Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Blaðsíða 46
Afí
Fræðibækur
‘Þorvaldur Qyífason
Almanna-
Hafiur
I. yfagfraði, stjómmáí og visindi
II. 'l’trðóolga, vtrðbótga
III. (jtngi kxónunnar
ÞV. ‘fjármál ríkisins
‘V. ‘Bankar, ptningar ly ve\tir
'VI, ‘l’innumarkaður
‘Vll. Htvinnuvtgir
'VIII. ‘Lrítnd viðskipti
IX. ‘fráútlöndum
X. Landshagir og íífskjör
ALMANNAHAGUR
Þorvaldur Gylfason
Safn 75 ritgerða um hagfræði og
efnahagsmál. Hér er brugðið birtu
á þrálátan efnahagsvanda ís-
lensku þjóðarinnar og lesendur
vaktir til umhugsunar um það, með
hvaða ráðum sé hægt að vinna
bug á vandanum til frambúðar.
Hér er blandað saman á skemmti-
legan og eggjandi hátt skarplegum
athugunum fræðimannsins og
djörfum tillögum um endurbætur í
stjórn efnahagsmála. Bók handa
almenningi og athafnamönnum.
458 blaðsíður.
Hið íslenska bókmenntafélag.
Verð: 3800 kr.
Kilja: 3300 kr.
MANNGERÐIR
Þeófrastos (um 372-287 f.Kr.)
fsl. þýð./inngangur eftir
Gottskálk Þór Jensson
Höf. var grískur heimspekingur.
Manngerðir er lýsing á þrjátíu mis-
munandi „sérkennum í siðum
manna“ sem ekki geta talist til fyr-
irmyndar. í örstuttum greinum er
útlistað hvað einkennir ólíkindatól-
ið, smjaðrarann, blaðrarann,
óþokkann, dindilmennið, smásál-
ina o.s.frv. í hverjum kafla felst
skilgreining á manngerðinni og út-
listun á hvernig hægt er að þekkja
hana í daglegu lifi.
190 blaðsíður.
Hið íslenska bókmenntafélag.
Verð: 1500 kr.
LOF HEIMSKUNNAR
Erasmus frá Rotterdam (1469)
ísl. þýð. e. Þröst Ásmundsson
og Arthúr B. Bollason, sem
einnig ritar inngang
Höf. var einn merkasti fræðimaður
á sinni tíð. Ritið er skopádeila þar
sem heimskan kveður sér hljóðs
og rekur hvernig guðir og menn
megi þakka henni allt það sem
einhvers er virði. Heimskan ríður
ekki við einteyming í bókinni en
undir býr þó mikilvægur boðskap-
ur um fegurra mannlíf og andlega
spekt sem hann hefur talið sam-
tímann skorta.
213 blaðsíður.
Hið íslenska bókmenntafélag.
Verð: 1500 kr.
■ i.tniMisniui tðnffKNiArtuoiiw
STEPHEN W. HAWKING
Saga tímans
HID iV I NZK A BÓKMEN.NTAFELAG
SAGA TÍMANS
Stephen W. Hawking
ísl. þýð. e. Guðmund
Arnlaugsson m. inng. e. Lárus
Thorlacius
Höfundur hefur leitt rannsóknir í
heimsfræði við Cambridgeháskóla
sem m.a. beinast að upphafi al-
heims í miklahvelli og endalokum
stjarna þegar þær hrynja undan
eigin þyngd í svokölluð svarthol.
Höf. leitar kenningar sem gæti fellt
saman afstæðiskenninguna og
skammtafræðina. Tilgátur höf. fela
í sér að tíminn eigi sér takmörk og
stærð alheimsins sé endanleg.
Bókin er skrifuð fyrir almenning.
289 blaðsíður.
Hið íslenska bókmenntafélag.
Verð: 1500 kr.
SAGA ÍSLANDS V BINDI
Ritstjóri: Sigurður Líndal
Fimmta bindi fjallar einkum um 15.
öldina þegar Englendingar gerast
mjög umsvifamiklir, en lenda síðan
í átökum við Þjóðverja. Danakon-
ungi tekst að lokum að tryggja yfir-
ráð sín. Sagt er frá eflingu kirkj-
unnar, veraldlegum umsvifum
hennar, trúarkenningum og menn-
ingarstarfi. Loks er það rakið
hvernig ísland kemur við sögu
landafundanna miklu. Þessu fylgir
svo bókmennta- og myndlistar-
saga tímabilsins. Mikill fjöldi
mynda prýðir bókina.
370 blaðsíður.
Hið íslenska bókmenntafélag.
Verð: 3500 kr.
Skálholt
Kirkjur
Hid nlcnilu bókmcnntaícLig
SKÁLHOLT II Kirkjur
Hörður Ágústsson, listmálari
Ritið fjallar um allar þekktar kirkjur
er stóðu í Skálholti frá öndverðu til
1956. Túlkaðar eru niðurstöður
fornleifarannsókna sem þar voru
gerðar 1954-58. Sbr. Skálholt I,
fornleifarannsóknir útg. 1988. Afl-
að er annarra tiltækra heimilda
s.s. byggingarleifa, naglfastra
muna, Ijós- og vatnslitamynda og
áður óbirtra ritheimilda. Á teikning-
um höfundar eru flestar kirkjurnar
endurgerðar utan og innan. Glæsi-
leg bók með 200 myndum og
teikningum.
Um 300 blaðsíður.
Hið íslenska bókmenntafélag.
Verð: 4400 kr.
Sigmund Freud
UNDIR OKI
SIÐMENNIN G AR
HU> EU>SIU MUl-MrAffUK
UNDIR OKI SIÐMENNINGAR
Sigmund Freud
íslensk þýðing og inngangur
eftir Sigurjón Björnsson
Aðalrit Freuds um menningarmál
og grípur á veigamiklum spurning-
um varðandi stöðu mannsins í
heiminum sem einstaklings og
samfélagsþegns. Maðurinn þráir
frelsi en samfélagið gerir kröfur
sem skerða frelsi hans. Hér sá
Freud grundvöll að sífelldum
árekstrum og togstreitu milli
manns og samfélags. Fá af ritum
Freuds hafa verið meira lesin og
meira rædd bæði til lofs og lasts.
87 blaðsíður.
Hið íslenska bókmenntafélag.
Verð: 1950 kr.
YOGI RAMACHARAKA
LEIÐ VITSMUNA
■B VP flHHi
GNANIYOGA - LEIÐ VITSMUNA
Yoga Ramacharaka
Þetta er fjórða bókin í ritröð ind-
verska sþekingsins Ramacharaka.
Yogafræði gefa fólki góð ráð um
það, hvernig megi stefna í hæðir til
andlegs þroska. Til þess eru raun-
ar til margar leiðir. Hér er sérstak-
lega fjallað um eina þeirra, sem
kallast Gnaniyoga, en það er leið
vitsmuna, skynsemi og rökvísi. Þá
hugleiða menn og gera sér grein
fyrir tilveru og eðli hluta. Við lifum í
heimi sem er gerður úr hugarorku.
208 blaðsíður.
Fjölvi/Vasa.
Kilja: 830 kr.