Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1986, Side 57

Læknaneminn - 01.04.1986, Side 57
landinu í hans tíð, og eldri sjúklinga. Kjartan vann að þessum rannsóknum áratugum saman og skoðaði oft flesta sjúklingana, enda lengi eini tauga- sjúkdómafræðingurinn í landinu. Hann birti um rannsóknir sínar á MS merkar greinar, sem eru fyrir löngu orðnar klassiskar tilvitnanir, þegar menn skrit'a yfirlitsgreinar um út- breiðslu MS í heiminum. Doktorsrit- gerð Kjartans R. Guðmundssonar: Epidemiological Studies of Neuro- logical Diseases in Iceland. kom út sem sérrit frá taugasjúkdómadeild Landsspítalans 1973, mjög seint á starfsævi höfundarins. Þarer að finna yfirlit yfir ævistarf Kjartans að rann- sóknum á langvarandi taugasjúkdóm- um meðal íslendinga og útbreiðslu þeirra. Sú ritsmíð er ómetanleg heimild, og einnig Acta Neurol. Scand., supplement 2, Vol. 38:1962 og supplement 48. Vol. 47:1971 og J. Neurol. Science. Vol. 21:47-58. 1974. Kjartan varð fyrstur manna ti! að greina Akureyrarveikina klínískt frá öðrum taugasjúkdómum og lýsti henni ásamt Birni á Keldum og fleir- um. (Am. J. Hygeine, Vol. 52:222- 338, 1950). Það er síðan á ykkar valdi, unga fólk, hvort merki þeirra samstarfs- mannanna' Björns á Keldum og Kjartans R. Guðmundssonar stendur eða fellur á ókomnum árum. Þeirra framlag til grundvallarþekkingar á langvinnum taugasjúkdómum var unnið við mun erfiðari vinnuskilyrði en þið eigið í vændum í framtíðinni, þrátt fyrir allan barlóminn, sem þið alist upp við í læknadeildinni. Ykkur er engin vorkunn, ef þið hafið áhuga fyrir starfinu og látið ekki lífsgæðakapphlaupið drepa í ykkur allan dug. Hér er ýmislegt hægt að gera, og langt frá því að allar ráðgátur sjúkdómafræðinnar séu að fullu leystar. í mátulega stóru samfél- agi eru ýmsar línur skýrari en meðal stórþjóðanna, eins og verk þessara tveggja fæðimanna sýna. Garðabæjar Hrísmóum 2 210Garðabæ Opið virka daga 9-19 Laugardaga 11-14 Almennur sími 651321 Læknasími 651320 LÆKNANEMINN Vi985 - '/1986 — 38.-39. árg. 55

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.