Heimili og skóli - 01.08.1952, Qupperneq 11
HEIMILI OG SKÓLI
55
Hinn nýi barnaskóli Sauðárkróks
hafa verið nokkrir bændur í Sauðár-
hreppi, einkurn Stefán Stefánsson,
Heiði, er gaf 100 kr. til stofnunarinn-
ar — mikið fé þá —, Sveinn Sölvason,
Skarði, og Stefán Sveinsson, s. st. Að
skólanum hafa svo hvatamenn staðið í
framkvæmd. Sveinn Sölvason virðist
hafa verið fyrsti skólanefndarformað-
ur. Tómas Þorsteinsson var þá prest-
ur til Reynistaðaklaustursprestakalls.
Hefur hann vafalaust unnið með frá
byrjun, og sonur hans, Lárus, varð
fyrsti skólastjóri skólans. Fyrstu 10 ár-
in eru þó ýmsir aðrir kennarar og
stjórnarar (Guðmundur frá Mörk,
Jónas Jónsson, Múla, Konráð Arn-
grímsson o. fl. En hér um bil frá 1890
fram til 1908 eru þessir kennarar
(1—2 í einu): Magnús Blöndal, Einar
Stefánsson, Guðrún Þorsteinsdóttir,
Jónas Sveinsson og sr. Árni Björnsson.
Frá 1908 liefst kennsla í nýju skóla-
húsi og fer frarn eftir nýjurn fræðslu-
lögum (frá 1907). Ungur maður, jafn-
gamall skólanum (f. 15. ág. 1882), Jón
Þ. Björnsson að nafni, nýkominn frá
útlendum kennaraskóla, tekur þá við
skólastjórn hins nýja skóla, og hefur
haft það starf á hendi síðan, í um 44
ár, síðustu 4 árin í nýbyggðu skóla-
húsi.
Lengst hafa auk hans starfað við skól-
ann: Friðrik Hansen, sem nú er lát-
inn, kennari um 30 ár, Þorvaldur
Guðmundsson (um 23 ár), Magnús
Bjarnason, 15 árin síðustu. Guðjón
Ingimundarson (^þrótta og handa-
vinnukennari) 9—10 árin síðustu,
Margir fleiri kennarar hafa starfað í
skólanum á þessu tímabili, og verður
þeirra allra getið, er skólasagan verður
skráð, sem nú er í undirbúningi. Flest
hafa börn verið í skólanum um 150.