Tómas R. Einarsson
23 smásögur um jafnmörg tilbrigði
ástarinnar. Hér segir af skugga-
legum stigamönnum og háttprúð-
um hefðarmeyjum sem elskast
með ærslum og glæframönnum
sem stíga í vænginn við annálaðar
sómakonur, tinandi gamalmenni
hefja upp langþráð bónorð,
mæðgur keppa um hylli farand-
söngvara, draumar rætast og
skýjaborgir hrynja . . . Fjörmikil
frásagnarlist, erótík, húmor og
hlýja.
218 blaðsíður.
Mál og menning.
Verð: 2980 kr.
NJÓSNARINN SEM KOM INN
ÚR KULDANUM
John le Carré
Páll Skúlason þýddi
Þegar Njósnarinn sem kom inn úr
kuldanum, eftir John le Carré, kom
út árið 1963 kvað við nýjan tón í
njósnasögum. Togstreita og skær-
ur stórveldanna urðu kaldar og
ómanneskjulegar, tilgangurinn
helgaði meðal þeirra og engar
leikreglur voru í heiðri hafðar. Bók-
in var upphaflega gefin út á ís-
lensku vorið 1965 og er við hæfi
að gefa þessa mögnuðu sögu út á
ný nú þegar kalda stríðinu er lokið.
202 blaðsíður.
Almenna bókafélagið.
Verð: 2322 kr.
IN A G I B
IM A H F Ú Z
HíRflttflR
[mrm:
i
MÍRAMAR
Nóbelsskáldið Nagíb Mahfúz
Þýð.: Sigurður A. Magnússon
Gömul grisk kona rekur gistiheim-
ilið MÍRAMAR í Alexandríu. Það
ber merki um fornan glæsibrag,
þótt það sé nú í nokkurri niður-
níðslu. Utan sumartímans er erfitt
að fá viðskiptavini, en þennan vet-
ur hýsir gistiheimilið fimm gesti, og
fjallar sagan um samband þeirra
við þjónustustúlkuna, hina fögru
bóndadóttur Zóhru.
Með heilbrigðu stolti sínu verður
hún miðdepill í mikilli flækju er
snýst um ástir, völd og auðæfi.
216 blaðsíður.
Setberg.
Verð: 2380 kr.
EKKI ER ALLT SEM SÝNIST
Jeffrey Archer
Bókin er í íslenskri þýðingu Björns
Jónssonar. Hún hefur að geyma
12 sögur sem bera þess vitni að
höfundurinn er snillingur í að nota
þekkta atburði og flétta óvænta at-
burðarás inn í þá. Þetta er ein vin-
sælasta bók Jeffrey Archer og í
henni koma glögglega fram hæfi-
leikar hans til að halda lesendum
sínum í spennu og koma þeim sí-
fellt á óvart.
187 blaðsíður.
Fróði hf.
Verð: 1760 kr.
ÁSTARORÐ
Danielle Steel
Oliver Watson hefur unnið kapp-
samlega að því að byggja sér ör-
uggan heim. En skyndilega virðist
stoðunum kippt undan honum. Eft-
ir átján ára hjónaband, sem Oliver
hafði talið fullkomið, ákveður Sara,
eigikona hans að yfirgefa fjölskyld-
una. Oliver stendur einn eftir með
þrjú börn og vandamál sem hann
verður að takast á við. En lífið
heldur áfram og mörg verður raun-
in áður en úr rætist.
190 blaðsíður.
Setberg.
Verð: 1680 kr.
DULD
Stephen King
Duld nefnist á frummálinu „The
Shining“ og er ein þekktasta skáld-
saga bandaríska spennusagna-
höfundarins Stephen King. Karl
Birgisson þýddi bókina. Sagan
fjallar um fjölskyldu sem tekur að
sér húsvörslu á afskekktu fjalla-
hóteli þar sem fjölskyldufaðirinn
ætlar sér að vinna að ritstörfum.
En margt fer öðruvísi en ætlað er.
Gerð hefur verið kvikmynd eftir
sögunni þar sem Jack Nicholson
fór með aðalhlutverkið.
420 blaðsíður.
Fróði hf.
Verð: 1980 kr.