Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1967, Side 48

Læknaneminn - 01.11.1967, Side 48
LÆKNANEMINN U 7) Old Gold reykjandinn á snigla. 8) Það eru reyktir Kool vindl- ingar í gula húsinu. 9) Mjólk er drukkin í miðhús- inu. 10) Norðmaðurinn býr í fyrsta húsi til vinstri. 11) Sá, sem reykir Chesterfield, býr í næsta húsi við þann, sem á refinn. 12) Kool vindlingar eru reyktir í húsinu við hliðina á hesteig- andanum. 13) Lucky-Strike reykjandinn drekkur appelsínusafa. 14) Japaninn reykir Parliament. 15) Norðmaðurinn býr í næsta húsi við bláa húsið. Jæja, hver drekkur vatn, og hver á zebrahest? Bergenbúi nokkur fór tii læknis og leitaði ráða hans. — Ég hefi mikinn áhuga á knattspyrnu og það svo, að á hverri nóttu dreymir mig að ég sé að horfa á knattspyrnu og á morgnana er ég gjörsamlega útkeyrðir, — hvað á ég að gera. — Skiptið alveg um lífsreglur, sagði læknirinn. Nú gef ég yður sterkt svefnmeðal, sem þér skuluð taka inn snemma í kvöld og svo sof- ið þér eins og steinn draumlaust í nótt. — Æ, má ég ekki bíða með svefnmeðalið til annarskvölds, læknir góður, vegna þess að í nótt keppir knattspyrnufélagið ,,Brann“ við Berg- ensliðið á heimavellinum okkar! # Um síðustu aldamót skar augnlæknir í London upp augu á klæð- skera einum, sem var að verða blindur. Uppskurðurinn heppnaðist svo vel, að klæðskerinn sá til að þræða smánálar á eftir En læknirinn gerði um leið þá merkilegu uppgötvun, að klæðskerinn gat ekki með nokkru móti lesið á bók. Fjöldi lækna kom saman til að ræða þetta einkennilega fyrirbrigði, en þeir komust ekki að neinni niðurstöðu og varð endirinn sá, að þeir gáfu út stutta yfirlýsingu um þennan merkilega augnsjúkdóm. Það var ekki fyrr en nokkru síðar að systir klæðskerans gaf þær upplýsingar að hann væri alls ekki læs! # Fyrir nokkru sluppu fimm hættulegir sjúklingar út af geðveikra- hæli í París. Lögreglan hóf þegar víðtæka leit og var öllum bifreiðum hennar tilkynnt um atburðinn gegnum talstöðvarnar og skipað að taka alla fasta, sem hegðuðu sér grunsamlega. Eftir tvær klukkustundir hafði lögreglan komið með fimm hundruð manns á lögreglustöðvarnar, — en enginn hinna geðveiku voru meðal þeirra.

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.