Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1956, Qupperneq 22
20
Ef tryggður maður veikist eða verður fyrir slysi, þegar hann er staddur utan
samlagssvæðis síns, á liann rétt á endurgreiðslu sjúkrakostnaðar, þó eigi hærri
upphæð en kostnaðurinn hefði numið á samlagssvæðinu.
Þetta nær þó elcki til þeirra, sem samkvæmt milliríkjasamningum öðlast rétt
til sjúkrahjálpar í öðru landi vegna dvalar þar, að því er varðar þá sjúkrahjálp, sem
samningarnir fjalla um.
56. gr. — Nú flyzt samlagsmaður búferlum í umdæmi annars sjúkrasamlags,
og verður liann þá tryggingaskyldur í samlagi því, er þar starfar.
í reglum, sem Tryggingastofnunin setur og ráðherra staðfestir, skulu sett nán-
ari fyrirmæú um flutning manna milli samlaga, og um greiðslu sjúkrakostnaðar,
þegar svo stendur á. Má þar ákveða, að hinn tryggði skuli sjálfur bera kostnað
sinn að nokkru eða öllu leyti, ef liann vanrækir að flytja tryggingu milli samlaga
í samræmi við reglurnar.
í reglum, settum á sama hátt, má og ákveða gagnkvæma þjónustu og aðstoð sam-
laganna hvers við annars meðlimi. Að svo miklu leyti sem slík gagnkvæm aðstoð
verður ákveðin, fei um greiðslur til lælcna, lyfjabúða, sjúkrahúsa og annarra, sem
láta sjúkrahjálp í té, eftir sömu reglum og um greiðslur fyrir eigin meðlimi sam-
lagsins.
C. Tekjur.
57. gr. — Tryggingastofnun ríkisins ákveður iðgjöldin í hverju samlagi að
fengnum tillögum sjúkrasamlagsstjórna og umsögn stjórnar héraðssamlaga, þar
sem þau eru. Iðgjaldsákvörðun er háð staðfestingu ráðherra. Iðgjöld skulu ákveðin
með það fyrir augum, að heildartekjur samlagsins nægi til þess að standa straum
af skuldbindingum þess.
Iðgjöld greiða allir þeir, sem heimihsfang eiga í umdæmi sjúkrasamlags og
eldri eru en 16 ára. Iðgjöld skulu greidd fyrir fram og gjalddagar ákveðnir í sam-
þykktum.
58. gr. — Ríkissjóður og hlutaðeigandi sveitarsjóður greiða hvor um sig til
sjúkrasamlaganna þriðjung greiddra iðgjalda. Greiðast framlög þessi ársfjórðungs-
lega eftir á og miðast í hvert sinn við greidd iðgjöld á næsta ársfjórðungi á undan.
Lífeyrisdeild Tryggingastofnunar ríkisins greiðir árlega framlag til sjúkrasam-
laganna, sem nema skal 4% af samanlögðum bótagreiðslum deildarinnar næsta ár
á undan. Framlag þetta greiðist í fernu lagi, í lok hvers ársf jórðungs, og skiptist milli
þeirra í réttu hlutfalli við greidd iðgjöld á næsta ári á undan.
Þar sem iðgjöld til sjúkrasamlaga eru greidd í einu lagi fyrir liálft ár eða heilt
ár, greiðast framlögin í samræmi við það.
V. KAFLI
Sameiginleg ákvæði.
A. Um bœtur.
59. gr. — Bætur samkvæmt lögum þessum teljast bæði bætur greiddar í pen-
ingum og hjálp til sjúkra og slasaðra, sem veitt er á annan hátt.
Enginn getur samtímis notið nema einnar tegundar greiddra bóta samkvæmt
lögum þessum eða lögum um atvinnuleysistryggingar. Saman mega þó fara:
a. Fjölskyldubætur og dagpeningar.
b. Barnalífeyrir og dagpeningar.
c. Barnalífeyrir, mæðralaun og ekkjubætur samkvæmt 20. gr.
d. Aðrar bætur, ef svo er fyrir mælt í lögunum.