Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Síða 11
Þýddar skáldsögur
n
RÉTTARHÖLD REIÐINNAR
J.A. Jance
Körfuboltaþjálfari háskólaliðs
finnst myrtur og margslungin at-
burðarás hefst. Það eru ekki marg-
ar konur í „töffaradeild“ spennu-
sagnanna, en J.A. Jance slær
strákunum við.
200 blaðsíður.
Líf og saga.
Verð: 2390 kr.
EFTIRFÖRIN
Duncan Kyle
Árið 1941 öslar orrustuskipið
Prince of Wales vestur um haf
gegn stormi og stórsjóum, meðan
kafbátahernaður Þjóðverja er í al-
gleymingi. Maðurinn, sem er far-
þegi í þessari ferð, getur einn síns
liðs unnið eða tapað stríðinu fyrir
Breta. Mesta hættan steðjar að úr
lofti, því að vestan hafs bíða þrír
menn eftir tækifæri til þess að
greiða banahöggið af hálfu Þjóð-
verja. Þegar orrustuskipið nálgast
áfangastað hefur flugvél sig á loft
og banvænn leikur hefst fyrir al-
vöru.
211 blaðsíður.
Hörpuútgáfan.
ANNALÍSA
Ib. H. Cavling
Enn á ný kemur út bók eftir hinn
sívinsæla danska höfund, Ib. H.
Cavling, sem vart þarf að kynna
íslenskum lesendum, slíkar eru
vinsældir hans hér á landi. Anna-
lísa er sextán ára og býr við
þröngbýli heima hjá foreldrum sín-
um. Hún vill allt til vinna til að þau
geti fengið stærri íbúð. Hún ræður
sig til starfa á lögfræðiskrifstofu
sem sér um úthlutun leiguíbúða.
Þar lendir hún í klónum á kven-
sömum lögmanni með vafasamt
mannorð. . .
192 blaðsíður.
Hildur.
Verð: 1885 kr.
VERNDARGRIPUR SETS
Sara Hylton
í þessari nýju bók Söru Hylton er
spenna frá fyrstu til síðustu blað-
síðu. Kathryn St. Claer, dóttir forn-
leifafræðings, er tvær persónur.
Að deginum er hún ensk, elst upp
á sveitasetri í Englandi. En á næt-
urnar lifir hún í endurteknum
draumum lífs og dauða fornrar
egypskrar prinsessu. - Við forn-
leifauppgröft í Egyptalandi kemur í
Ijós að Kathryn hefur í draumum
sínum lifað atburði sem gerðust
fyrir þúsundum ára.
244 blaðsíður.
Hildur.
Verð: 1900 kr.
DAUÐADÓMUR
Jack Higgins
KGB réði hryðjuverkamanninn
Frank Barry til þess að ræna nýj-
asta leynivopni NATO-herj-
anna . . . Eini maðurinn sem gæti
hindrað ránið var Martin Brosnan,
IRA-skæruliði og liðþjálfi úr Víet-
nam-stríðinu. Hann var hins vegar
dauðadæmdur í hinu illræmda
fangelsi á Belle-eyju, sem var
rammlega víggirt og varin 10 mílna
straumröst, sem sleppti engu sem
í hana féll. - Martin ákvað samt að
gera flóttatilraun ásamt samfanga
sínum. í þessari bók fer meistarinn
Higgins á kostum.
229 blaðsíður.
Hörpuútgáfan.
ERLINO POULSEN
JÁTAÐU
ÁST ÞÍNA
JÁTAÐU ÁST ÞÍNA
Erling Poulsen
Robert Barker vann ásamt félög-
um sínum og fjölskyldum þeirra að
stóru þróunarverkefni í Afríku, þar
sem hann bjó með Beötu, barns-
hafandi eiginkonu sinni. Hin und-
urfagra Afríka sem hafði verið æv-
intýraheimur þeirra og paradís,
breyttist skyndilega í ógnvekjandi
martröð. - í þessari nýju bók Erl-
ings Poulsens eru tvær ástarsög-
ur. Önnur gerist að hluta í hinni
leyndardómsfullu Afríku og hin á
grísku eyjunni Krit. Þetta eru
spennandi ástarsögur úr dularfullu
og framandi umhverfi.
176 blaðsíður.
Hörpuútgáfan.
BofUV fáísbeití
Stúlkan
á ströndinni
STÚLKAN Á STRÖNDINNI
Bodil Forsberg
Hjúkrunarkona finnst myrt. Arvid
Holm ræðismaður er ákærður fyrir
morðið. Björn, sonur hans, er eftir-
lýstur sem vitni í málinu. Hann
mátti ekki til þess hugsa að vitna
gegn föður sínum, sem hafði verið
besti vinur hans og félagi. Honum
tekst að dyljast með hjálp vinkonu
sinnar - stúlkunnar á ströndinni -
sem var reiðubúin að fórna sér fyr-
ir hann. - Þetta er viðburðarík og
spennandi ástarsaga um ung-
menni og fjölskyldur þeirra, einnig
spillingu og undirferli sem þróast í
skjóli auðs og frægðar.
176 blaðsíður.
Hörpuútgáfan.
HAMINGJUHJARTAÐ
Eva Steen
Hún er rekin úr ballettskólanum,
sem hún hefur verið í, vegna
kunnáttu- og agaleysis, og fer því
til London, þar sem hún gerist
þjónustustúlka hjá fjölskyldu einni,
og gætir lítillar stúlku. Á leiðinni til
London kynnist hún ungum manni,
sem sýnir henni mikinn áhuga. í
London fær hún nýtt tækifæri til að
æfa og stunda ballettdans, og allt
virðist bjart. En ungi maðurinn úr
flugvélinni á eftir að birtast aftur.
176 blaðsíður.
Skuggsjá.