Bókasafnið - 01.02.1999, Page 78
kyns né kvenkyns og um leið er því hafnað að hægt sé að
skilgreina sig út frá einhverjum efnislegum heimi. Allt er ó-
formað og því erfitt að túlka umheiminn eða breyta honum.
Persónusköpun Djunu er þannig að mörkin milli karllegs og
kvenlegs hverfa á sama hátt og mörkin milli sjálfsins sem
veru og sjálfsins sem hlutveru. Samskipti kynjanna riðlast
með írónískri persónusköpun og um leið er sjálfið dregið
fram og þess krafist að það finni sannleikann í sjálfu sér.
Uppbygging Nightwood virðist við fyrstu sýn einföld en
innan hverrar einingar liggja margslungnir þræðir sem
teygja sig í allar áttir; fortíð - nútíð — framtíð. Blekkinga-
leikur sem lesandinn er plataður inn í, heimur sem í fyrstu
virðist einfaldur. Lesandinn heldur að hann sé þátttakandi í
sögu sem fær hann til að gleyma sér um stund. Nightwood er
ekki aðeins skáldsaga heldur hljómandi sjónarspil. Sagan
hefur sterkan dramatískan undirtón, er sviðsetning og þegar
tjaldið er dregið frá í fyrsta þætti er tilfinningin sú að við
horfum á íburðarmikla senu. Lesandinn er gerður að áhorf-
anda.
Árið er 1880 og á að marka sögunni upphaf í Evrópu á síð-
ustu árum Austurríska keisaradæmisins sem einkenndist af
glæsileik aðalsins. Einnig er verið að vísa í hefð, arfleifð,
stöðugleika og íhaldssemi áður en sögusviðið breytist og
fjölþjóðleg hugmyndafræði fer að streyma inn. Umhverfið
breytist f alþjóðlegan sirkus og sögusviðið er Evrópa í upp-
hafi 20. aldar.
Fyrsti kafli er forleikur. Þar birtast þræðir sem magnast og
vefjast síðar í verkinu og enda að lokum í sannleika og lausn-.
Eftir að því er virðist hefðbundinn inngang í sögu um ást
og örlög hefst sjónarspilið fyrir alvöru. Djuna er að skrifa sig
frá mikilli ástarsorg til þess að skilja sjálf þjáningu, sorg,
hatur og reiði. Eigið uppgjör og sálarkreppa verður snjöll
samfélagsádeila.
I samfélagsmyndinni sem birtist í Nightwood eða Nátt-
skóginum er Djuna að afhjúpa blekkingu og forræðishyggju
samfélagsins með því að færa lífið yfir í nóttina. I skjóli
myrkurs er hægt að hegða sér á annan hátt og í myrkrinu er
manneskjan nær náttúrulegu eðli sínu. Náttskógurinn er
skemmtilegt stílbragð af hendi höfundar, því í myrkrinu
verða til skuggar sem ýmist hylma yfir, gefa í skyn eða af-
hjúpa.
Nightwood er textakonfekt sem hægt er að grípa niður í
hvar sem er og finna ný ljóð og tákn.
Sigrún Jóna Marelsdóttir
Bækurnar um Höllu og Heiðar-
býlið eru eftir Guðmund Magn-
ússon, en hann tók sér höfundar-
nafnið Jón Trausti. Guðmundur
fæddist að Rifi á Melrakkasléttu,
Norður-Þingeyjarsýslu, árið
1873. Hann lagði stund á prent-
nám á Seyðisfirði, en fluttist til
Reykjavíkur 1898. Þar starfaði
hann við iðn sína en var jafnframt
afkastamikill rithöfundur. Meðal þekktustu bóka hans eru
Heiðarbýlið og Anna frá Stóruborg. Jón Trausti lést úr spönsku
veikinni árið 1918. Heiðarbýlissögurnar hafa verið meðal
minna uppáhaldsbóka frá því ég las þær fýrst fyrir rúmum
tuttugu árum; reyndar hafði ég kynnst þeim áður í leikrits-
formi, því ég hlustaði sem barn á spennandi framhaldsleikrit
í útvarpinu sem gert var eftir þeim.
Sagan Heiðarbýlið eftir Jón Trausta kom fyrst út á árunum
1908-1911- Sagan skiptist í fjóra hluta en þeir eru: Barnið
(1908), Grenjaskyttan (1909), Fylgsnið (1910) og Þorradœgur
(1911). Sögusviðið er norðlensk sveit um miðja 19. öld.
Heiðarbýlissögurnar eru framhald af sögunni Halla sem kom
út 1906 en hún segir frá Höllu, ungri og fallegri vinnukonu
á prestssetri sem verður ástfangin af prestinum á staðnum og
ófrísk af hans völdum. Presturinn er kvæntur og til að bjarga
honum frá ærumissi giftist hún Ólafi, sauðamanni á prests-
setrinu og nefnir hann föður að barni sínu. Leiðir Höllu og
prestsins skilja að fullu: „Þau gengu hvort sinn ákveðna veg.
Hún til kvenlegrar stórmennsku í þrautum og mannraunum,
fátækt og fyrirlitningu, - sem er hlutskipti svo margra al-
þýðumanna á íslandi. Hann til kennimannlegrar lítil-
mennsku, - til yfirskins og augnaþjónustu, bæði upp á við
og niður á við í embættisstarfi sínu - til lífs sem var stöðugt
leit eftir nautnum og munaði, til að reyna að fylla upp hið
innra tóm, og jafnframt stöðug undanbrögð, stöðugur flótti
undan ábyrgð og óþægindum." (Halla, bls. 230). Halla og
Ólafur flytjast að Heiðarhvammi, koti fjarri mannabyggð.
Þar byrja erfiðleikarnir. Barn Höllu deyr af völdum kulda og
vosbúðar, búskapur er erfiður og þau verða fyrir þeirri raun
að liggja undir grun um sauðaþjófnað, einhvern versta glæp
sem þá var talinn.
Persónur í Heiðarbýlissögunum eru fjölmargar og flestar
eru þær mjög lifandi og eftirminnilegar. Haft hefur verið
fyrir satt að höfundur styðjist við raunverulega atburði og
það er vel trúlegt að hann hafi haft raunverulegar fyrirmynd-
ir að einhverjum persóna sinna. Persónum er vel lýst, bæði
með beinum lýsingum og ekki síður lýsa þær sér sjálfar með
orðum sínum og athöfnum. Skal fyrst nefna Höllu og Ólaf.
Halla er fríð sýnum eins og áður sagði, lífsglöð og dugleg og
Heiðarbýlið
76
Bókasafnið 23. Arg. 1999