Heimili og skóli - 01.08.1952, Side 48

Heimili og skóli - 01.08.1952, Side 48
92 HEIMILI OG SKÓLI Gœzlumenn og embœtlismenn barnastúkunnar „Sarnúð" á Akureyri. störf í tómstundum sínum. Eina end- urgjaldið, sem þeir fá fyrir starf sitt, er ánægjan að starfa með börnunum og sú ánægja, er því fylgir ávallt að vera sér þess meðvitandi að vinna gott verk. En hvað starfa börnin í barnastúk- V ^ unum? I öllum barnastúkum eru reglubundnir fundir yfir vetrarmán- uðina, sem fara fram eftir vissu siða- kerfi, og gefur það mörgum börnum tækifæri til að taka þátt í stjórn og störfum fundanna. Siun sjá um fjár- málin og skrá inn í bækur livern eyri, sem inn kemur í félagsgjöldum, önnur rita í fundarbók allt, er gerist á fund- unum o. s. frv. Þá fara fram einhver skemmtiatriði á hverjum fundi og eru þau oftast framkvæmd af börnunuin sjálfum. A hverjum fundi er skipuð nefnd til að sjá um skemmtiatriði næsta fundar. Reynir þá á hugkvæmni og dugnað hjá þeim, sem fyrir þessu er trúað. Algengustu skemmtiatriði á fundum eru smáleikir, upplestrar, söngur eða hljóðfæraleikur. Á þann hátt fá þeir, sem gæddir eru einhverj- um listrænum hæfileikum, að njóta sín. Er ekki óalgengt að þeir hæfileik- ar komi einmitt fyrst fram í barna- stúkustarfinu. Víða hafa barnastúkurnar einnig einhverja sumarstarfsemi. Er þá farið í ferðalög eða unnið að garðrækt og skógrækt. Undanfarin ár hefur Ungl- ingareglan liaft námskeið í skógrækt og blómarækt að Jaðri í Heiðmörk, fyrir félaga úr barnastúkunum í Reykjavík. Ungtemplararáð Reykja- vífkur liefur séð um þessi námskeið. Hafa biirnin dvalið í sumarbústað Góðtemplarareglunnar að Jaðri viku- tíma í 2—3 hópum. Vorið 1951 voru 70 þátttakendur í þessum námskeið- um. Með þessu er unnið tvennt í einu: Að fegra og prýða landið og gefa bæj- arbörnunum kost á því að komast í snertingu við hina lifandi náttúru.

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.