Læknaneminn - 01.10.1989, Blaðsíða 6
Leiðari
“En kjósir þú nú á tímum að gera ekkert og halda
jafnframt virðingu þinni, er besta ráðið að þykjast
önnum kafinn við mikilvœgar rannsóknir...” (Leslie
Stephens, Sketches from Cambridge (1865))
I þéttskipaðri stundaskrá lœknanemans er hœtt
við að lítill tími gefist til að grufla í afmarkaða kima
lœknisfrœðinnar, til að fá þann dýpri skilning sem
mikilvœgur er og gefur náminu gildi. Þrátt fyrir
perestrojkuna sem nú ríður yfir deildina, er hæpið að
það leiði til mikilla breytinga hvað þetta mikilvœga
atriði varðar. En fyrir þá sem eru þungt þjakaðir af
glósulestri og tímasókn, er til afdrep innan múra
deildarinnar sem nokkrir (þó ekki of margir)
lœknanemar hafa nýtt sér. Hér er ég auðvitað um að
rœða umB.S. nám sem gefur hið nauðsynlega frelsi
sem þarf til frœðilegrar iðkunar, sem marga dreymir
um erþeir hefja háskólanám.
Arið 1984 voru lög um B. S. nám í lœknisfrœði
samþykkt á deildatfundi og til þessa hafa yfirleitt um
einn til þrír lœknanemar á hverju ári nýtt sérþennan
möguleika. Avöxturinn hefur íflestum tilfellum verið
ríkulegur og að mati margra þeirra semfrelsið hafa
nýtt sér hefur sá tími sem í verkefnið fór verið einn
lærdómsríkasti tími námsins. Flestir þeir sem nú hafa
lokið þessum áfanga hafa fengið birtar niðurstöður
rannsókna sinna í viðurkenndum erlendum
vísindatímaritum og er það góður mælikvarði á hve
verkefnin hafa tekist vel og mikill metnaður hefur legið
að baki. En árangur af sjálfstœðri vinnu í eitt ár undir
handleiðslu góðra manna verður að sjálfsögðu ekki
eingöngu mœldur fjölda greina sem skrifaðar eru
heldur erþetta fyrstfremst gullið tœkifœri til að sökkva
sér á bólakafí afmarkaða greinarfrœðinnar og öðlast
þœr nýju víddir og þáfróun sem afþví hlýst. I þessu
hefti lœknanemans gefur að líta þau fjölbreytilegu og
metnaðarfullu verkefni sem boðið var upp á fyrir
námsárið 1989- '90 og œtti sú lesning að veraforvitnileg
fyrir þá sem áhuga hafa á rannsóknum.
Eg minntist hér að ofan á að breytingin sem nú
œtti sér stað innan deildarinnar myndu vart auka til
muna þann tíma sem lœknanemar hafa til sjálfstœðrar
menntunar. Þó er vert að minnast á eina veigamikla
undantekningu sem hillir undir og var raunar löngu
tímabœr. Hér er um að rœða rannsóknartímabil á
fjórða ári sem allir eiga að fara í gegnum og á að
standa í fjóra mánuði. Þó að þarna sé um að rœða
stuttan tíma þá er kannski mikilvœgast að þetta getur
nœgt til að kveikja áhugann og getur þannig leitt til
áramhaldandirannsóknaíformiB.S. náms. Viðgetum
því vonast til að að framundan séu bjartir tímar með
blóm í haga fyrir akademískt nám innan lœknadeildar
og eftil vill erþess ekki langt að bíða að hœgt verði að
bjóða upp á doktorsnám í deildinni og þannig gera
lœknadeild Háskóla Islands að alvöru lœknaskóla.
MKM
4
LÆKNANEMINN l-%89-42. árg.