Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1967, Side 28

Læknaneminn - 01.11.1967, Side 28
28 LÆKNANEMINN nefna örfá mál. Mjög miklar um- ræður urðu um fundi samtakanna og hvort ætti að breyta þeim. Að lokum varð niðurstaðan sú, að þeir skyldu vera óbreyttir eða að- alþing og fundur stúdentaskipta- stjóra í ágúst og ársuppgjör stúdentaskiptastjóra og fundur framkvæmdaráðs (Executive Board) í desember. Einnig urðu miklar umræður og rifrildi inn ársgjöld samtakanna, en til um- ræðu var að hækka þau til að bæta fjárhaginn. Ég beitti mér fyrir því, ásamt Hollandi og Líbanon, að ársgjöldin yrðu hækkuð um 100%, en að gjöldin yrðu í meira samræmi við meðlimafjölda félag- anna en verið hefur. Sem dæmi má nefna, að hver læknanemi hér greiddi áður u. þ. b. 20 sinnum meira til IFMSA en hver fransk- ur læknanemi. Ekki náðu þessar tillögur okkar fram að ganga nema að nokkru leyti, og virðist sem stór félög eins og i Frakk- landi, Þýzkalandi og Bretlandi, hafi ennþá mixmi fjárráð en okk- ar félag. Mjög mikið var rætt á þinginu um framtíð samtakanna og hvaða stefnu ætti að taka í hinum og þessum málum. Þessar umræður voru mjög langar, og gat ég lítið lagt til þeirra mála, vegna þess hve lítið ég vissi um IFMSA áður en ég fór. Hins vegar var þetta góð lexía fyrir mig 1 málefnum sam- takanna og mjög gaman var að ræða við fólk, sem hefur unnið að þessum málum í mörg ár. Ekki var minna skemmtilegt að sitja á kvöldin yfir bjórglasi og ræða við læknanema úr fjar- lægum löndum um heimsvanda- málin. Ég get ekki stillt mig að nefna hér lítillega tvö stórpólitísk mál, sem ég kynntist þarna á nýj- an hátt, en það eru vandamálin í S.-Afríku o g deila Israels og Araba. Frá Suður-Afríku áttu að koma tveir fulltrúar, en aðeins annar þeirra fékk vegabréf. Sá, sem ekki fékk að fara úr landi, er af ind- verskum ættum, en sá, sem kom, er af enskum ættum. Með okkur tókst góður kunningsskapur, og fræddi hann mig mjög mikið um S.-Afríkur og apartheid stefnuna. I landinu eru 5 læknaskólar, í tveimur eru eingöngu hvítir stúd- entar, í hinum þremur eru bæði hvítir og litaðir. Hvítu skólarnir hafa sameiginlegt félag, sem ekki fær aðild að IFMSA, vegna þess að apartheid brýtur í bága við stofnskrá samtakanna. Blönduðu skólarnir þrír hafa félag, sem er aðili að IFMSA. Ríkisstjórn S.- Afríku gerir félagi þessu allt til bölvunar, vegna þess að tilvera þess er ekki í samræmi við apar- theid. Fulltrúinn, sem kom á þing- ið, var í júní kosinn formaður blandaða félagsins, en samdægurs kom lögreglan og tók hann fast- an. Hann var síðan í þriðju gráðu yfirheyrslum frá morgni til kvölds í þrjá daga, en þá var honum sleppt lausum heldur illa til reika. Honum til undrunar var honum síðan leyft að fara úr landi. Hann langaði til að taka að sér embætti í IFMSA, en þá hefði hann orðið að hafa samband bæði við svört Afríkuríki og Austur-Evrópuríki, en það hefði þýtt margra ára fangelsi fyrir alla stjórn lækna- nemafélagsins. Líbanon er eina Arabaríkið í IFMSA, og eru þeir mjög dugleg- ir og áhugasamir í samtökunum. Þaðan voru 4 fulltrúar. Um dugn- að og áhuga ísraelsmanna má það sama segja. Þaðan voru 2 fulltrú- ar. Ég kynntist vel öllum þessum 6 ágætismönnum, og þótti mér það

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.