Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Side 22
97
Barna- og unglingabækur
ÆVINTÝRASNÆLDUR FYRIR
BÖRN
Sögumaður: Heiðdís Norðfjörð
Ævintýri H.C. Andersen, m.a.:
Ljóti andarunginn, Svínahirðirinn,
Hans klaufi, Litla stúlkan með eld-
spýturnar, Hafmeyjan litla. Ævin-
týri úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar,
m.a. Búkolla, Grámann í Garðs-
horni, Gilitrutt, Hlynur kóngsson.
Einnig mörg fleiri sígild ævintýri,
m.a. Ævintýri og sögur eftir Heið-
dísi Norðfjörð. - Barnasögur á
snældum njóta stöðugt meiri vin-
sælda. Vandaður flutningur Heið-
dísar Norðfjörð glæðir þær lífi og
eykur þannig gildi þeirra.
Hörpuútgáfan.
SNJÓHJÓNIN SYNGJANDI
Guðjón Sveinsson
Guðjón Sveinsson er löngu þekkt-
ur fyrir barna- og unglingabækur
sínar. Nú kemur frá honum ævin-
týri, sem pabbinn segir fjórum
dætrum sínum síðustu dagana fyr-
ir jól. Þetta er ævintýri með söngv-
um eins og þau gerast best. Bókin
skiptist í sjö kafla og hentar því vel
til að róa óþolinmóðar sálir á jóla-
föstunni. í bókinni eru myndskreyt-
ingar eftir Pétur Behrens, sem
auka á hugmyndaflugið.
Bókaforlag Odds Björnssonar.
Verð: 1500 kr.
Margrét E. Jónsdóttir
C
DÝRIN í GARÐINUM
DÝRIN í GARÐINUM
Margrét E. Jónsdóttir
Þessi saga fyrir yngstu lesendurna
gerist í húsagarði í borginni og þar
segir frá íbúum hans, starranum
Trausta, hagamúsinni Silla og
honum Depli litla, auðnutittlingn-
um. Önnur dýr koma líka við sögu,
kötturinn Bella, sem býr í næsta
húsi, og svo páfagaukurinn Rósa-
lind, og saman lenda þau í margs
konar ævintýrum. Anna V. Gunn-
arsdóttir myndskreytti.
124 blaðsíður.
Selfjall (dreifing Mál og menn-
ing).
Verð: 1180 kr.
Barnavinurínn gódi
SICURBJORN SVEINSSONi
GLÓKOLLUR
Lítíð lærdómsævintýri
GLÓKOLLUR
Sigurbjörn Sveinsson
Þetta ævintýri eftir hinn góðhjart-
aða barnavin í Vestmannaeyjum
er alþekkt. Það er sígild barnabók.
Það segir frá bóndasyninum sem
fór út í heim og lenti í ótal mörgum
þrautum. Hann þurfti að berjast við
víkinga og tígrisdýr, risa og mann-
ýg naut. En alltaf hafði hann sigur,
af því að hann kunni margföldun-
artöfluna. Og síðast fékk hann
meira að segja að eiga hana Fjólu
kóngsdóttur af því að hann var svo
menntaður.
32 blaðsíður.
Fjölvi/Vasa.
Kilja: 680 kr.
KJARNÓ:
I »
KAFTEINNISLANDI
Hvernlg Fúii Árnason rmré hat|a dagiini!
KAFTEINN l'SLAND
Kjarnó Kjartan Arnórsson
Hér kemur ný íslensk þjóðhetja
fram á sjónarsviðið. Hann er ofur-
kappi (Súperman) sem kallast
Kafteinn ísland og sá hefur nú
krafta í kögglum. í raun og veru er
hann þó aðeins réttur og sléttur
Fúsi og mesti væskill og dusil-
menni. En þegar ættjörðin er í
hættu frá bófum og ófreskjum,
koma hinir fornu Guðir (Óðinn og
Þór) og skjóta eldingum svo Fúsi
fær hugdirfsku og kraft.
32 blaðsíður.
FjölviA/asa.
Kilja: 680 kr.
JÓNA AXFJÖRD:
DOLLI DROPI
á rambi í
REYKJAVÍK
DOLLI DROPI - Á RAMBI í
REYKJAVÍK
Jóna Axfjörð
Dolli á heima í Skýjaborg og svífur
hátt um himin, en þegar það gerir
skúr, lætur hann sig rigna níður á
jörðina og heimsækir krakka á hin-
um ólíkustu stöðum jarðar. Hér
kemur nú fyrsta Fjölvabókin um
Dolla dropa. Auðvitað heimsækir
hann fyrst höfuðborgina Reykja-
vík, heilsar upp á börnin og end-
urnar á Tjörninni, Alþingishúsið og
barnaheimilin.
32 blaðsíður.
FjölviA/asa.
Kilja: 680 kr.
LITLA FLUGAN
Guðrún Kristín Magnúsdóttir
íslensk myndskreytt bók fyrir
yngstu börnin. Höfundurinn Guð-
rún Kristín er fræg fyrir það, að
hún fékk 1. verðlaunin hjá Borgar-
leikhúsinu fyrir skrýtna leikritið
sem öllum fannst svo skemmtilegt.
Hún er ekki síður hugkvæm í
barnabókum. í sögu litlu flugunnar
er horft á heiminn og fólkið frá
sjónarhóli lítillar húsflugu. Önnur
bók í Bangsaflokknum heitir: -
Hver er hann þessi Jakob?
28 blaðsíður.
FjölviA/asa.
Kilja: 580 kr.