Heimili og skóli - 01.08.1952, Side 22

Heimili og skóli - 01.08.1952, Side 22
66 HEIMILI OG SKOLI Jakob Kristinsson, fyrrverandi fræðslumálastjóri, sjötugur Þann 13. maí síðastliðinn varð séra Jakob Kristinsson sjötngur. Séra Jakob hefur verið svo fyrirferðarmikill í andlegu lífi þjóðarinnar hina síðustu áratugi, og þá einnig á sviði uppeldis- málanna, að mér þótti hlýða að geta lians að nokkru hér í ritinu, þótt ég liafi ekki borið gæfu til að kynnast honum náið. Ég sá séra Jakob fyrst fyrir tæpum ‘50 árum. Það var á kennaramóti í Reykjavík. Hann hafði verið fenginn til að flytja [rar erindi, og ég beið þess með eftirvæntingu að sjá og heyra þennan mann, því að ég hafði heyrt látið mjög af gáfum Iians og mælsku. Svo kom stundin. Það var tilkynnt, að nú flytti séra Jakob Kristinsson er- indi. í ræðustólinn steig nú hár og grannur maður, fríður sýnum og göf- ugmannlegur, en frábærlega yfirlætis- laus og liógvær. Röddin var frekar lág og þýð, en það var ómögulegt annað en hlusta á hvert orð og hverja setn- ingu, því að bæði var það, að allt var mál hans meitlað og fagurt, en þó var Iiitt ef til vill J^yngra á metunum, að allt, sem hann sagði, kom auðsjáanlega beint frá hjartanu og var vermt af ein- hverri innri glóð. Hann náði algjöru valdi á áheyrendunum þegar í byrjun og hélt því til loka ræðunnar, sem var þó nokkuð löng. Ég verð að segja það, að þegar ég sá hann fyrst í ræðustóln- um, bjóst ég ekki við ýkja miklu. Mér virtist hann nærri [rví feimnislegur, og þegar hann tók upp úr vasa sínum svolítið blað úr lítilli vasablokk og handlék það litla stund áður en hann hóf mál sitt, var ég ekki meira en svo trúaður á andríka ræðu, en sú skoðun breyttist fljótt. En á þessu litla blaði var öll ræðan, að svo miklu leyti sem Iuin kom ekki beint frá hjartanu. Hann talaði um hina eilífu leit mannssálarinnar, leit að veraldlegum

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.