Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1967, Page 26

Læknaneminn - 01.11.1967, Page 26
26 LÆKNANEMINN Þarna koma til ýmisir faktorar, sem geta haft misjöfn áhrif á ár- angur meðferðar í þessum tveim flokkum. Maður skyldi þó ekki falla fyrir þeirri freistingu að ætla, að til hysterectomi séu valin verstu tilfellin. Því að af þessum sjúklingum voru 34 meðhöndlaðir með radium og þá fyrst og fremst þeir, sem taldir voru hafa slæma prógnosis og þá aðallega þær kon- ur, þar sem skurðbrúnir reyndust ekki fríar við conisation. Sá hefðbundni hugsunarháttur hefir verið um of ríkjandi, að bezta meðferðin við prencancerös- um breytingum á portio sé hyst- erectomia. Eins og kunnugt er, er efsti fjórðungur vagina af sama uppruna og portio epithelið, þ. e. a. s. myndaður úr sams konar frumum úr Miillers ganginum. Það er þess vegna skiljanlegt, að kom- ið hafa fram residiv af ca. in situ í vaginal toppinn eftir hysterec- tomia totalis í þessum tilfellum. Þótt búið sé að fjarlæga uterus, losnar konan þess vegna engan veginn við þann vanda, sem lang- varandi kontrol hefir í för með sér. Margt bendir til, að með þess- ari kirurgisku meðferð, hvort sem það er conisation eða hysterc- tomia, sé einungis verið að fjar- lægja afleiðingar sjúkdómsins, en að orsakir hans séu áfram fyrir hendi, og geti, þegar frá líður, valdið samskonar breytingum í cervix eða vaginal toppnum. Hafandi í huga áðurnefnd atriði virðist mér ljóst, að meðferðin við ca. cervicis in situ, á fyrst og fremst að vera vel skipulögð conisation. 1 stað hysterectomiu hjá eldri konum má í langflestum tilfellum láta sér nægja portio- amputatio með conisation, þar sem tekinn er með allur cervical can- allinn. Hysterectomiu ætti ekki að þurfa að gera, nema í þeim tilfell- um, þar sem komið hefir residiv eftir conisation. Hjá konum, sem hættar eru að menstruera, er þó radium í slíkum tilfellum örugg- asta meðferðin, enda er með þeim hóflega skammti, sem hefir reynzt fullnægjandi, hverfandi lítil hætta á aukaverkunum. Það er mikið trauma, sérstak- lega fyrir unga konu, ef nauðsyn- legt reynist að taka úr henni legið. Mér virðist, að það ættu að vera óskráð lög meðal lækna, að ekki sé gerð hysterectomia hjá ungri konu, nema tveir sérfræðingar í kvensjúkdómum séu sammála um nauðsyn slíkrar aðgerðar. Hryssan hans Lárusar gamla hafði tckið krankleika og vitjaSi hann dýralæknis. Dýralæknirinn fékk honum duft og glerpípu, sem hann átti að blása niður í hálsinn á merinni. Var þetta kröftug laxermeðal. Daginn eftir kom Lárus gamli aftur til læknisins og leit eymdar- lega út — Jæja, hreif ekki meðalið spurði læknirinn. — Jú, vissulega, en merin blés fyrst.

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.