Heimili og skóli - 01.08.1952, Side 39

Heimili og skóli - 01.08.1952, Side 39
HEIMILI OG SKÓLI 83 Hefur skólinn gert skyldu sína? Ég held að það sé óhætt að fullyrða það, að eftir því sem hin siðferðilegu og menningarlegu vandamál vaxa, vegna ýmiss konar öfugþróunar menningarinnar, sé nú meir og meir litið til skólanna í von um hjálp. En þó að aldrei megi á því slaka, að heimilin eigi að vera höfuð-upp- eldisstofnanir þjóðfélagsins, verður ekki frá því komizt, að þar koma skólarnir í næstu röð. Þeir geta því ekki og mega ekki flýja þær skyldur að vera uppeldisstofnanir, og öll sú leit eftir nýj- um og bættum aðferðum, sem skólinn verður að haldá uppi í framtíðinni, verður því fyrst og fremst að vera leit að sterkum, siðlegum og trúar- legum grunni til að byggja allt uppeldið á, einn- ig þekkingaruppeldið. Og þegar við spyrjum okkur að því á hverju vori að loknum prófum, hvort þetta barn hefði nú ekki getað fengið ofurlítið hærri einkunn í reikningi, skrift eða landafræði, ef betur hefði verið á haldið, meg- um við ekki gleyma því, að ofar öllu þessu er sá siðferðislegi og trúarlegi styrkur, sem okkur, kann að hafa tekizt að gefa nemendum okkar í veganestið. Fyrir skömmu hélt Samband norskra kennslu- kvenna 40 ára afmælishátíð. Við það tækifæri flutti Kristine Harnæs ræðu og kom víða við. Vegna þess, að ræða hennar getur minnt okkur á ýmislegt í okkar landi og vakið hjá okkur ýmsar surningar, sem gott er að reyna að svara, verður birutr kafli úr þessari æðu, lauslegá þýdd- ur úr Folkeskolen. Ritstjórinn. .... Myndirnar líða fram hjá. Við nemum staðar við 9. apríl. Ég get ekki annað en neínt þann dag og það, sem á eftir kom. Margir munu ef til vill segja, að það eigi ekki heima í hátíða- ræðu — og þó, eins og heimurinn er í dag, líkt og eldgýgur, sem getur -sprungið þá og þegar. 9. apríl er svartasta blað sögu vorr- ar, ef til vill einnig í sögu skólans. Við getum ekki flúið frá ábyrgðinni á öll- um þeim, sem fóru þá villtir vegar. Ég minni á allar ungu stúlkurnar, sem lentu í klóm Þjóðverjanna. Þær eru okkur mikið og alvarlegt umhugsunar- efni, ekki sízt okkur kennslukonun- um. Ég hef að vísu ekki heyrt nema eina rödd, sem opinberlega ákærði skólann, en það var líka rödd, s'em tak- andi er mark á, og á ég þar við yfir- lækni Johan Scharffenberg. Hann sagði í ræðu, er hann flutti, þegar Noregur varð frjáls: „Getur það verið, að skólinn hafi gert skyldu sína, þegar svo margir menn bregðast?“ Ég held, að hann hafi aldrei svarað þessári spurningu sjálfur. Hann lét okkur það eftir. En það er ekki auð- velt. Við getum svarað því til, að starf okkar sé í veikleika unnið, því að við séum dauðlegir og ófullkomnir menn. En það svar er ekki nægjanlegt. Mörg stórvirki hafa verið unninn í heimin- um af mönnum, sem voru engin and- ands stórmenni, en höfðu hjartað á réttum stað. Við gætum líka sagt, að þeir hafi verið miklu færri, sem brugðust, sem villtust, en þó of marg- ir. En voru það aðeins smámennin — undirmálsmennirnir? Ekki allt. Og jafnvel þeir geta elskað heimili sín og ættjörð og þekkt skyldur sínar. Nei — spurningin kemur aftur: Höfum við

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.