Bókatíðindi - 01.11.2023, Blaðsíða 46
KIL
Born to Run – Sjálfsævisaga
Höf: Bruce Springsteen
Þýð: Magnús Þór Hafsteinsson
Í þessari mögnuðu bók segir goðsögnin Bruce
Springsteen, The Boss, sögu sína og hljómsveitar
sinnar, E Street Band, með sama kraftinum,
hispursleysinu, einlægninni og húmornum
sem einkennir hans frægustu lög.
663 bls.
Ugla
KIL
Bréf úr sjálfskipaðri útlegð
Höf: Gunnlaugur Magnússon
Söknuðurinn hættir að vera óbærilegur,
útlegðin gerir hann hversdagslegan, að munstri
á veggfóðrinu, alltaf til staðar og bara truflandi
suma daga. …Bréf úr sjálfskipaðri útlegð er
safn esseya og ljóða um reynsluna af því að vera
búsettur erlendis, langt fjarri heimahögum.
168 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
IB
Dr. Bragi
og skólamálin
Höf: Bragi Jósepsson
Dr. Bragi Jósepsson var skeleggur talsmaður breytinga
á íslenska skólakerfinu á síðustu öld. Hér segir hann frá
viðskiptum sínum við menntamálaráðuneytið og þeim
átökum í skólamálum sem spunnust í kringum hann,
glímu sem oft rataði í alla helstu fjölmiðla landsins.
108 bls.
Dr. Bragi og skólamálin
KIL
Eiríkur af Pommern
Konungur Íslands og Norðurlanda
Höf: Jón Þ. Þór
Eiríkur af Pommern var konungur Íslands í 53 ár,
frá 1389 - 1442, lengur en nokkur annar að Kristjáni
IV einum undanskildum. Hans er þó sjaldan getið
rækilega í íslenskum söguritum en í þessari bók
er ljósi varpað á sögu hans og forvitnilega þætti í
sögu Norðurlanda og Eystrasalts á miðöldum.
104 bls.
Urður bókafélag
IB RAF
Ég verð aldrei ungfrú meðfærileg
Baráttusaga Guðrúnar Jónsdóttur
Höf: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
Guðrún Jónsdóttir er með mikilvægustu
brautryðjendum kvennabaráttunnar á síðustu öld og
fram á þessa. Hún var í hópi þeirra kvenna sem brutu
glerþak stjórnmálanna með Kvennaframboðinu og
síðar átti hún stóran þátt í því að rjúfa þagnarmúrinn
kringum kynferðisofbeldi. Þetta er saga um mikla
baráttukonu sem aldrei lét beygja sig.
416 bls.
Forlagið - Vaka-Helgafell
Ævisögur og
endurminningar
IB RAF
Að deyja frá betri heimi
Ævisaga Jónasar Kristjánssonar læknis
Höf: Pálmi Jónasson
Jónas Kristjánsson ákvað að gerast læknir þegar
móðir hans dó frá átta börnum í torfbæ í Svínadal
árið 1881. Þá var hann 11 ára að aldri. Faðir hans
lést nokkru síðar og fjölskyldan var leyst upp. Jónas
barðist til mennta og útskrifaðist sem læknir um
aldamótin. Fáir ef nokkrir hafa barist eins ötullega
fyrir bættu heilbrigði þjóðarinnar en Jónas.
444 bls.
Veröld
KIL
Að verða að manni
Höf: Sigurður Kristinsson
Að verða að manni eru bernskuminningar norðan
af Ströndum. Söguhetja okkar er þrátt fyrir ungan
aldur í baráttu við náttúruöflin, vopnaður að hætti
fullorðinna og oft áræðinn um efni fram.
144 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
IB RAF
Afi minn stríðsfanginn
Höf: Elín Hirst
Skömmu eftir að Bretar hernámu Ísland í síðari
heimsstyrjöldinni handtóku þeir alla Þjóðverja sem
bjuggu á landinu, skipti þá engu hvort þeir studdu
málstað nasista eður ei. Karl Hirst, afi Elínar Hirst,
var einn þessara manna og beið hans eins og hinna
vist í fangabúðum í Englandi. Og þegar vistinni í
fangabúðunum lauk tók við annar hryllingur.
200 bls.
Veröld
IB
Björn Pálsson
Flugmaður og þjóðsagnapersóna
Höf: Jóhannes Tómasson
Björn Pálsson var frumkvöðull í sjúkraflugi á Íslandi.
Hann vann marga hetjudáðina og var kallaður
„bjargvættur landsbyggðarinnar“ en hann var oft
eina lífsvon sjúkra og slasaðra úti á landi. Hann
fór í loftið þótt veðurútlitið væri allt annað en gott
til flugs, svo ekki sé nú minnst á lendingarstaðina
sem sumir voru varla meira en „lófastærð“.
192 bls.
Bókaútgáfan Hólar
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 3 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa46
Ævisögur og endurminningar
Ævi sög ur og end ur minn ing ar