Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1966, Blaðsíða 23

Læknaneminn - 01.12.1966, Blaðsíða 23
LÆKNANEMINN SS Evrópa í vísindalegu myrkri und- ir verndarvæng kirkjunnar. Engin stærðfræðileg rit, sem neinu máli skipta, eru samin á þessu tíma- bili. Öll áherzla var lögð á rök- fræði og guðfræði, en rit Aristót- elesar nánast dýrkuð sem endan- leg sannindi en ekki lesin. Menningarleg forusta hvarf frá Evrópu í hendur Araba. Vakning Evrópu til nýrrar vís- indalegrar hefðar tók nokkrar aldir. Þægilegt er að miða við, að nútíma stærðfræði hefjist 1636— 1687. Fyrra árið kom út Geom- étrie Descartes, en hið síðara Principia Newtons. Þróun stærð- fræði eftir 1700 hefur verið með eindæmum hröð og enn sjást eng- in merki stöðnunar. Samhliða þessari miklu blómgun stærðfræð- innar hafa flestar greinar raun- vísinda tekið stórfelldum framför- um. Glögg dæmi þessa eru stjörnu- fræði og eðlisfræði, en báðar þess- ar greinar hafa á síðustu áratug- um orðið æ stærfræðilegri að formi. Tycho Brahe varði mest- um hluta ævi sinnar til að safna upplýsingum um stöðu fasta^ stjarnanna. Það safn staðreynda, sem Brahe lét eftir sig var ekki líklegt til að fræða neinn, sem reyndi að lesa það. Það var fyrst er Kepler hafði unnið stærðfræði- lega úr hinum mikilvægu athug- unum Brahe, að unnt var að um- skrifa þau á hinn auðskilda hátt: Reikistjörnur ganga um sólu eftir misvíðum sporbaugum. Margir hafa fylgt fordæmi Keplers og leyst vandamál raun- vísinda með aðstoð stærðfræðinn- ar. Afstæðiskenning Einsteins gerbreytti hugmyndum manna um tíma og rúm. Afrek Einsteins var að finna þekktum stærðfræðileg- um lögmálmn nýjan vettvang í eðlisfræði. Hvers vegna hefur stærðfræð- in reynzt öðrum vísindagreinum svo styrk stoð ? Aðalstyrkur stærðfræðinnar er að hún smíðar rökrétt líkön þess sem gæti verið. Með hjálp þessara líkana verða oft hlutir augljósir, sem ella væru mjög torskildir. Með því að losa hugann undan hinu einstaka opn- ar stærðfræðin nýja möguleika til óhlutlægrar hugsunar. Bandaríski stærðfræðingurinn Alfred North Whitehead kemst svo að orði: ,,The paradox is now well esta- blished that the utmost abstrac- tions are the true weapons with which to control our thought of concrete fact“. Hvað hafa líffræðingar haft fyr- ir stafni á Jpessari annaöld eðlis- fræðinga ? A því herrans ári 1966 á öld tækni og vélvæðingar, geim- ferða og vetnissprengja eru víð- áttur hinna margvíslegu forma lífsins enn að mestu ónumið land. Ýmsir samtímamenn Claude Bernard héldu því fram, að lifandi verur hefðu einhvern óskýrðan lífskraft, sem gerði tilraunir með þær óhugsandi. Pasteur þurfti að sanna, að líf kviknar ekki af dauðu efni. Svo frumstæðar voru hugmyndir manna um líf fyrir að- eins rúmum 100 árum. Líffræðin er ennþá á stigi lýsingar. Okkur verður að nægja að kryfja og sneiða niður líffæri og lýsa því, sem við sjáum með berum augum eða með stækkun. — Hvað er líf ? Nútímamenn virðast vera því hóti nær svari, en hinir fornu Grikkir, að þeir vita um tengsl lífsins við frumur. Hvað það er, sem gerir frumuna lifandi, höfum við enn enga hugmynd um. Lífefnafræðin hefur enn ekki eignazt kerfi, er samsvari hinu periodiska kerfi ó- lífrænu efnafræðinnar, og aðferðir til að tákna efnabreytingar í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.