Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Qupperneq 26
2r& barna- og unglingabækur
HVAÐ ER KLUKKAN?
VILTU VERA MEÐ MÉR?
íslenskur texti: Stefán
Júlíusson
Þetta eru harðspjaldabækur í
bókaflokknum „LEIKUR AÐ ORÐ-
UM“ með framúrskarandi litríkum
og skemmtilegum teikníngum. Bók
sem lítil böm, uppalendur og fóstr-
ur hafa bæði gagn og gaman af.
Letrið á bókunum er skýrt og
greinargott. svo auðvelt er að lesa
það.
Setberg.
Verð: 590 kr. hvor bók.
KOMUM FINNUM FJÁRSJÓÐ
Janosch
Litla tígrisdýrið og litli björninn eru
perluvinir. Þá dreymir um heimsins
mestu hamingju - að verða ríkir.
Þeir leita því víða að fjársjóði. Eftir
mikil ævintýr komast þeir að raun
um að fjársjóðurinn er hvorki fólg-
inn í jörðu eða djúpt á hafsbotni,
heldur í vináttu þeirra tveggja.
Þetta er falleg saga sögð í máli og
myndum. Á íslensku hefur áður
komið út eftir Janosch bókin Ferð-
in til Panama.
Bókaútgáfan Bjartur.
Verð: 880 kr.
ARI LÆRIR AÐ SYNDA
GULLBRÁ OG BIRNIRNIR ÞRÍR
íslenskur texti: Stefán
Júlíusson
I þessum bókum, sem eru í bóka-
flokknum: VILTU LESA MEÐ MÉR
eru sums staðar myndir I stað
orða. Þær eru af persónum, stöð-
um og hlutum sem koma fyrir I
sögunni. Sá sem les fyrir bamið
lætur það skoða myndirnar og
segja hvað þær tákna. Þegar sag-
an er lesin og kemur að mynd í
stað orðs er stansað og barnið lát-
ið benda á myndina og segja orðið
sem hún táknar. Börnin læra þetta
fljótt. Það skerpir athyglina.
Setberg.
Verð: 590 kr. hvor bók.
STEFÁN BRAGI FER í
FLUGVÉL
Hope Millington
Saga um lítinn strák, Stefán
Braga, sem fer í flugferð með for-
eldrum sínum. Margt skemmtilegt
og nýstárlegt ber fyrir augu um
borð í flugvélinní og Stefán Bragi
lendir í ýmsum uppákomum. Hann
fær meðal annars að heimsækja
flugmennina í stjórnklefa vélarinn-
ar. Þeir taka vel á móti honum og
kynna honum leyndardóma flugs-
ins. Gunnlaugur Johnson mynd-
skreytti bókina.
Fróði hf.
Verð: 380 kr.
ÆVINTÝRABÓKIN
Þýðing: Rúna Gisladóttir
Áhugaverð og óvenjuleg harð-
spjaldabók með stuttum sögum og
litríkum myndum. í henni eru end-
ursögð ævintýrin: Stígvéla-köttur-
inn, Hans og Gréta, Frú Hulda,
Hugrakki skraddarinn, Dvergurinn,
Froska kóngurinn, Litlu systkinin,
Kiðlingarnir sjö, Rauðhetta.
Setberg.
Verð: 690 kr.
í upphafi
SAGNABIBLÍAN
Penny Frank, Tony Morris og
John Haysom myndskreyttu
Sagnabiblían heitir nýr mynda-
bókaflokkur fyrir 5-8 ára börn.
Fyrstu fjórar bækurnar heita í upp-
hafi, Nói og flóðið, Drengurinn Jó-
hannes og Bernska Jesú. Sögurn-
ar gefa góða mynd af Biblíunni og
er hver bók sjálfstæður hluti þeirr-
ar „sögu" sem Biblían inniheldur.
24 blaðsíður.
Fíladelfía - Forlag.
Heft: 250 kr.
BABAR FER I FERÐALAG
BABAR FER Á FÆTUR
Þýðing: Þrándur Thoroddsen
Áratugum saman hefur fíllinn
BABAR verið í uppáhaldi hjá börn-
um víða um heim. Bækurnar tvær
eru harðspjaldabækur, litprentað-
ar. Allt næsta ár verða vikulegir
þættir um BABAR og félaga I ís-
lenska ríkissjónvarpinu. Fíllinn
BABAR er skemmtilegur og
ómissandi félagi - litríkur í orðsins
fyllstu merkingu.
Setberg.
Verð: 490 kr. hvor bók.
KALLI - ÞRAMMI - MARGOT -
DÁTI
James Driscoll
Fyrstu fjórar bækurnar I bóka-
flokknum um skófólkið. Þetta eru
einstakar barnabækur þar sem
gamlir skór fá líf og verða að
ógleymanlegum persónum. Þau
búa í skóborg og þar gerast ýmsir
hlutir sem svipar til atburða er ger-
ast I venjulegum borgum. Skófólk-
ið hefur að undanförnu komið fram
á Stöð tvö í þáttum barnanna og
vakið mikla hrifningu.
24 blaðsíður hvor bók.
Skjaldborg hf.
Kilja: 250 kr.