Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Page 12
79
Þýddar skáldsögur
FÓRNFÚS MÓÐIR
Else-Marie Nohr
Hún hefur aldrei verið mikið fyrir
börn, en í fríi sínu verður hún ást-
fangin af manni nokkrum og kynn-
ist lítilli dóttur hans, sem er hjart-
veik og bíður eftir því að komast
undir læknishendur. Hún verður
smám saman hrifin af litlu stúlk-
unni, en það var hún ekki í upp-
hafi. Litla stúlkan saknar móður
sinnar, sem hefur verið handtekin
vegna njósna, og faðir hennar er
einnig grunaður um njósnir.
176 blaðsíður.
Skuggsjá.
KLÓM.
Charles Garvice SÖGUSAFN HELMIIANNA
í VARGAKLÓM
Charles Garvice
í vargaklóm er eftir hinn vinsæla
breska skáldsagnahöfund Charles
Garvice, en eftir hann hefur Sögu-
safnið gefið út margar skáldsögur,
sem notið hafa mikiila vinsælda.
Þar má t.d. nefna: Húsið í skógin-
um, Ættarskömm, Seld á uppboði,
í örlagafjötrum og Rödd hjartans. í
vargaklóm er ósvikin og viðburða-
rík ástarsaga eins og aðrar bækur
þessa vinsæla höfundar.
266 blaösíður.
Sögusafn heimilanna.
Verð: 1480 kr.
í DAG HEFST LÍFIÐ
Erik Nerlöe
Aðeins sautján ára gömul er hún
að verða fræg og rík. Og margt er
að gerast í lífi hennar. Hún fær
tækifæri sem söngkona; hún verð-
ur ástfangin; hún hittir móður sína,
sem hún hefur aldrei þekkt, en
hefur svo oft dreymt um. Hún er
vinsæl og öfunduð, og hún er
grunuð ranglega um afbrot. Og
þegar hún reynir að hjálpa unga
manninum, sem hún elskar, neyð-
ist hún til að flýja með honum eftir-
lýst og elt af lögreglunni.
176 blaðsíður.
Skuggsjá.
Mún kom sem gestur
Edna Lee
HÚN KOM SEM GESTUR
Edna Lee
Ung stúlka frá N-Ameríku gerist
kennslukona á gömlu óðalssetri í
einu af Suðurríkjunum. Hana órar
ekki fyrir því sem bíður hennar í
framtíðinni. Hún á að kenna ung-
um aðalsmannssyni, en flækist inn
í meinleg örlög þess fólks, sem
hún á að þjóna. Hún kom sem
gestur er viðburðarík og spenn-
andi saga um ástir og örlög, saga,
sem lesendur Sögusafnsins kunna
örugglega að meta.
282 blaðsíður.
Sögusafn heimilanna.
Verð: 1580 kr.
ÆVINTÝRI í MAROKKÓ
Barbara Cartland
Nevada Van Arden var bæði mjög
falleg og vellrík, og hún naut þess
að kremja hjörtu ungu mannanna,
sem hændust að henni unnvörp-
um. Tyrone Strome varð ævareið-
ur, þegar hann komst að raun um,
hvernig hún fór með aðdáendur
sína, og hve laus hún var við alla
tillitssemi og hjartahlýju. Hann
ákveður að veita henni ærlega
ráðningu. Og hann hefur einnig
áhuga á því að finna kvenmann-
inn, sem hann er svo viss um að
felur sig bak við þessa kaldrana-
legu ytri skel.
184 blaðsíður.
Skuggsjá.
SKRIÐAN
Desmond Bagley
íslensk þýðing eftir Gísla
Ólafsson
Desmond Bagley er íslenskum
lesendum að góðu kunnur, þar
sem bækur hans hafa verið þýdd-
ar á íslensku og notið mikilla vin-
sælda. Fyrsta skáldsaga hans
Gullkjölurinn fékk mjög góða
dóma, en með Fjallavirkinu sló
hann í gegn og varð einn af dáð-
ustu skáldsagnahöfundum okkar
tíma. Skriðan er ein af skemmti-
legustu sögum Bagleys, ævintýra-
leg og spennandi.
256 blaðsíður.
Suðri.
Verð: 1580 kr.
í SKUGGA FORTÍÐAR
Theresa Charles
llona Lantivet var dularfull í augum
samstarfsfólks síns. Engu þeirra
datt í hug, að hún skrifaði spennu-
sögur í frítíma sínum, eða að þessi
„Nikulás“, sem hún átti að vera trú-
lofuð, væri aðeins til í hugarheimi
hennar. Þegar dýrmæt skjöl hverfa
á skrifstofunni, virðist grunur vera
felldur af ásettu ráði á llonu. Henni
til mikillar furðu og andúðar er hún
sökuð um að tengjast óvinanjósn-
urum . . . og að tengjast raunveru-
legum manni að nafni Nikulás.
200 biaðsíður.
Skuggsjá.
MARTRÖÐ Á MIÐNÆTTI
Sidney Sheldon
Sidney Sheldon, sem er mest
lesni skáldsagnahöfundur í
Bandaríkjunum, sendir nú frá sér
nýja skáldsögu og tekur upp þráð-
inn um Catherine Douglas úr bók-
inni Fram yfir miðnætti. Það er
grískur auðjöfur, Demiris, sem hef-
ur örlög hennar í hendi sér, en
hann þarf einnig að afmá spor
sem ekki mega sjást. Atburðarásin
er hröð og spenna mikil, því öll
meðul eru notuð til að koma fram
vilja sínum.
Bókaforlag Odds Björnssonar
Verð: 2140 kr.