Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1967, Side 9

Læknaneminn - 01.11.1967, Side 9
LÆKNANEMINN 9 sem framleitt er af Astra og hef- ur nú verið í notkun í nokkur ár. Það hefur ótvíræða kosti fram yfir lidocain og Carbocin (mepiva- cain hcl), er minna toxiskt, diffunderar betur, og þarf því minni styrkleika til deyfingar. Maximal dosis með adrenalini er 600 mg, en án adrenalins 400 mg. N. fem. og n. isch. dofna af 1% Citanest með adr. N. femoralis þarf 20 ml., en n. ischiadicus 30 ml. Þá eru eftir 10 ml. í maximal dosis, og nægir það á n. cut. fem. lat. og obturatorius, ef með þarf. Citanest er enn ekki skráð hér- lendis, en hægt að fá það með því að sækja um leyfi til innflutnings, eins og með önnur lyf, sem ekki eru skráð. Leiðsludeyfingu á neðra extre- miteti hafði ég ekki séð fyrr en á s.l. vori (67), en þá heimsótti ég liðagigtarspítala í Heinola í Finn- landi. Þar var enginn svæfingar- læknir, þurfti að fá hann frá næsta sjúkrahúsi í 30 km fjarlægð. Þeir í Heinola reyndu því að gera sem flest í deyfingu og höfðu náð svo vel valdi á deyfingaraðgerðum á neðra extremiteti, að sjaldan brást, svo að ég vissi til, en ég var þar í 3 vikur, og gizka ég á, að 2—3 leiðsludeyfingar á neðra extremiteti væru gerðar daglega. Þeir notuðu til þess Citanest 1% með adrenalini. Við aðgerðir neðan hnés þarf að deyfa bæði n. ischiadiucs og n. femoralis, bæta n. cut. fem. lat. við, ef stasa þarf ofan hnés, en ef gera þarf aðgerð á hnélið, þarf einnig að deyfa n. obura- torius, þar eð sú taug sendir oft- ast þræði sína í fossa intercon- dyloidea. Skal stuttlega vikið að landa- merkjum þessara tauga. N. ischiadicus: 1) Sjúkl. liggur á hlið með mjaðmarlið í dál. flexio. 2) N. isch. finnst á miðri línu, sem dregin er á milli trochant- er major og tuber ischii. 3) Notuð 10 cm löng nál og taug- in leituð uppi. 4) Þegar paresthesia kemur, er sprautað 30 ml. Citanest 1% m. adr. N. femoralis: Finnst 1—iy2 cm lateralt við a. femoralis 2—3 cm neðan við lig. ingv. 1) Fingur hafður á a. femoralis neðan við nárafellingu. 2) Taugin leituð uppi með því að stinga lateralt við arteriuna. Deyfa ekki, fyrr en paresthesia finnst. 3) Deyft með Citanest m. adr. 1% 20 ml. N. cutaneus femoris lat: Sprauta 5—10 ml. 2 fingurbr. neðan og medialt við spina iliaca. ant. sup. undir fasciuna. N. obturatorius er að finna und- ir ramus superior ossis pubis. Þar sprautað 5—10 ml. 1°/o Citzanest m. adr. Hannes Finnbogason

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.