Heimili og skóli - 01.08.1952, Qupperneq 52
96
HEIMILI OG SKÓLl
Bækur og rit
Matreiðslubók. Heimili og skóla hefur
borizt nýtt rit frá Náttúrulækningafélagi
íslands, og er það hið 11. í röðinni af út-
gáfubókum félagsins. Er þetta matreiðslu-
bók, 94 blaðsíður að stærð, og skiptist í
þessa kafla: Formáli — Irmgangur —
Næringarefni fæðunnar — Er maðurinn
kjötæta? — Ræktun, matreiðsla, geymsla
— Nolfifæði — Waerlandsfæði — Fæði
sjúklinga og ungbama — Megrunarfæði
og fitandi fæði — Er dýrt að lifa á jurta-
fæðu? — Sveitafæði — Uppskriftir —
Næringartafla. Auk þessa eru nokkrar
myndir. Eins og sjá má af heiti þessara
kafla, kennir hér margra grasa, og hvaða
skoðanir, sem menn annars hafa á nátt-
úrulækningastefnunni, virðist það ómaks-
ins vert að kaupa þessa bók og kynna ser
hana. Hinn aldni og óþreytandi hugsjóna-
maður, Jónas Kristjánsson læknir, skrifar
stuttan formála fyrir bókinni.
Blik, Ársrit Gagnfræðaskólans í Vest-
mannaeyjum, hefur borizt Heimili og
skóla. Þetta er allmikið rit og vandað að
frágangi, prýtt mörgum myndum. Það
hefst á grein eftir skólastjórann, Þorstein
Víglimdsson, er hann nefnir Ferðaþættir
frá Noregi, en þar dvaldi höfundurinn síð-
astliðinn vetur. Þá skrifar Sigurður Finns-
son, settur skólastjóri, stutta grein, er
hann nefnir Skólamál. Þá er skýrsla
Gagnfræðaskólans veturinn 1951—52. Þá
kemur bálkur, sem nefnist: Þáttur nem-
enda. Eru það ritgerðir, smásögur og frá-
sagnir nemenda úr ýmsum bekkjum skól-
ans. Einar H. Eiríksson skrifar ferðaþætti
frá Danmörk. Loks kemur þáttur skáta.
Þetta er 13. árgangur þessa ársrits, og væri
gaman að fleiri skólar gætu gefið út slíkt
hennar verður búið undir lífsbarátt-
una, og það er á hennar valdi að gera
grundvöllinn traustan.
Fréttabréf um heilbrigðismál.
rit, það gæti orðið merkileg heimild síðar
meir.
Foringjablaðið. Útgefandi Bandalag ís-
lenzkra skáta. Hefti þetta flytur meðal
annars grein, er nefnist Varðeldar og
varðeldastjóm, eftir Sigm. R. Finnsson.
Framhaldsgrein, er nefnist: Hvemig á ég
að stjóma sveitinni minni. Ritstjómar-
grein, er nefnist: Mót gamalla skáta o. m.
fl. Ritstjóri er Franch Michelsen.
H. J. M.
Barnslegt traust
Lítill drengur sat á húströppum í New
York. Hann var tötralega til fara og leit
út fyrir að vera hungraður, en þó bar
svipur hans vott um einhverja ánægjulega
eftirvæntingu.
Vel búinn maður gekk fram hjá og
spurði:
„Eftir hverju ert þú að bíða hér?“
„Ég er að bíða eftir því, að guð komi og
hjálpi mér,“ svaraði drengurinn.
„Við hvað áttu með því?“ spurði mað-
urinn undrandi.
„Guð hefur tekið bæði pabba, mömmu
og litla bróður til sín,“ mælti drengurinn.
„Og mamma sagði, þegar hún var veik, að
Guð faðir mxmdi sjá um mig. Ég á hvergi
heima og enginn gefur mér að borða. Þess
vegna sit ég hér. Og nú er ég lengi búinn
að horfa til himins, til þess að vita, hvort
Guð faðir kemur ekki og hjálpar mér.
Heldurðu að hann komi ekki? Mamma
hefur aldrei skrökvað að mér.“
„Jú, drengur minn,“ svaraði maðurinn
klökkur. „Guð faðir hefur sent mig til að
hjápa þér.
Gleðibros lék um andlit litla drengsins.
„Ég vissi það,“ mælti hann, „að mamma
sagði satt. En ósköp varstu lengi á leið-
inni.“