Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1967, Blaðsíða 5

Læknaneminn - 01.11.1967, Blaðsíða 5
Hannes Finnbogason, læknir: Deyfing á úllimum Á sjúkrahúsum, þar sem að- staða til svæfinga er góð, er svæf- ing auðveldasta leiðin til þess að gera aðgerð mögulega. Gildir það reyndar bæði fyrir sjúklinga og starfslið skurðstofunnar. Auk þess getur leiðsludeyfing brugðizt, og því fremur sem æfingin er minni, og oft þarf að bíða eftir því, að hún nái að verka. Vill þol- inmæðina þá bresta í önnum dagsins. Af þessum ástæðum er leiðsludeyfingu minni gaumur gefin en vert er. Svæfing er þó ekki hættulaus, enda þótt að- staða sé góð. Ef aðstaða til svæf- ingar er slæm, er leiðsludeyfing miklu öruggari. Er því ekki úr vegi að rifja upp helztu mögu leika til deyfinga. I þessari grein ætla ég að halda mig við deyfingu á extremitetum. Efri extremitet. 1) Plexus brachialis deyfing. Plexus brachialis fer yfir fyrsta rifbein á milli m. scalenus ant. og medius. Þar er hægast að ná til hans með deyfingu. Aðferð: Sjúkl. liggur á baki. Höfuð sveigt til mótsettrar hliðar við þá, sem deyfa skal, og hand- leggurinn teygður niður með síð- unni. Þannig strekkist á plexus, sbr. prófið fyrir syndroma scaleni. 2 fingurbreiddum ofan við miðja clavicula er nálinni stungið og beint lítið eitt medialt. Nota nál nr. 12 á 2ja ml. sprautu. Plexus fundinn þannig, að sjúkl. er beðinn að segja: Nú! þegar hann finnur straum eða sting niður í höndina (paresthesia). Það er mikilvægt að sprauta ekki deyfilyfi, fyrr en plexus er fund- inn, en paresthesia er öruggt merki þess, að nálin sé á réttum stað. Áð hafa nálina á tómri sprautu, á meðan leitað er að plexus, þjónar tvennum tilgangi. 1) Betra vald á nálinni. 2) Fyrirbyggir pneumothorax, þótt stungið sé í gegn um cupula pleurae. Kvarti sjúkl. um sting niður í thorax, er maður að fitla við cupula pleurae og færir þá nálar- oddinn ofar og meira medialt. Finnist fyrir fyrsta rifi án þess að hafa fengið fram paresthesiu, heldur maður sig í sömu línu og færir nálarbroddinn fram eða aft- ur, þar til paresthesia fæst. Þegar plexus er fundinn skv. áðurnefndum criteria, er spraut- unni skipt fyrir 20 ml sprautu með 2% lidocain með adrenalin, en þess vel gætt að halda nálinni á sama stað og paresthesia fannst. Sprauta þar 10 ml og öðrum 10 umhverfis þann stað. Gallar þessarar aðferðar eru þessir þeir helztu: 1) Hættan á pneumothorax. Fram hjá þeirri hættu er komist með því að hafa sprautu á nálinni, eins og að framan er lýst. 2) Arteria subclavia er þarna anteriort við plexus, ofan á fyrsta rifi. A. transversa colli á og leið þarna um. Sé stungið í gegn um þær, kemur auðvitað hæmatom, sem er hvimleitt, en óþarfi er að hætta við leit að plexus, þótt svo
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.