Bókasafnið


Bókasafnið - 01.02.1999, Síða 19

Bókasafnið - 01.02.1999, Síða 19
Hólmfríður Tómasdóttir Skylduskil á rafrænum gögnum Íög um skylduskil á prentuðu máli hafa gegnt veiga- miklu hlutverki í starfsemi þjóðbókasafna. Þau eru afar / nauðsynlegur stuðningur við varðveislu menning- I arsögulegs arfs hverrar þjóðar, arfs sem verður til með fjölbreytilegri útgáfu efnis sem endurspeglar meðal ann- ars efnahag, menningu og félagslegar athafnir hvers tíma. Allar slíkar heimildir þarf að varðveita svo lengi sem kostur er svo tiltækar séu til nota fyrir opinbera stjórnsýslu og sem rannsóknarefni fyrir komandi kynslóðir. Það er hlutverk þjóðbókasafna að framfylgja þessum lögum. Nú þegar fjöldi rafrænna rita og annarra upplýsingamiðla eykst stöðugt og rafrænar útgáfur koma í staðinn fyrir prent- aðar verður þörfin brýnni fyrir það að skylduskilalögin nái | einnig yfir þessi gögn. Vænta verður þess að þau skyldu- skilalög sem nú er unnið að verði það sveigjanleg að þau nái til allra tegunda þessara nútíma upplýsingagagna. Með hlið- sjón af þessari þróun ætti það að verða sjálfsagður þáttur í starfsemi þjóðbókasafna að safna þessum gögnum og veita aðgang að hinum flókna rafræna upplýsingaheimi. Þar sem aðföng og öll meðhöndlun þessara nýju miðla kalla á fjölda faglegra lausna, sem sameiginlegar eru öllum þjóðbókasöfnum sem bera ábyrgð á skilaskyldum safngögn- um, má segja að um sé að ræða alþjóðlegt verkefni. Nú þegar hafa nokkrar þjóðir hafið vinnu við aðföng á rafrænum gögn- um og er ætlun mín að vitna til leiðbeinandi verkefnis í þessum efnum sem unnið var á vegum Evrópusambandsins, einkum þess hluta sem varðar skilgreiningu á mismunandi tegundum rafrænna miðla og forsendur fyrir vali á þeim til aðfanga. Einnig verður minnst á fáein verkefni sem nú eru í gangi hjá nágrannaþjóðum okkar og í lokin sagt í stuttu máli frá örfáum tilraunaverkefnum sem unnin hafa verið hjá þjóðbókasafni Norðmanna. En af þeim gætum við sem best dregið nokkurn lærdóm. Fjölþjoðleg og norræn verkefni Innköllun á rafrænu upplýsingaefni er þegar hafin eða í und- irbúningi hjá fjölda þjóðbókasafna og leita stöðugt fleiri þeirra eftir stuðningi stjórnvalda til að móta lög um skyldu- skil sem ná yfir þessa fjölbreyttu miðla. Árið 1995 var á veg- um Evrópusambandsins en að frumkvæði CoBRA (,Cmnputer- ised Bibliographic Record Actiorí) unnið að verkefni til stuðn- mgs lausnar á sameiginlegum vanda evrópskra þjóðbókasafna undir heitinu ELDEP (Euroþean Legal Deþosit of Electronic Publications). Markmið verkefnisins var að skilgreina flokka rafræns efnis í þeim tilgangi að auðvelda mat á því hvað skynsamlegt væri að skilaskylda næði yfir. Flokkunin er einnig leiðbeinandi varðandi aðferðir við aðföng og með- höndlun gagnanna ásamt því að meta val á tæknilegum að- ferðum vegna varðveislu, aðgangs og bókfræðilegrar stjórn- unar. Lykilatriði í niðurstöðum ELDEP-verkefnisins voru á þá leið að ekki væri þörf á mismunandi skylduskilalögum fyrir rafræn gögn og þau hefðbundnu. Þörfin fyrir langtímavarð- veislu þeirra þyrfti að vera viðurkennd um allan heim og á- herslu ætti að leggja á að söfn, sem hefðu skilaskyldu, tækju við mikilvægum gögnum til varðveislu og aðgangur að þeim yrði tryggður fyrir komandi kynslóðir.1 Einnig var talið mik- iivægt að sett yrðu upp tilraunaverkefni varðandi meðhöndl- un gagnanna og að söfn deildu með sér þeirri þekkingu sem aflaðist með slíkri vinnu. Að lokum var lögð áhersla á að lit- ið skyldi á ELDEP-verkefnið einungis sem fyrsta skref til lausna á þeim vanda sem fylgir skylduskilum á rafrænum gögnum og því væri nauðsynlegt að tryggja að framhalds- verkefni yrðu unnin.2 I upphafi tíunda áratugarins voru Norðmenn í fararbroddi í þessum efnum þegar vinna við aðföng eftir nýjum skyldu- skilalögum, sem tóku gildi árið 1990, hófst við þjóðbókasafn þeirra. Norsku lögin eru mjög sveigjanleg og í grunnreglu þeirra felst að þau nái jafnt yfir rafræn gögn sem annað safn- efni.3 Árið 1994 var stofnaður vinnuhópur við Þjóðbókasafn Norðmanna með fulltrúum bæði frá deild safnsins í Mo í Rana og frá höfuðstöðvunum í Osló. Verkefni hópsins var að gera áætlun um framkvæmdir vegna skylduskila á rafrænum gögnum fram til ársins 2000. í febrúar árið 1996 lagði vinnuhópurinn skýrslu um störf sín á Internetið undir heit- inu Forslag til plan for Nasjonalbibliotekets arbeid med pliktav- levert elektronisk materiale fram möt dr 2000. Litið var á skýrsl- una sem upphaf að opinni umræðu og þess vænst að hún gæti þróast í uppbyggjandi umræður um efnið, en að hún væri ekki niðurstöður að öðru leyti en því sem laut að feng- inni reynslu við verkefnið. Vinnuhópurinn taldi jafnframt að vinna sem þessi ætti að halda áfram sem hluti af almennum rekstri þjóðbókasafnsins og tilheyra verkáætlunum þess og gera ætti ráð fyrir henni í fjárlögum.1 Þjóðbókasafnið, deildin í Rana, er einnig þátttakandi í Bókasafnið 23. Arg. 1999 17
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.