Heimili og skóli - 01.08.1952, Side 15

Heimili og skóli - 01.08.1952, Side 15
HEIMILI OG SKÓLI 59 í neðsta bekk menntaskólans með nnd- anþágu. Þótt þetta séu athyglisverðar tilraun- ir, má vitanlega ekki diaga þær álykt- anir af þeim, að rétt væri að hætta við bóklegt nám í flestum skólum. Hitt væri hugsanlegt, að draga úr því og reyna að kenna nemendum raunhæft, verklegt nám í staðinn. Þó er alltaf all- mikill hópur nemenda, sem fullkom- lega réttmætt er að kenna mikið af bóklegum fræðum. Jafnvel þótt þeir gleymi miklurn hluta þeirra síðar, að meira eða minna leyti, er þetta nám þó einn liðurinn í að glæða starfsþroska þeirra og veita þeim það, sem við köll- um almenna menntun. í þessum hópi eru allir nemendur, sem hafa það háa greindarvísitölu, að þeir fái staðizt próf við æðri skóla, t.d.menntaskóla og • kennaraskóla. Hins verða svo kennarar að gæta, að þeir mega ekki draga víð- tækar ályktanir af því, hvað þeir geta sjálfir, hvað þeim þykir skemmtilegt, hugþekkt og viðfelldið. Kennarinn verður að gera sér ljóst, að greindar- vísitala hans sjálfs hlýtur að vera a. m. k. 115, ef hann á að standast kennara- próf án alltof mikilla harmkvæla, en helmingur allra barna, sem hann á að kenna, hafa greindarvísitölu undir hundraði, og þó langmestur fjöldinn greindarvísitöluna 90—110. Það er vitanlega ekki tilætlunin, að kennarar tjái öllum almenningi, að jreir séu svo og svo greindir, en aftur á móti er áríðandi, að þeir minnist þess, þegar illa gengur, að hnoða þekk- ingarmola inn í kollana, sem þeir fá til meðferðar, að vera má að áskapað vit þessara litlu kolla sé af skornum skammti, en þeir eiga sinn tilverurétt eigi að síður og geta vel orðið nýtir þjóðfélagsborgarar, þótt greindarvísi- talan nái ekki hundraði. Nú munu ef til vill einhverjir hugsa sem .svo, að þetta sé ekki nein vinnu- sálfræði, og er það réttmætt, en til þess að verða góður verkamaður í víngarði vinnusálfræðinnar, er nauðsynlegt að þekkja efniviðinn, sem maður á að vinna með og efniviðurinn er einmitt börn og unglingar. Eg geri ráð fyrir, að ykkur dreymi djarflega vökudrauma um allt það, sem þið ætlið að vinna í fræðslumál- um, þegar sá tími kemur, að þið getið hafið kennslustarfið fyrir alvöru, og er það vel. En minnist þá þess, að hver einstaklingur hefur sín sérkenni, og engum tveimur dugir að bjóða ná- kvæmlega það sama í öllum aðstæðum lífsins. Gleymið því aldrei, að sá vit- granni, beygði og uppburðarlitli þarf enn þá meira á vingjarnlegri aðstoð ykkar að halda heldur en sá, sem er góðum gáfum gæddur og á ef til vill foreldra, sem hafa góða aðstöðu í þjóð- félaginu. Við nálgumst nú kjarna málsins, sem er sá, að þótt þið getið lítið kennt einhverjum pilti eða stúlku, þá getið þið samt lagt grundvöllinn að lífsham- ingju hans eða hennar, ef þið getið hjálpað þeim til að velja sér það ævi- starf, sem er í samræmi við hæfileika þeirra, skapgerð og umhverfi. IV. Þekking á atvinnulífinu. Til þess að þið getið orðið ungling- unum að liði, þurfið þið að vera sér- staklega vel að ykkur um allt.sem lýtur að atvinnulífinu. Þið þurfið að vita deili á hverju starfi, sem unnið er í

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.