Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Page 45
Fræðibækur
A*
HAFRANNSÓKNIR
VIÐ ÍSLAND
II. Eftir 1937
Jón Jónsson
HAFRANNSÓKNIR VIÐ ÍSLAND
II.
Jón Jónsson
Síðara bindi af sögu hafrannsókna
við ísland og fjallar um tímabilið
1937 til okkar daga, en fyrra bindi
kom út 1988. Höfundur greinir frá
helstu þáttum hafrannsókna sl.
hálfa öld, s.s. eðlis- og efnafræði
sjávar, jarðfræði landgrunnsins,
fjallar um þátt plöntu- og dýrasvifs
í vistfræði hafsins, hryggleysingja
(rækju, humar), alla nytjafiska,
hvali og seli. Sagt er frá útfærslu
landhelginnar. Fjöldi korta og
mynda.
448 blaðsíöur.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
Verð: 4200 kr.
HEIMUR HÁVAMÁLA
Hermann Pálsson
í bókinni fjallar kunnur fræðimað-
ur, dr. Hermann Pálsson, um hið
forna kvæði Hávamál. Þau eru
meðal þeirra kvæða, sem íslend-
ingar hafa talið sér skylt að lesa,
bæði til að kynnast Óðni „hinum
háva“ og fræðast um mannleg
vandamál af vörum hans. Her-
mann telur rétt að lesa kvæðið í
Ijósi rita, sem skáldið kunni að
hafa numið á sínum tíma. Þetta er
fjórða bindi í flokknum íslensk rit-
skýring.
300 blaðsíður.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
Verð: 2750 kr.
SAGA ÍSAFJARÐAR
og Eyrarhrepps hins forna
Jón Þ. Þór
Fjórða og síðasta bindið af ritverki
Jóns Þ. Þórs: Saga ísafjarðar og
Eyrarhrepps hins forna nær yfir
tímabilið frá 1921-1945. Þar er
greint frá byggingu bæjarins, harð-
vítugum átökum og breytingum á
stjórn bæjarmála sem tíðum leiddu
til snarpra og íllvígra pólitiskra
átaka, skóla- og menningarmál-
um, atvinnulífi og margvíslegri fé-
lagsstarfsemi bæjarbúa og loks
byggð og búendum í Eyrarhreppi á
þessu tímabili.
380 blaðsíður.
Sögufélag ísfirðinga.
Verð 3750 kr.
SIÐFRÆÐI
PÁLLSKÚLASON
SIÐFRÆÐI
Páll Skúlason
Hvers konar líf er þess virði að því
sé lifað? Hvernig getum við tekist
á við spillinguna í heiminum?
Hvernig tökum við réttar ákvarð-
anir? í bókinni er fjallað um þessar
erfiðu spurningar á frumlegan og
nýstárlegan hátt. Kenningar sem
eiga að gagnast fólki til að átta sig
á því sem máli skiptir í lífinu og til
að gera sér Ijósar skyldur sínar og
réttindi. Vandað fræðirit á léttu og
lifandi máli og á erindi til alls
áhugafólks um betra siðferði.
256 blaðsíður.
Rannsóknastofnun í siðfræði /
Birtingur
Verð: 2500 kr.
LIFÐU í GLEÐI
Sanaya Roman
Lifðu í gleði var „færð“ Sanaya
Roman af eilífri veru kærleika og
Ijóss sem kallar sig Orin. í bókinni
leggur þessi fróði og umhyggju-
sami andlegi leiðbeinandi fyrir
skipulagða aðferð er gerir okkur
kleift að öðlast andlegan þroska
sem umbreytir daglegu lífi okkar,
hjálþar okkur að efla persónuleg-
an styrk og vakna til vitundar um
hver við erum. Með þessari bók
skipar Sanaya Roman sér á bekk
með hæfileikaríkum miðlum eins
og Jane Roberts og Edgar Cayce.
192 blaðsíður.
Nýaldarbækur.
Verð: 2490 kr.
LeiðarCjós til
auðugra tifs
Bók
Emmanuels
Inngangur eftir
BÓK EMMANÚELS
Pat Redegast og Judith
Stanton
Emmanúel er andleg vera sem tal-
ar til lesandans í gegnum miðil. í
bókinni deilir hann með lesandan-
um visku sinni og innsæi um
margvíslega þætti lífsins og svarar
mörgum áleitnum spurningum um
lífið og tilgang þess. Þessi fagur-
lega skrifaða og myndskreytta bók
verður hjartfólgin hverjum þeim
sem njóta vill eða færa vini að
gjöf.
288 blaðsíöur.
Nýaldarbækur.
Verð: 2490 kr.
UPPLYSINGIN
Á ÍSLANDI
Tíu rltgerölr
UPPLÝSINGIN Á ÍSLANDI
Tíu ritgerðir
Ritstjóri: Ingi Sigurðsson
Bókin er um áhrif upplýsingarinn-
ar, hinnar alþjóðlegu hugmynda-
stefnu, á íslandi sem voru mest
um 1770-1830. Auk yfirlitsritgerðar
ritstjóra, rita hann og átta aðrir
fræðimenn um: stjórnsýslu; refsi-
löggjöf og réttarfar í sakamálum;
atvinnumál; guðfræði og trúarlíf;
fræðslumál; fræðafélög og bókaút-
gáfu; bókmenntir; sagnfræði; nátt-
úruvísindi og landafræði. Bók
handa áhugamönnum um íslenska
sögu, ekki síst hugmyndasögu.
440 blaðsíður.
Hið íslenska bókmenntafélag.
Verð: 3500 kr.
Lýður Björnsson
Steypa lögð
Sagt frá mannvirkjum
úr steini og steypu
steinsmíð rís
SAFN
n as
IÐNSÖGU
IsiaaNBA
STEYPA LÖGÐ OG STEINSMÍÐ
RÍS
Safn til iðnsögu íslendinga V
Lýður Björnsson
Rakin er saga steinsteypunotkun-
ar, s.s. í íbúðar- og verslunarhús-
um, virkjunum, hafnargörðum,
brúm, götum, gangstéttarhellum
og rörum. Lýst er m.a. vinnuaðferð-
um og verkfærum múrara og brúar-
smiða. Hér er lífleg frásögn af bygg-
ingarefni sem fyrst var byrjað að
nota fyrir u.þ.b. einni öld, en varð
fljótt eitt algengasta byggingarefnið
og allsráðandi í mannvirkjagerð.
Bókin er prýdd fjölda mynda.
281 blaðsíða.
Hið íslenska bókmenntafélag.
Verð: 3500 kr.