Bókasafnið - 01.02.1999, Síða 52
Þjónustumiðstöð bókasafna 20 ára
1978-1998
jónustumiðstöð bókasafna var stofnuð með und-
irskrift stjórna Bókavarðafélags Islands og Fé-
lags bókasafnsfræðinga 24. júlí 1978 og síðan
með staðfestingu forseta Islands á skipulagsskrá 9-
ágúst sama ár.
Á afmælisárinu hefur ýmislegt verið gert til að minnast
þessara tímamóta, meðal annars var Hér og nú, auglýsinga-
stofa, fengin til að hanna merki Þjónustumiðstöðvar. Var
merkið sett á ráðstefnutöskur sem dreift var til landsfundar-
gesta í haust.
Starfshópur, sem í voru Helga Jónsdóttir, Marta Richter,
Erna Egilsdóttir og Nanna Bjarnadóttir, undirbjó afmælishá-
tíð Þjónustumiðstöðvar sem leynilega uppákomu á lands-
fundi bókavarða í Munaðarnesi 26. september.
Veislan undirbúin. Vrá vinstri: Nanna Bjarnadóttir, Erna Egilsdóttir,
Hulda Björk Þorkelsdóttir og Regítia Eiríksdóttir.
Regína stillir landsfundarnefndinni upp til ab hlýða á óvœntan söng.
Þcer Hulda, Ntarta og Pálína vita ekkert hvað stendur til.
Langferðabílar fluttu landsfundargesti síðdegis á laugardag
út í óvissuna, sem reyndist vera Paradísarlaut, skammt frá
Glanna í Norðurá, þar sem veitingar biðu gesta. Pálína Jóns-
dóttir flutti stutt ávarp og sunginn var gamansamur afmæl-
isbragur um fröken ÞM eftir Nönnu Bjarnadóttur við undir-
leik Steinunnar Pálsdóttur á harmóníku og vísur um lands-
fundarnefndina, þær Mörtu, Pálínu og Huldu Björk Þorkels-
dóttur.
Haldið var áfram að syngja og njóta veitinga í yndislegu
veðri fram til klukkan sex og virtust afmælisgestir skemmta
sér hið besta.
Söngtríóið, harmóníkuleikarinn og textahöfundur. Talið frá vinstri: Stein-
unn Pálsdóttir, Helga Jónsdóttir, Nanna Bjarnadóttir, Sigurður Vigfús-
son og Anna Jensdóttir.
Afmcelisgestir í Paradísarlaut.
50
Bókasafnið 23. árg. 1999