Bókatíðindi - 01.11.2023, Page 5

Bókatíðindi - 01.11.2023, Page 5
SVK Gleðileg mjátíð Höf: Brian Pilkington Jólakötturinn er horfinn og jólasveinarnir fara því út í hríðarveðrið að leita hans. Það sem þeir koma með til baka kemur sannarlega á óvart. Brian Pilkington er sérfræðingur í jólakettinum og skjólstæðingum hans og dregur hér upp einstaklega hlýja og skemmtilega fjölskyldumynd af sinni alkunnu snilli. Einnig fáanleg á ensku. 36 bls. Forlagið - Mál og menning SVK Gott ráð - Engilráð! Höf: Elín Elísabet Jóhannsdóttir Myndh: Sigrún Hanna Hvað er sterkara en vöðvar og ofurkraftar allra ofurhetjanna í heiminum samanlagt? Hvernig í veröldinni er hægt að virkja slíkan kraft? Og geta venjuleg börn fengið hann? Dag nokkurn fengu nokkur börn óvenjulegar gjafir í skóinn. Gjafirnar áttu eftir að breyta lífi þeirra. Hér er á ferðinni falleg jólasaga um vináttu og kærleika. 52 bls. Skálholtsútgáfan - Kirkjuhúsið IB Gurra Grís á ferð og flugi! Höf: Asley Baker Þýð: Andri Karel Ásgeirsson Fimm skemmtilegar sögur um Gurru Grís á ferð og flugi! Æðisleg upplifun með alvöru stýri og mörgum tökkum og hljóðum! 12 bls. Unga ástin mín IB Gurra komum á koppinn! Höf: Asley Baker Gurru langar að hjálpa til því Georg er í klósettþjálfun. Skemmtileg hljóðbók með hnöppum sem hægt er að þrýsta á og sturta niður samhliða því að lesa söguna. 10 bls. Unga ástin mín IB Heima - fyrstu orðin mín Höf: Kathryn Jewitt Þýð: Andri Karel Ásgeirsson Allra yngstu börnin munu njóta þess að skoða það sem heima er en um leið auka samhæfingu handa og augna, málskilning og uppfylla snertiþörf sína. 14 bls. Unga ástin mín IB HLB Ég vil líka eignast systkin Höf: Astrid Lindgren Myndir: Ilon Wikland Þýð: Ásthildur Egilson Pétur langar í lítið systkini. Aldrei þessu vant þarf hann ekki að rella lengi. En þegar Lena litla fæðist er Pétur ekki alveg viss lengur. Hann hefði kannski frekar átt að biðja um þríhjól. Yndisleg saga sem hefur skemmt og yljað stækkandi fjölskyldum í áratugi. Einstakar myndir Ilon Wikland gæða frásögnina töfrum. 32 bls. Forlagið - Mál og menning IB Froskurinn með stóra munninn Höf: Francine Vidal Myndh: Élodie Nouhen Þýð: Jóhanna Björk Guðjónsdóttir Fjörug og litrík saga, að hluta til í bundnu máli, um forvitna froskinn sem spyr hin og þessi dýr í kringum sig hver sé þeirra uppáhalds fæðutegund. Myndir og texti kallast skemmtilega á og gamalkunnur brandari gengur í endurnýjun lífdaga. 32 bls. Dimma IB Leitum og finnum Frozen Höf: Walt Disney Leitaðu og finndu með Ólafi, Önnu og Elsu. 20 bls. Edda útgáfa IB Frozen sögusafn II Höf: Walt Disney Í þessu fallega sögusafni er að finna skemmtilegar og lærdómsríkar sögur af ævintýrum Önnu, Elsu, Kristjáni, Ólafi og vinum þeirra í Arendell. 160 bls. Edda útgáfa IB Múmínálfarnir Fyrstu 100 orðin Flipabók Höf: Tove Jansson Þýð: Margrét Gunnarsdóttir Það er gaman að læra fyrstu 100 orðin með Múmínálfunum í þessari skemmtilegu og fallegu flipabók. Ein af hinum sívinsælu Múmínálfabókum sem byggðar eru á sköpunarverki Tove Jansson. 16 bls. Ugla B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 3 5GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa Barnabækur MYNDRÍK AR

x

Bókatíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.