Bókatíðindi - 01.11.2023, Page 59
IB
Yfirrétturinn á Íslandi: Dómar og skjöl III.
1716–1732
Ritstj: Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir, Gísli Baldur
Róbertsson og Ragnhildur Hólmgeirsdóttir
Mál sem komu fyrir dóminn voru margvísleg. Tvær
konur voru sakaðar um að deyða börn sín í fæðingu
og dæmdar til dauða. Snæbjörn Pálsson uppnefndi
kaupmanninn í Dýrafirði Lúsa-Pétur sem dró mikinn
dilk á eftir sér. Auk þess birtast hér ásakanir um falskt
þingsvitni og embættismissi sýslumanns, deilur um
reka, þjófnaðarmál og drykkjulæti í kirkju.
658 bls.
Sögufélag og Þjóðskjalasafn Íslands
KIL
Þriðja vaktin
Jafnréttishandbók heimilisins
Höf: Hulda Tölgyes og Þorsteinn V. Einarsson
Myndh: Elías Rúni
Ritstj: Haukur Bragason
Ósýnileg ólaunuð yfirumsjón og endalaus tilfinningaleg
ábyrgð á heimilis- og umönnunarstörfum er þriðja
vaktin. Vakt sem konur standa oftast einar með
áþreifanlegum og alvarlegum afleiðingum. Þessi bók
er fyrir fólk sem vill jafnrétti á eigin heimili.
Mildi og mennska
SVK
Þungir þankar
Ritgerðir um heimspeki
Höf: Mikael M. Karlsson
Ritstj: Elmar G. Unnsteinsson
Mikael M. Karlsson hefur ætíð farið víðan völl í
verkum sínum eins og sjá má af fjölbreyttu efni
þessarar bókar. Í henni kafar höfundur djúpt
ofan í áhugaverðar spurningar á ólíkum sviðum
heimspekinnar: lögspeki, hugspeki, fagurfræði,
athafnafræði, siðfræði og túlkun Aristótelesar.
350 bls.
Háskólaútgáfan
IB
Þættir úr sögu Kjósar
Höf: Gunnar Örn Óskarsson
Í bókinni dregur höfundur upp svipmyndir af því
samfélagi sem lengi var við lýði í Kjósarhreppi.
Verkið skiptist í 15 þætti sem fjalla um ólík
viðfangsefni en saman gefa þeir heillega mynd af sögu
byggðarlagsins. Margar ljósmyndir prýða bókina,
bæði eldri myndir með mikið sögulegt gildi og
nýlegar litmyndir af bæjum og landslagi í Kjós.
325 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
IB
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins
Öld gensins
Höf: Evelyn Fox Keller
Skilningur okkar á erfðum er nátengdur
hugmyndinni um genið. Alla tuttugustu öld
var genið í miðpunkti erfðarannsókna og staða
þess virtist enn styrkjast þegar lýst var byggingu
DNA kjarnsýrusameindarinnar. En því fer þó
fjarri að staða gensins sé trygg eða augljós.
304 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
IB
Veislumatur landnámsaldar
Höf: Kristbjörn Helgi Björnsson, Úlfar
Finnbjörnsson og Karl Petersson
Kristbjörn Helgi Björnsson sagnfræðingur
hefur rannsakað matartilvísanir og matarvenjur
í Íslendingasögunum. Úlfar Finnbjörnsson
matreiðslumeistari leitaði einnig fanga víða
og setur hér fram skemmtilegar uppskriftir að
veislumat landnámsaldar. Karl Petersson, einn
allra fremsti matarljósmyndari landsins, fangar
svo útkomuna með linsuna að vopni.
160 bls.
Drápa
RAF
Verkefna- og gæðastjórnun fyrir
byggingagreinar
Handbók stjórnenda við mannvirkjagerð frá stofnun
fyrirtækja til afhendingar mannvirkja
Höf: Ferdinand Hansen
Þessi bók er hugsuð fyrir nemendur í byggingagreinum
sem og stjórnendur við mannvirkjagerð. Að
sögn höfundar á gæðastjórnun að vera einföld,
leiðbeinandi og upplýsandi fyrir stjórnendur,
starfsfólk, viðskiptavini og birgja þannig að
þessir aðilar þekki til hlítar ábyrgð, hlutverk,
væntingar og kröfur hver annars.
IÐNÚ útgáfa
IB
Vesturbærinn
Húsin - Fólkið - Sögurnar
Höf: Sigurður Helgason
Vesturbærinn á sér um margt sérstaka sögu. Hér
er lítillega tæpt á nokkrum þáttum hennar og
sjaldnast er fólkið í hverfinu langt undan. Margir
eru kallaðir til; innfæddir, brottfluttir og aðfluttir
Vesturbæingar og eflaust vakna einhvers staðar
sterkar endurminningar. Vesturbærinn er fróðleg
bók og fyndin og sannarlega þess virði að lesa.
160 bls.
Bókaútgáfan Hólar
IB
Viltu finna milljón?
Þú átt meiri pening en þú heldur
Höf: Hrefna Björk Sverrisdóttir og Grétar
Halldórsson
Bók um fjármál á léttu máli sem inniheldur jafnframt
hundruði sparnaðarráða um allt sem við kemur
okkar daglega lífi eins og rekstur heimilis, veislur,
matarinnkaup, framkvæmdir, fatakaup, ferðalög,
heilsu, samgöngur, tryggingar, kaup- og sölu fasteigna.
Viltu finna milljón? er bók sem sannarlega gefur.
248 bls.
Read
IB
Völvur á Íslandi
Höf: Sigurður Ægisson
Frá elstu tímum eru til sagnir um konur, sem
vissu lengra nefi sínu. Þekktastar eru tvímælalaust
völvurnar. Þær nutu mikillar virðingar, stundum
reyndar óttablandinnar, enda voru þær á mörkum
tveggja heima og höfðu vitneskju um það, sem flestum
ððrum var hulið. Sumum þeirra fylgja magnaðar
sögur og þær finnur þú í þessari einstöku bók.
420 bls.
Bókaútgáfan Hólar
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 3 59GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Fræðirit, frásagnir og handbækur