Heimili og skóli - 01.08.1952, Page 19
HEIMILI OG SKÓLI
63
Jóhann P. J. Rist Sveinbjarnarson og soruirsonur hans,
Jóhann L. Rist.
ist liingað til Eyjafjarðar tæplega mið-
aldra. En hann festi hér þær rætur,
sem aldrei slitnuðu og styrktust með
hverju líðandi ári. Hann festi þá ást
á Botni, að hann taldi sig geta ftert
rök að því, að Botn væri bezti blettur-
inn á jarðarkringlunni.
Myndin sýnir Jóhann á gamals
aldri. Hann varð fyrir því böli að
missa sjónina og var alblindur síðustu
árin sem hann lifði. Var hann, þrátt
fyrir það, giaður og reifur, sem hann
átti vanda til, og fylgdist vel með, og
hafði ódrepandi áhuga á öllunr menn-
ingar- og mannúðarmálum. En með
lionum á myndinni er sonarsonur hans
og nafni, Jóhann Rist, sonur Lárusar,
liins alþekkta sundgarps.Jóhann yngri
fór uppkominn í siglingar, og grædd-
ist þar nokkurt fé, enda var hann
reglumaður og duglegur, sem hann
átti kyn til. Gerðist hann síðan flug-
maður, en fórst í flugslysi í Englandi,
við þriðja mann, veturinn 1951. Var
hann þá að sækja flugvél, sem hann
keypti í félagi við annan. En í milli-
tíðinni, þegar Jóhann yngri kom úr
siglingunum, hafði hann keypt Botn,
af rækt við ininningu föður síns, og
hugðist að koma þar upp fyrirmvndar-
býli. Eru ræktunarskilyrði góð á
Botni, jörðin vel í sveit sett, fallegt
þar og framtíðarmöguleikar nægir.
Nú hafa erfingjar Jóhanns yngra,