Heimili og skóli - 01.08.1952, Page 10

Heimili og skóli - 01.08.1952, Page 10
54 HEIMILI OG SKÓLI Barnaskóli Sauðárkróks 70 ára Svo einkennilega vill nú til, að þegar hinn aldni heiðursmaður, Jón Þ. Björnsson, skólastjóri, verður 70 ára gamall, þá verður skólinn hans, sem hann hefur helgað líf sitt og krafta í 44 ár, einnig 70 ára gamall. Skólinn var stofnaður á öndverðú ári 1882. Settur í fyrsta sinn 3. janúar 1882, með 13 nemendum. Er senni- lega fyrsta opinber, félagsleg stofnun Sauðárkróks, er þá var 10 ára, — lítið þorp. Þá var nýbyggt skólahús, með 2 stofum og íbúð fyrir skólastjóra. Hvatamenn að stofnun þessari virðast Arið 1932 missti jón konu sína, og voru þá sum börn hans í bernsku og eitt nýfætt. Arið 1940 kvæntist hann Rósu Stef- ánsdóttur. Rósa hefur verið mat- reiðslukennari við barnaskólann í 11 ár. Hafa þau hjónin alið upp yngstu börnin frá fyrra hjónabandi og auk þess eina fósturdóttur, sem nú er 12 ára. Báðar konur Jóns eru eyfirzkar að ætt, ágætar konur, og liafa reynzt lron- um góðir lífsförunautar og hjálpað honum til að skapa heilbrigt og traust heimili. Hefur það verið honum mik- ill styrkur, því að oft hefur vinnudag- urinn verið langur. Jón er góður heim að sækja, glað- vær og skemmtinn, enda á hann marga kunningja. Hann hefur reynzt ágætur heimilis- faðir, duglegur og skyldurækinn, eins og í öðrum störfum. Hér hefur verið minnzt á nokkra þætti tir ævi Jóns Þ. Björnssonar. Það hefur verið farið fljótt yfir sögu, en þó má vel af þessu ráða, að hér er um mikinn hæfileikamann að ræða, mann. sem ekki hefur legið á liði sínu um dagana, heldur notað starfsorku sína til gagns fyrir samborgara sína og aðra. Við höfum margs að minnast og margt að þakka. Fimmtíu ára kennslu- og skóla- stjórastarf. Fimmtíu ára baráttu t'yrir mann- úðar og menningarmálum. Nemendur, samborgarar og sam- starfsmenn, fjær og nær, munu senda Jóni hlýjar heillaóskir og heiðra hann á sjötugsafmælinu 15. ágúst. Og þó að hann hafi nú sjötíu ár að baki, iiefur Elli kerling enn ekki fest hend- ur á honum. Enn er hann léttur í anda og gengur léttum sporum eins og unglingur væri. Má því taka undir með skáldinu og segja: Eögur sál er ávallt ung undir silfurhærum. Magnús Bjarnason.

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.