Læknaneminn - 01.04.1986, Side 65
tala væri þá geymd sem margir tölvu-
stafir en meðhöndluð sem ein eining
viö útreikninga. Tölvustafur er lítil
eining og því er oft talað um kíló-
tölvustafi (1024 tölvustafir) sem síð-
an er stytt sem Kb. El'við miðum við
venjulega þéttskrifaða A4 síðu. þarf
um 1 Kb til að geyma þann texta.
Venjuleg smátölva hefur gjarnan 64
Kb í innra minni og 1000 Kb í ytra
minni. Flestar nýrri smátölvur hafa
hins vegar möguleika á stærra innra
minni, allt að 640 Kb. Flestir nýrri
forritapakkar gera ráð fyrir 256-512
Kb minni. Nýjasta einkatölva IBM,
IBM AT hefur hins vegar innra minni
sem má auka í allt að 16000 Kb.
3) Inntak - breytir upplýsingum á
formi sem notandinn skilur í form
sem tölvan skilur. Algengasta inntak-
ið er lyklaborðið. Dæmi um annað
inntak væri t.d. húðnemi sem mældi
viðnám húðarinnr, en slíkir nemar
eru stundum notaðir þegar tölvur eru
notaðar við „bio-feedback".
4) Úttak - breytir straumi gagna í
form sem notandinn skilur: skjár með
upplýsingum úr sjúkraskrá fyrir
lækninn; línurit fyrir tölfræðinginn;
vaxtatöflur fyrir bankamanninn svo
að nokkur dæmi séu tekin. Tölvan
gæti einnig sent þessi gögn til annarr-
ar tölvu eða sem stjórnboð til flókins
tækis.
5) Strengir - tengja síðan þessar ein-
ingar saman. Oft er talað um mis-
munandi strengjabreiddir og er þá átt
við hvað tölvan getur flutt mikið af
upplýsingum samtímis. Eftir því sem
strengjabreiddin er meiri getur tölvan
tengst stærra minni. Atta og sextán
bita strengjabreiddir eru algengastar.
6) Taktgjafinn - er síðsta eining töl v-
unnar, en hann slær taktinn með vissu
millibili og hefur áhrif á hversu hratt
tölvan vinnur. Tíðni taktgjafans er
mæld í Mhz og eftir því sem hún er
meiri, þeim mun hraðvirkari er
tölvan.
7) Jaðartœki - við tölvuna nrá síðan
tengja ýmis aukatæki. Nauðsynlegt
er að hafa ytra minni, eða geymslu-
stöð af einhverju tagi. Algengast er
að geynra forrit, eða gögn á svo-
kölluðum segulskífum. Segulskífan
er ekki ósvipuð 45 snúninga hljóm-
plötu í umslagi. Tækið sem sér um að
lesa af og skrá á skífuna er kallað
skífulesari. Ýmis önnur jaðartæki nrá
nefna s.s. mótöld en þau gera töiv-
unni kleift að tengjast öðrum tölvum
og taka við, eða senda þangað upp-
lýsingar. Slík tæki þarf að hafa ef
tengja á tölvuna gagnabönkum.
Tölvum er stundum skipt i þrjár
nrismunandi stærðir: smátölvur,
miðtölvur og stórtölvur. Þessi skipt-
ing er þó varla praktísk lengur vegna
þess að smátölvurnar verða sífellt
öflugri og bilið á milli flokkanna því
mjög óljóst. Tölvan senr hægt er að
hafa á borðinu hjá sér í dag hefði
kannski fyllt heilt herbergi fyrir
tveimur árurn síöan og þurft sérhæft
starfslið til eftirlits og viðhalds.
Smátölvur innihalda venjulega einn
eða l'leiri örgjörva ásamt minnisflög-
um. Tölvur eru venjulega hannaðar
fyrir einn notanda og eru því oft kall
aðar einkatölvur, eða ET (e. PC).
Slíkri tölvu má venjulega koma fyrir
á borði. Verðið liggur á bilinu 5.000-
300.000 (janúar 1986). Mjög mikill
hugbúnaður er til fyrir tölvur af þess-
ari stærð og er hann mjög mismun-
andi að verði og gæðum. Þannig get-
ur hugbúnaður kostað allt frá kr. 500
(l'yrir ódýra heimilistölvu) upp í
300.000 fyrir sérhönnuð tölvukerfi.
Algengt verð forrita í viðskiptaheim-
inum er kr. 15-100.000.
Miðtölvur innihalda venjulega marga
örgjörva og geta unnið verk fyrir
marga notendur í einu. Þessar tölvur
taka venjulega mikiö pláss sem mæla
má í herbergjum. Verðið liggur á bil-
inu kr. 400.000-5.000.000. Hægl er
að tengja marga skjái við þessar
tölvur. Forrit á þessar tölvur kosta allt
aö kr. 500.000 og geta kostað meira
ef þau eru sérsmíöuð.
Stórtölvurnar eru síðan á toppi
skalans. Þær fylla venjulega mörg
herbergi og geta þjónað mörgum
stórum stolnunum. Dæmi um slíka
tölvu er tölva Skýrr sem þjónar Pósti
og síma, Gjaldheimtunni, Ríkisspít-
ulunum auk fjölda annarra aðila.
Niðurlag
Hér að framan hefur verið stiklað á
stóru varðandi nokkur atriði er lúta að
tölvum. Ætlunin er að fylgja þessari
grein eftir nreð fleiri greinum um sér-
hæfðari atriði er tengjast tölvunotkun
í læknisfræði. Má þar nel'na greinar
um ritvinnslu, gagnavinnslu, töl-
fræðilega úrvinnslu, o. fl.
Svör við sjúkra-
tilfellum
(Frh. afbls. 58)
akút gláku, eins og gerst hefur hjá
þessari konu.
Komiö hefur fyrir að sjúklingar
tneð bráðagláku hafi verið skornir
upp vegna einkenna, senr líktust
bráðu ástandi í kviðarholi. Þetta er
því sjúkdómur, sem vert er að hafa í
huga, eins og þetta tilfelli sýnir.
Þakkir:
Guðmundur Viggóson augnlæknir á
Landakoli fær kærar þakkir fyrir góöar
vísbendingar varðandi þetta sjúkratilfelli.
LÆKNANEMINN Visss - '/1986-38.-39. árg.
63