Heimili og skóli - 01.08.1952, Side 18

Heimili og skóli - 01.08.1952, Side 18
62 HEIMILI OG SKÓLI FRIÐRIK J. RAFNAR: ij Rís uppeldisstofnun að Botni? Þeir eru margir, AkuVeyringarnir og nærsveitamenn hér norðanlands, sem muna Jóhann á Botni í Hrafna- gilshreppi. Hann hét fullu nafni Jó- hann Pétur Jakob Rist Sveinbjarnar- son; hann andaðist hér á Akureyri 21. desember 1934, háaldraður, 81 ára. Var hann vinsæll maður og vel met- inn, þó hann yrði ekki talinn í stór- bænda röð, meðan hann bjó að Botni, enda gaf jörðin ekki tækifæri til stór- búskapar, eins og aðstæðurnar voru þá til jarðræktar og bygginga. En hon- um farnaðist þar vel, og var alltaf fremur veitandi en þurfandi, enda var ábýlisjörðin notadrjúg og hæg. Kom það sér vel, því að Botnsbóndinn var oft og tíðum tafinn við heimilisstörf- in, og þær tafir gáfu ekki alltaf mikið í aðra hönd. Margir miðaldra og gaml- ir menn i sveitunum hér nærlendis munu minnast hans af dýra- lækningum hans. Hér var þá enginn lærður dýralæknir, en Jóhann hafði glöggt auga fyrir meinum málleysingj- anna og var heppinn dýralæknir. Var hann mikið sóttur, þegar þess þurfti við, enda var hann viljugur til þeirra ferða og góður heim að sækja, þótt önnum hefði að gegna heima fyrir. Var það víst dæmalaust, að Jóhann neitaði beiðni um að koma til sjúkrar skepnu, hvernig sem á stóð. Var honum, sein- ustu árin, sem hann bjó á Botni, sýnd smávegis viðurkenning fyrir þetta óeigingjarna mannúðarstarf, með því að honum voru veittar nokkrar krón- ur úr sýslusjóði. Jóhann á Botni var upprunninn úr fjarlægri sveit sunnanlands, og flutt- framtíðarborgin, sem byggð hefur ver- ið í hugum fólksins árum saman, hrvn- ur af þeim ástæðum. Enn þá verra er þó, ef unglinginn langar til að verða eitthvað allt annað en foreldrarnir hafa ákveðið, en lætur samt að vilja þeirra. Úr þessu verður hugarstríð hjá unglingnum, hann gerir eitt en vill allt annað, og kann það vitanlega ekki góðri lukku að stýra. Loks getur verið, að unglingarnir geri hreinlega upp- reisn gegn vilja foreldranna, og getur slíkri uppreist reitt misjafnlega af, og fer það mest eftir skapgerð þeirra, sem hlut eiga að máli. Vinnusálfræðingurinn getur oft orð- ið unglingum, sem þannig stendur á fyrir, að liði með því að skýra fyrir for- eldrunum nauðsyn þess, að börn þeirra fái að reyna það, sem þeim leik- ur mestur hugur á. Af því, sem þegar er sagt, er það augljóst, að vinnusálfræðingurinn er fyrst og fremst ráðgjafi einstaklingsins. Lífshamingja hvers og eins, sem til sál- fræðings leitar, hlýtur að vera sálfr;eð- ingnum helgidómur, hann vérður í einu og öllu að reynast þess trausts verður, sem honum er sýnt með því að Ieita til hans. (Tramhald).

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.