Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1986, Síða 23

Læknaneminn - 01.04.1986, Síða 23
blood Mynd 3 Hclstu blóðskilugerðir. Nr. 1: Hárpípuskila, nr. 2: Plötuskila, nr. 3: Spóluskila. saphenopopliteal fistlar) en önnur með æðabútum úr gerfiefnum eins og Gortex, sem ágætt er að stinga í. Fyrir bráðar skilanir er notast við æðaleggi, sem lagðireru í v. femoral- is eða v. subclavia, en síðarnefndi staðurinn hefur gefist mjög vel og jafnvel óhætt að láta leggina liggja vikum saman. Slíkir leggir hafa nú gjarnan 2 rásir, aðra út en hina inn. Bláðskilunarvélar hafa tekið stórstíg- um framförum. Þróunin hefur orðið til vaxandi öryggis og meðfærilegri véla. Iiér sem víðar hafa örgjörvar (microprocessors) haldið innreið sína. Blóðskilunarvélar sjá um að blanda skilvökvanum úr þykkni og hreinu kranavatni. Þær hita hann síð- an upp í líkamshita áður en honum er rennt um skiluna. Á flestum vélum má stilla inn undirþrýsting í skilvökv- ahólfi og margar sjá um að viðhalda völdum þrýstingshalla (TMP) yfir himnuna. Enn eru vélar, sem unnt er að stilla sérstaklega á últrafiltration. Þá endurnýjast skilvökvinn ekki, en allt vatn, sem pressað er af sjúklingn- um, kemur út um sérstakan stút og má þá mæla það nákvæmlega. Þá má geta þess að flestar vélar hafa útbúnað fyrir skilun með einni nál. Þá sameinast blóðslöngur í Y- tengi við nálina, en tveir lokar sjá um að klemma fyrir blóðslöngurnar til skiptis með stillanlegum tímabilum á milli. Næst með þessu þokkaleg skilun. Mikið er lagt í öryggiskerfi vél- anna. Viðvörunarbúnaður lylgist með fjölmörgum atriðum og gefur merki ef eitthvað fer úrskeiðis. Þann- ig er fylgst með blöndun skilvökvans og styrkleika, upphitun og þrýstingi. Þegar hann rennur aftur frá skilunni, er hann gegnumlýstur og sé hann blóðugur, þ.e. gat á himnu skilunn- ar, stöðvast skilun þegar í stað. Þá fylgist vélin með þrýstingi í blóð- slöngum og er sérstaklega á verði gagnvart lofti í þeim. Loks má geta þess, að vélarnar sjá orðið að mestu sjálfar um að skola sig og sótthreinsa að skilun lokinni. Framkvæmd skilunar Fyllt er inná blóðslöngur og skilu með saltvatni. Sjúklingurinn er vigl- aður fyrir skilun og áætlað það vökvamagn, sem pressa þarf al 'nonum. Áður en hann er tengdur vél- inni eru teknar blóðprufur og honunt gefinn heparínskammtur gegn blóö- storknun í skilunni. Við heparínið ei bætt síðar ef þörf krefur. Blóðflæði er gjarnan 200 ml/mín. í skilun. Þrýstingshalli yfir himnuna (TMP) er ákveðinn í samræmi við áætlaða vökvatekju af sjúklingnum. Á meðan á skilun stendur er fylgst með blóðþrýstingi og almennri líðan sjúklings. Auk þess vaktar vélin fjöl- mörg atriði skilunar, sem fyrr segir. Helstu óþægindi, sem sjúklingar geta fundið til í skilun, eru blóðþrýst- ingsfall vegna of hraðrar eöa mikillar vökvatekju, sinadráttur, ógleði eöa höfuðverkur, en þetta þrennt má LÆKNANEMINN Vms-Vm>,-38.-39. árg. 21
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.