Heimili og skóli - 01.08.1952, Page 44

Heimili og skóli - 01.08.1952, Page 44
88 HEIMILI OG SKÓLI Frá Barnaskóla Húsavíkur Barnaskólanum var slitið 30. apríl síðastliðinn. 143 börn stunduðu nám í skólanum s.l. vetur, í sex deildum. 15 börn luku barnaprófi. í skólaslitaræðu sinni gat skólastjóri þess meðal ann- ars, að Kvenfélag Húsavíkur hefði gef- ið skólanum vönduð ljóslækninga- tæki, skömmu eftir áramótin. Voru þau tekin í notkun 18. febrúar og starfrækt til skólaloka. Alls nutu 85 börn ljóslækninganna. Skólinn tók upp þá nýbreytni í vet- ur, að efna til skíðamóts, þar sem verð- laun voru veitt fyrir beztan árangur. Á þessu fyrsta verðlaunamóti skólans voru veitt þrenn verðlaun (bækur) fyr- ir beztan árangur samanlagðan. En framvegis er ráðgert, að nemendur keppi í fjórum flokkum, og þá veitt þrenn verðlaun í hverjum flokki (falleg, áletruð spjöld), og auk þeirra litlir farandbikarar, eða skildir. Skól- en vegir skiljast. Var samkoma þessi haldin að þessu sinni að kvöldi síð- asta prófdagsins, og sóttu hana allir nemendur 6. bekkjar og allir kenn- arar skólans. Eru samkomur þessar alveg sérstaklega ánægjulegar bæði fyr- ir kennara og nemendur. Þann 12 maí hófst vorskólinn, með 430 börnum í 17 deildum. Til inn- ritunar í 1. bekk komu rúmlega 160 börn, og lítur því út fyrir að börnum fjölgi í skólanum um 40—50 á þessu eina ári. Sama dag hófst einnig sund- námskeið fyrir þau 10, II og 12 ára börn, sem eigi hafa lokið sundprófi. inn væntir, að þetta stuðli að aukn- um áhuga barna og ungmenna hér fyrir hinni hollu og fögru skíðaíþrótt, sem enn er of lítið stunduð, bæði hér og víðar. Þá tók skólinn einnig upp þá ný- breytni, að heilsa sumri með samkomu í samkomuhúsinu. Skólastjóri flutti ávarp, kórar skólans sungu mörg lög og tíu börn lásu upp vor- og sumar- ljóð. Síðan voru sýndar kvikmyndir og dansað. Eins og kunungt er, var hafin sund- laugarbygging hér í Húsavík í ágúst síðast liðið sumar. Skólabörn og kenn- arar héldu tvær hlultaveltur í vetur til styrktar {jví þarfa fyrirtæki. Alls söfnuðust tæpar 3000 krónur. Hinar venjulegu samkomur skól- ans, sem haldnar eru um mánaðamót- in febrúar og marz, til styrktar ferða- sjóði barnanna, tókust vel og fengu ágæta dóma. Barnastúkan, sem starfrækt er af öllum föstum kennurum skólans, og sem nær öll börnin taka þátt í, starf- aði vel í vetur, eins og undanfarið. F'inn fjölsóttur foreldrafundur var haldinn á vegum hennar. — Að loknum skólaslitum, kl. 16, var opnuð sýning á handavinnu, teikn- ingum, skrift og vinnubókum nem- enda. Var þar margt athyglisvert að sjá. Sýningin var opin í tvo daga, eins og undanfarin ár, og vel sótt að vanda. Vorskólinn hófst 3. maí . Hann sækja nú 76 börn. Sundnámskeið hófst á Laugum 5. maí, og sækja það 27 börn frá Húsavík.

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.