Læknaneminn


Læknaneminn - 01.06.1975, Side 54

Læknaneminn - 01.06.1975, Side 54
Mynd 1. Coeliac angiografía: a) An adrenalíns. b) Eftir inndœlingu adrenalíns. Mj'óg góð fylling á pancreatico-duodenalæð- um. Ekkert óeðlilegt að sjá. grundvallaratriði til að greina rétt marga sjúkdóma og beita réttri meðferð gegn þeim. Sjúklegt ástand í æðakerfi er algengt, miklu tíðara en menn hafði ór- að fyrir áður en æðarannsóknirnar auðvelduðu að finna það. Samhliða örri þróun í æðaskurðlækning- um hafa kröfur af hálfu skurðlækna um nákvæma kortlagningu sjúklegra æðabreytinga fyrir aðgerð vaxið. Primerar breytingar á æðum í kviðarholi eru algengar, bæði staðbundnar og dreifðar. Þar má nefna arteriosclerosis, slagæðagúlpa (aneurisma dis- sectionis), og hættu á æðarofi (ruptura). A mörg- um slíkum skemmdum má ráða bót með aðgerð, öðr- um án aðgerðar, en allar skipta þær máli við sjúk- dómsgreiningu og unnt er að finna þær með æða- skoðun. Þrengsli (stenosis) við upptök æðastofn- anna frá aorta eru algeng og meinalífeðlisfræðileg þýðing þeirra í klínikk orðin vel kunn. Samband sjúklegra breytinga á nýrnaæðastofnum annars veg- ar og hækkaðs blóðþrýstings hins vegar hefur verið vinsælt rannsóknarefni allt frá því Goldbladder framkallaði ofþrýsting (hypertensio) með því að undirbinda aðra nýrnaæðina. Skurðlæknismeðferð (bypass-, end-to-end anasto- mosis), hefur gefið góða raun hjá álitlegum fjölda sjúklinga með of háan blóöþrýsting, þótt ekki séu öll kurl komin lil grafar um meðferð á ofþrýstingi, það er að segja hvort grípa eigi til pillu eða hnífs til að reyna að lækna of háan blóðþrýsting. Upptök- in á truncus coeliacus geta þrengst, til dæmis undan crura diaphragmatica eða undan skellum af völdum arterio-sclerosis. Collateral flæði sér þá oftast fyrir nægilegu blóði til þeirra h'ffæra sem arteria coeliaca nærir undir venjulegum kringumstæðum, oftast um æðar til briskirtils og skeifugarnar (pancreas- bogana) frá arteria mesenterica superior, og verða þær æðar þá oft mjög víöar. Slíka möguleika ber skurðlækninum að hafa í huga við undirbúning á ýmsum meiri háttar aðgerðum, til dæmis maga- resectio, því að undirbinding á þessum collaterölum, sem eru lífsæðar til allrar lifrarinnar eða stærri hluta hennar, er vafalaust orsök illviðráðanlegra fylgikvilla eftir aðgerð eða eftirkasta með mjög rýrða lifrarstarfsemi eða jafnvel coma hepatica. Dæmigerð angina abdominis annars vegar eða óljósir, óákveðnir verkir í kviðarholi hins vegar geta átt rætur að rekja til þrengsla eða jafnvel lok- unar í einum hinna þriggja aðalæðastofna frá aorta, það er arteria coeliaca, arteria mesenterica superior eða arteria mesenterica inferior. Líkskurðarskýrslur sýna að þrengsli í arteria coeliaca eru mjög algeng hjá fólki sem hefur ekki haft sjúkdómseinkenni í kviðarholi og mun það stafa frá collateral circulatio. Af þeim sökum verður að rannsaka alla þrjá æða- stofnana hjá sjúklingum með blóðskort í kviðarholi (abdominal ischaemia), því að þrenging á aðeins einum æSastofni getur vart verið skýring á einkenn- um sjúklings. Af því má draga þá ályktun að þaS þurfi að vera þrengsli á að minnsta kosti tveimur 44 LÆKNANEMINN
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.