Heimili og skóli - 01.08.1952, Qupperneq 21

Heimili og skóli - 01.08.1952, Qupperneq 21
HEIMILI OG SKÓLI 65 konu og fimm börnum, farnazt þarna vel og unað hag sínum hið bezta eftir atvikum og sýnt áhuga og dugnað í allri hirðu og ræktun jarðarinnar. 2. Að rudd verði leið frá bænum upp melhryggina norðan bæjarlækjarins að beitarhúsunum, svo að komizt verði til fjalls á bifreiðum. 3. Að haldið verði áfram því verki, sem þegar er hafið, að klæða brekk- una frá þjóðveginum og upp á brún, beggja vegna heimreiðarinn- ar, skógi, nema þá bletti, sem kynnu að þykja hentugir fyrir laukagarða. Virðingarfyllst Lárus J. Rist. Reykjavík, 14. nóv. 1951. Laugateig 18. Til bæjarstjóra Akureyrarkaupstaðar. Eins og gjafabréfið ber með sér, er það tilgangur gefendanna að bæta úr mikilli og brýnni þörf, og leysa vanda- mál, sem að vaxandi bæjum steðjar með auknum þunga, eftir því sem tímar líða. Það er það, hvað á að gera fyrir unglingana og börnin, þegar þau eru komin á þann aldur að geta lært að vinna og hafa orku og áhuga íyrir nytsömu starfi. Það reynist sífellt erf- iðara, með hverju árinu sem líður, að koma börnum og unglingum úr bæjunum til sumardvalar í sveit. Sum- ir bæir hafa sett upp vinnuskóla fyrir unglinga. Sú reynsla, sem fengin er, er að vísu góð, það sem hún nær, en það er ekki nema takmarkaður fjöldi, sem kemst þar að. Botn virðist vera tilvalinn staður til að reka slíka stofn- un. Þar er svo að segja ótakmarkað, ræktanlegt land, gott, hvort sem er fyrir túnyrkju eða skógrækt, skammt í ágætt berjaland, ágætt skíðaland á vetrum, sem býður margs konar tæki- færi til vetraríþrótta, svo sem skauta- íþróttir á tjörninni fyrir neðan veg. inn. Vitanlega þyrfti að auka bygging- ar á jörðinni, en þar gætu unglingarn- ir unnið með. Þar er skammt til fjalla, sem gefa einhverja mikilfenglegustu útsýn yfir mikinn hluta Norðurlands. Botn virðist því hafa flesta kosti fyrir vinnuskólasetur fyrir unglinga. Verk- efnin virðast næg fyrir nytsama vinnu og íþróttaiðkanir. Eins og gjafabréfið ber með sér, er tilgangur gefendanna, að þar rísi upp gagnleg menningarstofnun í anda þeirra feðga, því að Jóhann eldri var sérstaklega barngóður maður og tók t. d. fjölda unglinga og barna í lengri eða skemmri dvöl á heimili sínu, munaðarlaus og fákunnandi. Það mundi því vera þeinr bezt að skapi, að þarna rísi upp vinnuskóli fyrir ung- dóminn.

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.