Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Síða 30
30 Ævisögur og endurmmningar
ÁSGEIR JAKOBSSON
BÍLDUDALSKÓNGURINN
ATHAFNASAGA PÉTURSITHORSTEINSSONAR
MYNDIR ÚR LÍFI
PÉTURS w
EGGERZ #
FVRRVEHANUl SENDIHEHRA
hcssi liók (jíillar um forna
ifitiáj pegársainfélagld var
mdiaö af gjöróllkum við-
iiorfum frá l»ví sem núéru
ríkjaiKli. .
Er þc’lia forviinilcgi
0« áliugaven?
SKUGGSJÁ
KIWARI
Á fARALDSrÆTI
MINNINGAR ITiA KCNNARASTARfl
AUÐUNN BRAGI
SVEINSSON
UVhUW
BÍLDUDALSKÓNGURINN
Athafnasaga Péturs J.
Thorsteinssonar
Ásgeir Jakobsson
Þetta er saga Péturs J. Thor-
steinssonar, sem var frumherji í at-
vinnulífi þjóðarinnar á síðustu ára-
tugum nítjándu aldar og fyrstu ára-
tugum þeirrar tuttugustu; saga
manns, sem vann það einstæða
afrek að byggja upp frá grunni öfl-
ugt sjávarpláss; hetjusaga manns,
sem þoldi mikil áföll og marga
þunga raun á athafnaferlinum og
þó enn meiri í einkalífinu.
400 blaðsíður.
Skuggsjá.
Á LANDAKOTI
Dr. Bjarni Jónsson yfirlæknir
Þetta er saga af merkri stofnun,
m.a. um líknarstarf systra í nærri
heila öld. Margir af fremstu lækn-
um landsins koma hér við sögu.
Dr. Bjarni Jónsson yfirlæknir var
um áraraðir fremsti sérfræðingur
íslendinga í bæklunarsjúkdómum
og meðferð höfuðslysa. Hann seg-
ir meðal annars í formála bókar-
innar: „Ég hef unnið á þessari
stofnun alla mína læknisævi . . .
Hafa götur mínar og systranna
legið saman i nærri hálfa öld“.
Bókina prýða 60 Ijósmyndir.
256 blaðsíður.
Setberg.
Verð: 2900 kr.
MYNDIR ÚR LÍFI PÉTURS
EGGERZ, FYRRVERANDI
SENDIHERRA
Gaman og alvara
Pétur Eggerz
Pétur Eggerz, fyrn/erandi sendi-
herra, rekur hér minningar sínar.
Hann segir fyrst frá lífi sínu sem lít-
ill drengur í Tjarnargötunni í
Reykjavík, þegar samfélagið var
mótað af allt öðrum viðhorfum en
nú tíðkast. Síðan fjallar hann um
það, er hann vex úr grasi og
ákveður að nema lögfræði, og síð-
an fer hann til starfa í utanríkis-
þjónustunni og gerist sendiherra.
216 blaðsíður.
Skuggsjá.
ÆVIBROT
Dr. Gunnlaugur Þórðarson
Gunnlaugur hefur ávallt verið
hress í fasi, talað tæpitungulaust -
komið til dyranna eins og hann er
klæddur. Nokkur kaflaheiti, tekin
af handahófi, segja meira en mörg
orð: Að eiga mikilsvirtan föður -
Rekinn úr skóla - Hjá Óskari Hall-
dórssyni - Smiður á Lögbergi - Að
upplifa dauðann - Ritari forseta fs-
lands - Rödd að handan - Örlaga-
rík vísindamennska - Húðstrýktur
fyrir kirkjudyrum. Fjöldi Ijósmynda
prýðir bókina.
280 blaðsíður.
Setberg.
Verð: 2900 kr.
KENNARI Á FARALDSFÆTI
Minningar frá kennarastarfi
Auðunn Bragi Sveinsson
Þetta er þáttasafn Auðuns Braga
Sveinssonar, þar sem hann segir
frá 35 ára kennarastarfi sínu í öll-
um hlutum landsins. Hann greinir
hér af hreinskilni frá mikium fjölda
fólks, sem hann kynntist á þessum
tíma, bæði til lofs og lasts. Hann
segir hér frá kennslu sinni og
skólastjórn á fimmtán stöðum,
m.a. á Akranesi, Hellissandi, Bol-
ungarvík, Ólafsfirði, Skálholti,
Kópavogi og í Ballerup í Dan-
mörku.
344 blaðsíður.
Skuggsjá.
Priscilla eiginkona hans rekur hugljúfar
stundir og vandamálin af hreinskilni.
ELSKU ELVIS
Priscilla Presley
Stór ævisaga rokkkóngsins, skráð
af eiginkonu hans Sillu. Hún var
kornung telpa, aðeins 14 ára, þeg-
ar hún kynntist honum. Það varð
ást við fyrstu sýn. Þau elskuðust
heitt, en Elvis vildi varðveita hrein-
leika hennar og ferska ást. Enginn
vissi eins og hún allar leyndustu
hugrenningar hans. Hún lýsir á
hreinskilinn og trúverðugan hátt lífi
og tónlistarferli, furðulegum uppá-
tækjum í leik og starfi, glæstum
sigrum og döprum dauða.
288 blaðsíður.
Fjölvi/Vasa.
Verð: 2280 kr.
BUBBI
Silja Aðalsteinsdóttir og
Ásbjörn Morthens
Lifandi og kraftmikil bók um rokk-
stjörnuna góðkunnu. Bubbi segir
frá bernsku sinni og uppvexti, mis-
heppnaðri skólagöngu og litríkum
árum sem farandverkamaður, frá
árunum í rokkinu en líka frá freist-
ingum dópsins, sorginni og ást-
inni. Um leið varpar bókin nýju
Ijósi á merkilegan þátt íslenskrar
menningar. Á annað hundrað Ijós-
myndir eru í bókinni, fjöldi texta er
birtur, og ítarleg plötu- og lagaskrá.
284 blaðsíður.
Mál og menning.
Verð: 2980 kr.
Kilja: 1980 kr.
HJÁLPARHELLAN
HETJUSAGA
Miep Gies/Alison Leslie Gold
Örlög Önnu Frank eru okkur hug-
leikin. í aðdáun á henni gleymdist
að gæta að því, hver gerði Frank-
fjölskyldunni mögulegt að felast
uppi á háalofti. Þau áttu sér hjálp-
arengil, unga hollenska stúlku
sem sá um alla aðdrætti af ótrú-
legri hjálpsemi og fórnfýsi. Á tím-
um skorts og skömmtunar lagði
hún sig í lífshættu til að útvega
þeim matvæli og aðrar nauðþurftir.
Minningar Miep Gies eru heillandi í
Ijúfmennsku hennar og mannúð.
240 blaðsíður.
Fjölvi/Vasa.
Verð: 2280 kr.