Læknaneminn - 01.03.1976, Síða 37
um undir leiðsögn kennara. Námsskipulag í heil-
hrigðisþjónustu mætti tengja Borgarlæknisembætt-
inu og Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu.
Aðalatriðið yrði að rjúfa einangrun sjúkrahás-
anna og frá byrjun beina sjónum nemendanna að
því þjóðfélagi og því umhverfi, sem áhrif hefur á
sjúkdómsmyndina.
Eitt hundrað ár eru nú liðin frá stofnun Lækna-
skólans. Er því ekki úr vegi að ræða um kennslu og
þjálfun læknanema og markmið námsins.
Um heim allan eru nú uppi umræður um mennt-
un lækna almennt. Viðteknar aðferðir hafa orðið
fyrir gagnrýni, svo og námsefnið sjálft og fyrir-
komulag prófa og víða hafa verið gerðar gagngerðar
breytingar. (13).
Læknadeifd Háskóla Islands þarf að taka þetta
mál til almennrar umræðu hið bráðasta, því kröfur
heilbrigðiskerfisins munu aukast, þegar heilsugæzlu-
stöðvunum og stöðum við þær fjölgar.
Eg geri mér ljóst, að ef þær hugmyndir, sem ég
hef sett fram um sérhæfingu námsins, þættu líklegar
til endurbóta og upp yrðu teknar að einhverju leyti,
gæti það, ef engu yrði breytt um annað skipulag,
leitt til aukins álags á stúdenta og það svo, að ofraun
yrði sumum að ljúka námi á 6 árum.
Væri þá annað tveggja til ráða, að lengja námið,
sem væri hreint óráð, eða að færa nokkuð af grunn-
greinunum til bóknáms-menntaskólanna og í ein-
ingar heilbrigðisstétta í fyrirhuguðum fjölbrautar-
skólum.
Væri þá (og raunar nú þegar) þörf á að athuga
hvort ekki væri ástæða til þess að taka upp inntöku-
próf í læknadeild, svipað og gert er í Póllandi (14)
eða að skipta læknanáminu í tvennt; fyrst eins kon-
ar forskóla (pre-medical), sem jafnframt gæti búið
stúdenta undir nám í öðrum deildum.
Til þess að fá að setjast í lœknadeild þyrfti síðan
að þreyta inntökupróf (Medical College Admission
Test), svipað og gert er í Bandaríkjunum (14).
Þessari hugmynd um „pre-medical school“ mun
próf. Hjalti Þórarinsson hafa hreyft fyrir nokkrum
árum.
Enn ein leið væri sú, að taka við nemendum úr
öðrum deildum, sem aflað hefðu sér auk þess þekk-
Ahöld notuð aj Rómverskum lœknum. Til hœgri er vaginal
speculum. Þessi áhöld fundust í Pompei.
ingar i grunngreinum læknisfræðinnar. Kæmi í ljós
við prófun að þeim væri í einhverju áfátt, mætti
bæta þeim það með námskeiðum. Fyrirmynd þessa
er frá McMasters University í Kanada (15).
HvuS cru luiiniilislœkninyar?
Þessu máli má ekki ljúka svo, að ég leggi ekki
eitthvað af mörkum til þeirrar marklýsingar, sem ég
held fram að þurfi að skilgreina nákvæmlega.
Á þessu stigi get ég eðlilega ekki veitt endanlegt
svar, en bendi á eina af fjölmörgum starfslýsingum
(job definition), sem ávallt er undanfari marklýs-
ingar og hef valið lýsingu sérfræðinganefndar Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, þar sem segir eitl-
hvað á þá leið, að heimilislœknir (general practiti-
oner), sé læknir, „sem ekki einskorðar starf sitt við
afmarkaðar sjúkdómsheildit' og býður sjúklingum
beinan og samfelldan aðgang að þjónustu sinni.“
(16).
Slíkur læknir sinnir öllum vandamálum allra
sjúklinga, félagslegum og læknisfræðilegum, og
hann getur leyst 9 af hverjum 10, þau 10% sem
hann getur ekki leyst, sendir hann frá sér til réttra
aðila eða stofnana. Starfið er síðan brotið niður í
einingar og lýst nákvæmlega ,og marklýsingin þann-
ig byggð upp á einingum starfslýsingarinnar. Inn í
þessa mynd gengi einnig aukið og víðara verksvið
heimilislæknanna í heilsugæzlustöðvum.
Til þess að fyrirbyggja misskilning vil ég taka
fram, að mér kemur ekki til hugar, að störf í
heilsugæzlustöðvum verði í framtíðinni unnin af
læknum, sem allir hafi gengið í gegn um sams konar
heimilislækna-kvörn, séu straumlínulagaðir og allir
eins.
Læknar eru mismunandi hæfir til þess að bregðast
við mismunandi aðstæðum, þannig að þá þarf að
velja til starfa, samkvæmt því, hvað þeir geta bezt
læknaneminn
27